Skólavarðan - 01.04.2010, Page 36
36
Skólavarðan 3.tbl. 2010
Ingibjörg:
Heiðarlegt svar við þessari spurningu er að ég er í eðli mínu svo afskipta-
söm að ég get ekki legið á skoðunum mínum. Ég trana mér fram við
hvert tækifæri þar sem ég held að ég geti breytt einhverju. Ég hef verið
leikskólakennari í yfir tuttugu ár og er svo ánægð með starfið að það jaðrar
við dramb. Ég vil hafa áhrif í þá átt að samfélagið setji menntun í forgang
og vel menntaðir kennarar í góðum skólum séu stolt þjóðarinnar.
Það má líkja því við vettvangsnám fyrir þetta starf að undanfarin tvö ár
hef ég verið varaformaður Félags leikskólakennara. Þar var ég nemi hjá
Björgu Bjarnadóttur sem er reynslubanki okkar og gagnagrunnur. Mér
finnst mjög gaman í vinnunni og er ofboðslega stolt yfir því að vera treyst
til að vera fyrsti formaður FSL.
Það á að vera eftirsóknarvert að fara í fimm ára nám til þess að fá
réttindi til að kenna í leikskóla. Þeir sem velja sér leikskólakennaranám
eru fullir af sköpunarkrafti og námið verður að höfða til þeirra. Allir
leikskólakennarar telja sig koma úr besta árgangi sem nokkru sinni hefur
útskrifast og ég vona að HA og HÍ haldi lífi í þeirri stemmningu. Þó að
breytingaskeiðið - úr þremur árum í fimm - verði kannski erfitt og búast
megi við tímabundinni fækkun útskrifaðra leikskólakennara þá verður
þessi breyting algjör lyftistöng fyrir leikskólann sem lærdómssamfélag.
Nú fyrst verða íslenskar rannsóknir á íslenskum leikskólum og á íslensku
grundvöllur framþróunar í leikskólastarfi.
Áðurnefndur sköpunarkraftur leikskólakennara hefur gert leikskóla
litríkar og lifandi menntastofnanir. En því miður er ekki allt í himnalagi.
Marta og Ingibjörg taka við stjórnartaumunum
Í Kennarasambandinu eru tveir nýir formenn, Marta Dögg Sigurðar-
dóttir formaður Félags leikskólakennara (FL) og ingibjörg Kristleifs-
dóttir formaður hins nýstofnaða Félags stjórnenda leikskóla. Við
bjóðum þær báðar hjartanlega velkomnar til starfa. Það er tilhlýði-
legt að spyrja nýtt fólk í forystusveit þessarar spurningar: Af hverju
gefur þú kost á þér til þessara starfa og hvað hefurðu fram að færa?
Eða, í stuttu máli, hvers vegna ertu hér?
Hvers vegna
ertu hér?
fólkiÐ
Lesið um stofnun FSL og
aukaaðalfund FL á www.ki.is
Texti: keg
Myndir: js
Ingibjörg Marta