Skólavarðan - 01.04.2010, Blaðsíða 15
15
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Matti Tapani Saarinen fluttist hingað frá Finn-
landi fyrir fjórum árum og hefur kennt á gítar
bæði á Egilsstöðum og Akureyri. Hann hefur
starfað í Tónlistarskólanum á Akureyri, Tónak,
síðan í haust.
Tónlistarskólinn heyrir undir skólanefnd
Akureyrar og vinnur í samstarfi við grunn-
skóla í bænum. Matti kennir til dæmis tvisvar
í viku í Brekkuskóla utan þeirrar kennslu sem
fram fer í sjálfum tónlistarskólanum. Hann
segir samstarf við grunnskóla vera mjög
mikilvægt og telur að jafnvel mætti auka það
enn frekar. „Ég kenni meðal annars krökkum
sem eiga erfitt í skóla og hópkennsla hentar
þeim ekki,“ segir Matti. „Samstarfið við
grunnskólana gengur almennt mjög vel. Mér
finnst þó stundum að það mætti vera meira
samstarf um þá krakka sem eiga erfitt fyrir.
Það þyrfti jafnvel að gefa tónlist og öðrum
listgreinum meira vægi í skólunum.“
Þá hafa tónlistarskólinn og Akureyrarbær
lagt vinnu í að meta starfsemina í samanburði
við kennslu í grunnskólum. „Verið er að vinna
með atriði eins og kennsluskyldu, viðveru og
slíkt sem er þekkt í grunnskólunum,“ útskýrir
hann.
Engin niðurgreiðsla
Matti var á Egilsstöðum fyrir tveimur árum
þegar efnahagslægðin skall á þjóðinni og
segir að þar hafi tónlistarkennararnir fundið
fyrir nokkrum breytingum á nemendum.
„Í mörgum tilvikum fóru foreldrar að sýna
tónlistarnámi barna sinna enn meiri áhuga og
athygli, helst vegna þess að þeir höfðu minni
vinnu en áður,“ segir hann. „Sumir þurftu að
hætta vegna skólagjalda því Egilsstaðabær
hætti að greiða niður ýmist tómstundarstarf.
Sem betur fer var þó ekki mikið um það.“
Meiri tónmennt í Finnlandi
Þegar Matti ber saman tónlistarnám í Finn-
landi og hér á Íslandi segir hann kerfið vera
nokkuð svipað, nemendur þar þurfi þó að taka
Gott samstarf á Akureyri
Matti Tapani Saarinen frá
Finnlandi hefur starfað sem
gítarkennari á Íslandi í fjögur ár.
inntökupróf í tónlistarskóla sem þeir þurfi
ekki að gera hér. Þá telur hann skólagjöldin
vera svipuð. „Það er þó áherslumunur á
tónlistarkennslu í þessum tveimur löndum.
Hér á Íslandi er mjög misjafnt hvort og hversu
lengi tónmennt er kennd. Til dæmis er hún
ekkert kennd á Egilsstöðum í ár. Í Finnlandi
er tónmennt kennd mun lengur og í öllum
grunnskólum.“ Matti segir enn fremur að þar
sé hljóðfærakennslan líka venjulega kennd
inni í grunnskólunum en víða sé það ekki gert
hér. Hann er því ánægður með þá stefnu Tónak
og Akureyrarbæjar að fara með tónlistina inn
í skólana.
Tónmennt mikilvæg
Matti telur mikilvægt að sem mest tónmennt
sé kennd í grunnskólum og að leggja megi
meiri áherslu á það víða hér á landi. „Ef
engin tónmennt er kennd á grunnskólastigi
og börn ekki kynnt fyrir tónlist verður starf
tónlistarkennara mun erfiðara,“ útskýrir hann.
„Ef lögð væri meiri áhersla á almenna tón-
menntakennslu gætu tónlistarskólar einbeitt
sér mun betur eingöngu að hljóðfærakennslu.
Þannig að niðurskurður í tónmennt í grunn-
skólum hefur tvímælalaust áhrif á tónlistar-
skóla landsins og nemendur.“
Það mætti vera meira
samstarf um þá krakka
sem eiga erfitt.
fólkiÐ