Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 44
42 Þjóðmál VETUR 2010
* * *
Þrátt fyrir að fyrrnefnd skýrsla varpi
fram spurningu um það hvort NATO
hafi hlutverki að gegna á norðurskauts-
svæðinu hefur þeirri spurningu í raun verið
svarað þar sem fimm aðildarríki NATO
teljast til norðurskautsríkja . Það eru, auk
Íslands, Bandaríkin, Kanada, Noregur
og Danmörk . Umboð og skuldbinding
NATO nær því til þeirra ríkja hér eftir
sem hingað til . Enn fremur er staðsetning
IADS-ratsjárkerfisins á Íslandi (Integrated
Air Defence System) dæmi um viðveru
NATO á svæðinu . Klaus Naumann, fyrrum
yfirmaður hermálanefndar NATO, sagði
á fundi Samtaka um vestræna samvinnu í
Reykjavík í september sl . að það væri augljóst
að NATO gæti ekki uppfyllt skyldur sínar
skv . 5 . gr . Washington-sáttmálans um að
verja öll NATO-aðildarríkin án þess að taka
norrænar varnir með í reikninginn .
Spurningin, sem við ættum að spyrja, er
því ekki hvort bandalagið hafi hlutverki að
gegna á norðurskautssvæðinu, heldur hvert
hlutverkið eigi að vera?
Áður en þeirri spurningu er svarað vil
ég víkja stuttlega að efni skýrslunnar og
helstu áhersluatriðum hennar varðandi þau
verkefni sem við stöndum frammi fyrir á
norðurslóðasvæðinu .
Nýjar siglingaleiðir
Breytingar á loftslagi hafa m .a . leitt til þess að aðgangur að náttúruauðlindum
hefur aukist og siglingaleiðir, sem hingað
til hafa verið ófærar vegna hafíss, eru að
opnast í nokkrum mæli . Rétt er þó að
hafa í huga að þróunin er hæg . Það gætu
verið 20 til 30 ár eða jafnvel lengri tími
í það að siglingaleiðir milli heimsálfa á
norðurslóðum opnist þannig, og svo lengi
á hverju sumri, að þær verði hagkvæmur
kostur . Þær loftslagsbreytingar sem um
ræðir geta haft margs konar afleiðingar, svo
sem hækkun yfirborðs sjávar og breytingu
sjávarfalla . Samt sem áður felast einnig
tækifæri í breytingunum . Talið er að um
25−30% ónýttra auðlinda, svo sem olíu, gass
og kola, sé að finna á norðurskautssvæðinu .
Á sama tíma og loftslagsbreytingar hafa
víðtæk áhrif á hefðbundið líf íbúa svæðisins
hafa þannig einnig skapast ný tækifæri
varðandi ferðaþjónustu, fiskveiðar, siglingar
og nýtingu auðlinda .
Undanfarna áratugi hafa rannsóknir sýnt
fram á að ísbreiður við norðurheimskautið
fari sífellt minnkandi, þó sérstaklega á
sumrin . Fram kom í ferð varnarmálanefndar
til Grænlands í sumar að talið er að á síðustu
30 árum hafi ísbreiðan á Grænlandi minnkað
um 30% . Breytingarnar hafa vakið vonir
um auknar siglingar um norðurskautssvæðið
sem myndu stytta siglingaleiðina milli
Asíu annars vegar og Norður-Evrópu og
Norður-Ameríku hins vegar um þúsundir
kílómetra . Talið er að siglingaleiðin frá
Japan til Rotterdam muni líklega styttast um
40% og frá Seattle til Rotterdam um 25% .
Skipaumferð milli þessara heimshluta fer nú
að mestu í gegnum Súes- og Panama-skurðina
eða suður fyrir Afríku . Helst er rætt um tvær
siglingaleiðir á norðurskautssvæðinu . Annars
vegar er það norðvesturleiðin (Northwest
Passage), en þar er siglt milli eyjaklasa við
norðurhluta Kanada . Hins vegar er það
svokölluð norðurleið (Northern Sea Route),
öðru nafni norðausturleiðin, sem liggur fyrir
norðan Rússland .
Sumarið 2009 gerðist það í fyrsta sinn að
báðar leiðirnar voru færar samtímis . Þrátt
fyrir að sérfræðingar bendi á hætturnar sem
fylgja siglingum um norðurskautssvæðið,
þar sem allra veðra er von og skilyrðin eru
erfið, horfa alþjóðleg skipafyrirtæki nú
þegar til möguleika á auknum siglingum
um svæðið .