Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 22

Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 22
 Þjóðmál haust 2012 21 hvenær og hvernig almenningi og atvinnu- lífi verður á ný veitt frelsi til að nýta þau tækifæri sem hér eru . Aukum þátttöku Annað brýnt verkefni vetrarins er að fjölga enn frekar tækifærum flokksfólks til þátttöku og staðfesta þannig vilja Sjálf- stæðis flokksins til aukins lýðræðis og þá forystu sem flokkurinn á að hafa um ný og betri vinnubrögð í stjórn málum . Öll kosningavinna flokksins á kom andi vetri verður að einkennast af þessu . Kosningastefnuskrár um allt land þarf að vinna og kynna af sem stærstum hópi flokksfólks og framboðslista flokksins verður að velja með opnu og fjölmennu kjöri í öllum kjördæmum . Hvort tveggja er sérstaklega mikilvægt í aðdraganda þeirra kosninga sem nú fara í hönd . Og hvort tveggja er algjörlega nauðsynlegt fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, sem verður að sýna að hann gangi óhikað til þess verks að gefa öllu flokksfólki tækifæri til stilla upp þeim hópi frambjóðenda sem líklegastur er til að ná árangri í komandi kosningum . Leitum afgerandi umboðs Þau verkefni sem bíða íslensks samfélags hafa aldrei verið brýnni en nú . Ekkert stjórn mála afl getur tekist á við þessi verkefni betur en Sjálfstæðisflokkurinn . En til þess þarf hann af gerandi umboð þjóðarinnar . Um boð sem fæst ekki aðeins vegna þess að núver andi ríkisstjórn leysir verkefnin illa, heldur vegna þess að almenningur treystir því að Sjálf stæðis fl okkurinn muni leysa þau vel og betur en aðrir . Þannig að þrátt fyrir að veturinn muni auðvitað fara mikið í umræðu um þing- málin og vanmátt ríkisstjórnarinnar við að leysa verkefnin, þá nægir sú umræða flokknum ekki til að ná þeim árangri sem að er stefnt . Hið almenna vantraust í garð allra stjórnmálaflokka gerir það að verkum að þeim nægir ekki að hræða kjósendur með því sem hinum mistekst, heldur verða þeir að sannfæra kjósendur um eigin ágæti og getu . Sjálfstæðisflokkurinn á því að nýta veturinn til að boða eigin lausnir, kynna eigin áherslur og vinna vel með sitt besta kosningavopn sem er hugsjónir hans . Verum breytingin sem við boðum Undanfarin ár hefur flest breyst í íslensku sam félagi . Einstaklingar, fyrirtæki og fjöl- skyldur hafa þurft að laga sig að nýjum veruleika, vinna með áður óþekktar áskor- anir og leita allra leiða til að vinna úr breyttri stöðu . Stjórnmálin eru ekki ósnort- in af þessum veruleika og til að endur nýja traustið verða stjórnmálaflokkar að viður- kenna breytinguna og staðfesta með orðum, en einkum með aðgerðum, að þessar breyt- ingar hafi skilað sér til flokkanna, haft áhrif á stefnumótun þeirra, lausnir og starf . Þarna verður Sjálfstæðisflokkurinn að hafa forystu . Veturinn verður því að nýta með Veturinn verður því að nýta með þeim hætti að þegar vorið kemur efist eng inn um það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hugrekki til að læra af reynslunni, vinna með breytingar og gera allt sem í hans valdi stendur til að tryggja að almannahagsmunir séu ofar öllu í uppbyggilegri, sanngjarnari og betri stjórnmálum .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.