Skólavarðan - 01.09.2010, Page 25
25
Skólavarðan 4.tbl. 2010
Það sem hér er ritað hef ég lært af samræðum við fyrrverandi og núver-
andi samstarfsfólk í skólamálanefnd FF og af setu minni í námskeiðinu
Sérfræðingar í nútímasamfélagi: Fórnfýsi eða sérhagsmunir?
Flestir virðast hafa skoðun á kennarastarfinu og telja sig geta metið
hver er góður kennari og hver ekki. Oft er sagt að einhver sé „fæddur
kennari“ en það vísar til þess að hæfileikar kennara séu samgrónir per-
sónu hans. Ég hafna því og trúi að kennarar og kennarastarfið mótist
af þeim hugmyndum sem eru við lýði hverju sinni. Að við verðum
að staldra við og spyrja okkur hvort það að vera „góður kennari“ hafi
sömu merkingu nú og fyrir hundrað árum?
Kennarastarfið er tvíþætt: Annars vegar felst það í að koma nem-
endum til nokkurs þroska. Hins vegar að leiða í ljós einhvers konar
sannleik um veröldina í kringum okkur. Þessi sannleikur getur verið
flókinn og hann getur verið afstæður. Sérstaða kennslu hefur áhrif á
það hvernig kennarar útfæra starf sitt og upplifa sig sem fagmenn.
Ímynd um meðfædda eiginleika kennara kemur sér illa við skilgrein-
ingu á sértækri þekkingu kennara. Einnig er erfitt að sjá hvernig við
ætlum að öðlast sameiginlega fagvitund sem kennarar ef við trúum því
að þekkingargrunnur kennara sé takmarkaður og leggjum eingöngu
áherslu á faggreinar.
Kennarar búa við mikla ytri stjórnun, þeir þurfa í sífellu að bregðast
við breytingum á stjórnarfari og því getur reynst erfitt að skipuleggja
gott skólastarf og setja markmið. Ef ríkjandi er vantraust á sérþekkingu
kennara verður vald þeirra lítið þegar upp er staðið sem og frelsi þeirra
til að ná settum markmiðum. Kennaranámið er sá þekkingargrunnur
sem kennarar byggja starf sitt á og veitir þeim sértæka þekkingu fag-
stéttar sem innsigluð er með lögverndun á starfsheitinu. Framþróun
hefur orðið í sértæku námi kennara en þó vantar mikið upp á að kenn-
arar fái undirbúning fyrir þann félagslega veruleika sem þeirra bíður í
starfinu. Til dæmis má nefna styttri æfingarkennslu í kennaranámi nú
en fyrir tíu árum.
Við, eins og margar aðrar starfstéttir, höfum mótað og skráð fag-
legar siðareglur sem eru vegvísir okkar kennara sem fagstéttar. Megin-
hlutverk þeirra er að leiðbeina okkur til að við getum sinnt sem best
réttmætu og þörfu hlutverki í samfélaginu. Hvetja okkur til að vanda
okkur í starfi og efla til að við getum haft áhrif á markmiðssetningu
um menntun og skólastarf. Siðareglur eiga að auðvelda ákvarðanatöku
í siðferðilegum álitamálum og sýna fram á siðferðilegar skyldur okkar
sem fagstéttar. Að þessu sögðu tel ég mikilvægt að við ræðum siða-
reglurnar því það er ein leið til að fjalla um tilgang kennslu og starf
kennara.
Texti: Björk Þorgeirsdóttir
Björk er framhaldsskólakennari
Mynd: js
samræða
Ef ríkjandi er vantraust á sérþekkingu
kennara þá verður vald þeirra lítið
þegar upp er staðið sem og frelsi þeirra
til að ná settum markmiðum.
Hvað er að vera góður kennari?