Skólavarðan - 01.04.2010, Page 27
27
Skólavarðan 3.tbl. 2010– formenn spurðir tíðinda
„Djúpstæð fagvitund er að mínu mati ein meginforsenda þess að
menn geti axlað ábyrgð á málaflokknum þannig að menntunin sjálf
sé í hásæti og þetta á jafnt við um alla hagsmunaðila,“ segir Sigrún.
Svæðisþing tónlistarskóla
haust 2010
Austurland (Egilsstaðir): 27. ágúst
Norðurland (Akureyri): 9. september.
Vestfirðir (Ísafjörður): 10. september.
Suðurland og Suðurnes (Reykjanesbær): 16. september
Vesturland (Borgarnes) 23. september
Höfuðborgarsvæðið (nánar ákv. síðar) 24. september
Er skorið grimmt niður í tónlistarskólum?
„Það er vissulega búið að skera mikið niður í tónlistarskólum, því
miður, og það hefur víða haft mikil áhrif á faglegt skólastarf þar sem
mörg skref eru stigin aftur á bak. Við í FT fylgjumst vel með gangi
mála og gerðum meðal annars könnun núna í mars á niðurskurði í tón-
listarskólum sem verður til umfjöllunar á svæðisþingum næsta haust.
Niðurstöður sýna að ástandið er mjög mismunandi á milli sveitarfélaga.
Á landsvísu er niðurskurðurinn að meðaltali um 9% frá árinu 2009
til 2010 og nær hann frá 0% upp í 22%. Einnig ber á sameiningu
skólastofnana sem leið til niðurskurðar. Við reynum að styðja við og
hafa áhrif til góðs hvar og hvenær sem við getum, í aðstoð við skóla-
stjórnendur í varnarbaráttu þeirra fyrir faglegri starfsemi skólanna, við
að skýra áhrif leiða sem eru til umræðu í tengslum við niðurskurð og
setja fram rök með og á móti valkostum.
Eins og fram kom í úttekt Anne Bamford fyrir menntamálaráðu-
neytið á stöðu listfræðslu á Íslandi þá þurfum við að efla hana og þróa
en alls ekki að draga úr. Ef teknar eru saman ýmsar tillögur sem Anne
setur fram í skýrslu sinni og áherslur í alþjóðlegum stefnumarkandi
skjölum um nauðsyn þess að efla listfræðslu og skapandi starf í mennta-
kerfi þjóða þá má sjá að margt er óunnið og skemmtileg og ögrandi
verkefni framundan. Þar verður fagmennska kennara og samræða þeirra
við yfirvöld skólamála og fólkið í landinu í algleymingi.“
spjörunum úr
„Fagmennska er til alls fyrst“