Skólavarðan - 01.04.2010, Qupperneq 28
28
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Þökk fyrir frábærar
móttökur!
Undanfarnar vikur höfum við starfsmenn Rannsóknaþjónustu
Háskóla Íslands heimsótt grunn- og framhaldsskóla um allt land
og sýnt útskriftarnemendum hvernig þeir geta búið til ferilskrá á
netinu með evrópsku sniði sem kallast Europass. Menntaáætlun
Evrópusambandsins styrkir þetta átak myndarlega enda hefur verið
lögð mikil vinna í að búa til ferilskrá sem hentar jafnt þeim sem eiga
að baki langa starfsævi og þeim sem eru að taka sín fyrstu spor á
vinnumarkaðnum. Nemendur í margmiðlunarhönnun í Borgarholts-
skóla bjuggu til myndband fyrir okkur með aðstoð kennara sinna um
hvernig best er að gera ferilskrána og settu á YouTube. Sýndum við
nemendum myndbandið og spjölluðum við þau um hvers vegna væri
mikilvægt að gera ferilskrá og að hvaða leyti Europass ferilskráin væri
ólík öðrum.
Alls höfum við heimsótt rúmlega sextíu skóla og hitt vel á annað
þúsund nemendur auk fjölmargra náms- og starfsráðgjafa, kennara,
skólastjórnenda og annarra starfsmanna skólanna. Með þessu greinar-
korni langar okkur að þakka fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum
fengið. Sérlega ánægjulegt var að hitta hina efnilegu æsku landsins sem
lætur ekki tímabundna efnahagserfi ðleika aftra sér frá því að hafa stórar
fyrirætlanir um framtíðina og er tilbúin að leggja ýmislegt á sig til að
ná settu marki.
Þegar hugmyndin um að kynna gerð ferilskrár í grunnskólum og
framhaldsskólum var fyrst rædd fyrir nokkrum árum þótti mörgum
hún vera mesta fásinna, fólk á þessum aldri hefði lítið eða ekkert
að setja í slíka skrá. Á þeim tíma var þetta hins vegar ekki rétt. Í
skólum á höfuðborgarsvæðinu sem þá voru heimsóttir vann um það
bil helmingur nemenda með skólanum, í sjoppum, við barnapössun,
við að bera út blöð og fl eira þess háttar. Öll unnu þau á sumrin, kunnu
heilmikið í tungumálum, voru geysilega fl ink á tölvur og fl est gátu
fært inn upplýsingar um uppbyggileg áhugamál og tómstundastarf.
Störfum utan skóla hefur vissulega fækkað og sérstaklega virðast ung-
lingar eiga erfi tt með að fi nna sumarstörf eftir fyrsta og annan vetur í
framhaldsskóla. Ástandið víða um land er þó misjafnt hvað þetta varðar
og sem betur fer er á sumum stöðum framboð af ágætum og jafnvel
vel launuðum störfum fyrir ungt og áhugasamt fólk. Þeir sem eru ekki
jafn heppnir virðast nýta tímann til þess að bæta við sig ýmsu sem mun
koma þeim að gagni á vinnumarkaði í framtíðinni. Tölvulæsi þeirra er
til dæmis mun meira en okkar sem eldri erum og ensk tunga er þeim
næstum eins eðlileg og íslenska.
Atvinnurekendur biðja nú í auknum mæli um einhver gögn frá öllum
þeim sem sækja um störf. Helst vilja þeir fá bæði ferilskrá og meðmæli
frá skólum eða öðrum atvinnurekendum. Auðvitað er hægt að útbúa
ferilskrá í ritvinnsluforriti en hún verður að líta vel út, vera rétt stafsett
og brýnt er að telja allt með sem fólk kann og getur.
Fyrir þá sem af einhverjum ástæðum misstu af heimsókn okkar má
benda á vefi nn http://europass.is/, á krækjunni Europass ferilskrá er
bæði kynningarmyndband og leið inn á vefi nn til þess að búa til Euro-
pass ferilskrá eða uppfæra hana. Við ætlum líka að reyna að koma því
við að heimsækja fl eiri skóla, berist okkur óskir um það.
Kveðjur til grunn- og framhaldsskóla frá
Europass hópnum Texti: Dóra Stefánsdóttir verkefnisstjóri, Margrét K. Sverrisdóttir verkefnisstjóri
og Ársæll Þorsteinsson tímabundinn starfsmaður. Myndir: Úr einkasafni
BrÉf
Uppstillingarnefnd Kennarasambands Íslands auglýsir eftir
frambjóðendum til eftirtalinna trúnaðarstarfa:
1. Formanns. Kosið verður í embætti formanns í almennri
kosningu félagsmanna KÍ sem lokið skal eigi síðar en 14.
desember 2010 (sjá 17. gr. laga KÍ).
2. Varaformanns. Kosið verður í embætti varaformanns í
almennri kosningu félagsmanna KÍ sem lokið skal eigi
síðar en 28. febrúar 2011 (sjá 17. gr. laga KÍ).
3. Kjörstjórnar (5 aðalmenn og 3 varamenn),
stjórnar orlofssjóðs (7 aðalmenn og 3 varamenn),
stjórnar sjúkrasjóðs (5 aðalmenn og 5 varamenn),
stjórnar vinnudeilusjóðs (5 aðalmenn og 5 varamenn),
uppstillingarnefndar (6 aðalmenn og 6 varamenn),
skoðunarmenn reikninga (2 aðalmenn og 1 varamaður).
Í þessi störf (undir 3. lið) verður kosið á fi mmta þingi
sambandsins sem haldið verður í apríl 2011.
Tilnefningum um formann skal skila fyrir 15. október 2010
og tilnefningum um varaformann og aðrar trúnaðarstöður
fyrir 15. janúar 2011. Nöfnum frambjóðenda fylgi: Kennitala,
heimilisfang, starfsheiti, símanúmer, vinnustaður, netfang og
mynd.
Tilnefningar skal senda Stefáni Andréssyni formanni uppstill-
ingarnefndar í tölvupósti á eftirfarandi netföng: stand@fb.is eða
stand@mi.is. Berist staðfesting ekki innan tveggja sólarhringa er
líklegt að sendingin hafi misfarist.
Uppstillingarnefnd fer þess á leit við trúnaðarmenn að þeir
kynni þetta málefni á sínum vinnustað og hvetur félagsmenn til
að vinna heilshugar að tilnefningum til trúnaðarstarfa úr sem
breiðustum hópi.
Nefndin
Uppstillingarnefnd Kennarasambands Íslands auglýsir
eftir frambjóðendum til trúnaðarstarfa
Uppstillingarnefnd Kennarasambands Íslands – fi mmta þing Kennarasambands Íslands