Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 21

Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 21
20 Þjóðmál haust 2012 Hanna Birna Kristjánsdóttir Verum breytingin sem við boðuðum Ef komandi kosningar snerust aðeins um störf ríkisstjórnarinnar eða þá stefnu sem er líklegust til að skila samfélaginu betri árangri, þá þyrfti varla að spyrja að niður- stöðunni . Sjálfstæðisflokkurinn myndi vinna stórsigur, leiða ríkisstjórn og hafa for- ystu um uppbyggingu, verðmætasköpun og aukin lífsgæði í þágu íslensks almennings næstu árin . En við þær aðstæður sem nú eru í stjórnmálum og samfélaginu almennt, er staðan flóknari og stjórnmálaflokkum nægir ekki það eitt að boða breytingar og betri tíma . Þeir verða sjálfir að vera sú breyting, endurvinna það traust sem glatast hefur og hafa hugrekki til að fara nýjar leiðir og innleiða ný vinnubrögð . Allt þetta getur Sjálfstæðisflokkurinn gert og á að gera . Með því að halda grunn hug- sjónum sínum hátt á lofti; boða lausnir í stað ráðaleysis ríkisstjórnarinnar; gera flokks starf sitt enn lýðræðislegra og fjölga tæki færum flokks fólks til þátttöku; en umfram allt með því að gefa aldrei eftir í baráttunni fyrir hags munum fólksins í landinu — getur Sjálf stæðisflokkurinn náð góðum árangri í vor . Grunnurinn að þeim árangri verður þó ekki lagður á vordögum, rétt fyrir kosningar heldur þarf sjálfstæðisfólk um allt land að nota veturinn vel og hefjast strax handa svo að Sjálf stæðis flokkurinn fái það umboð sem hann þarf til að vinna í þágu hennar næstu árin . Byggjum á hugsjónum Brýnasta verkefni vetrarins er að tryggja að kjósendur viti nákvæmlega hvað muni breytast þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur við stjórn landsmála . Sóknarfæri flokksins eru hugsjónir hans og það brýna erindi sem þær eiga við þjóðina nákvæmlega núna . Grunnstefið er skýrt . Frelsi með ábyrgð á að ráða för; hið opinbera þarf að minnka umsvif sín og kostnað; ólíkir hópar og stéttir þurfa að vinna saman og almenningi og atvinnulífi á að treysta fyrir eigin ákvörð- unum, lífi og framtíð . En þrátt fyrir þennan skýra hugsjóna- grunn þarf Sjálfstæðisflokkurinn einnig að kynna tímasettan verkefnalista fyrir næsta kjörtímabil . Þannig þurfa kjósendur að vita hvernig og hvenær verður tekið af alvöru á skuldavanda heimilanna; hvenær og hvernig skattar verða lækkaðir; hvenær og hvernig óþarfa verkefni ríkisins verða lögð af og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.