Þjóðmál - 01.09.2012, Blaðsíða 23
22 Þjóðmál haust 2012
Þetta fólk nam land og settist að í öllum
lands fjórð ungum en flestir þó á Suð ur landi, í
Borgarfirði og við Eyja fjörð .
Höfundur bókarinnar til grein ir alla land-
náms menn úr Norður-Noregi, sem hann
veit um með vissu, lýsir heimkynn um þeirra
í Noregi, segir frá því hvar hver og einn settist
að hér á landi og rekur sögu hvers landnáms í
stuttu máli . Hann setur einnig söguna í stærra
sam hengi, greinir forsendur og ástæður þess að
fólk fluttist frá Norður-Noregi til Íslands og ber
í stöku tilvikum saman lands- og atvinnuhætti
í gömlu heimkynnunum og það sem helst
ein kenndi hin nýju . Hann hefur dvalist lang-
dvölum hér á landi, heimsótt flesta þá staði sem
land námsmennirnir frá Norður-Noregi tóku sér
ból festu á og kynnt sér aðstæður og umhverfi .
þeim hætti að þegar vorið kemur efist eng-
inn um það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
hug rekki til að læra af reynslunni, vinna
með breytingar og gera allt sem í hans valdi
stend ur til að tryggja að almannahagsmunir
séu ofar öllu í uppbyggilegri, sanngjarnari
og betri stjórnmálum .
Samfélagið þarfnast breytinga þar sem
fólk ið í landinu fær svigrúm til að nýta tæki-
færin . Sömu tækifæri bíða Sjálfstæðis flokks-
ins sjálfs, ef hann verður breytingin sem
hann boðar og endurspeglar eigin hug sjónir
í öllum sínum áherslum, lausnum og starfi .
Þannig mun Sjálfstæðisflokkurinn ná árangri
í komandi kosningum og vinna Íslandi það
gagn sem hann getur, verður og á að gera .
Landnám Íslands hefur löng um vakið áhuga fræði manna, hér heima og ekki
síður erlendis . Nýjar kenn ingar hafa reglulega
verið settar fram, aðrar eldri endur skoðaðar og
sumum varpað fyrir róða . Á síð ustu áratugum
hafa fornleifa rannsóknir varp að ljósi á sitthvað
sem áður var hulið og ekki kemur fram af
ritheimildum og bætt við þekkingu okkar á
land náminu og ýmsum þáttum í sögu þess .
Snemma í sumar kom út í Noregi bókin
Landnåm fra Nord. Utvandringa fra det
nordlige Norge til Island i vikingtid, eftir Alf
Ragnar Nielssen, prófessor í sögu fyrri alda við
Universitetet i Nordland í Bodø . Bókin byggir
á margra ára rannsóknum höfundar á rit heim-
ildum og staðfræði og hlýtur að sæta nokkrum
tíðindum í landnámsrannsókn um . Fram til
þessa hefur það verið almennt við tekin skoðun
að mikill meirihluti þeirra land náms manna,
sem hingað fluttust frá Noregi, hafi komið frá
þeim landshluta sem þar gengur almennt undir
heitinu Vestlandet . Í þessari bók sýnir höfundur
hins vegar fram á með óyggjandi rökum,
að þannig var þessu ekki far ið . Fjölmargir
landnámsmenn, nærfellt þriðjungur, komu
frá Norður-Noregi og í þeim hópi voru margir
hinna þekkt ustu, svo sem Ólafur tvennum-
brúni á Ólafsvöllum, Ketill hængur, Ketilb jörn
gamli, Skallagrím ur Kveld úlfs son og Þuríður
sunda fyllir, svo að aðeins örfáir séu nefndir .
Ný norsk bók um landnám Íslands
Alf Ragnar Nielssen með bók sína .