Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 27

Þjóðmál - 01.09.2012, Síða 27
26 Þjóðmál haust 2012 Ósmekklegur oflátungur Nú nýlega er því slegið upp að þekktur oflátungur . . . sem til er haugur af fráleitum fullyrðingum eftir, sem sagan hefur þegar dæmt flestar, hafi fagnað, að vísu á viðeigandi stað, í blaði Baugs, brottrekstri „seðlabankastjórans“ sem hann nafngreindi, nú rúmum þremur árum síðar . Hann mun vera að hrópa húrra fyrir árás Jóhönnu og Steingríms að Seðlabankanum og frumkvæði að því að þrír bankastjórar voru reknir af pólitískum þingmeirihluta, án rannsóknar af neinu tagi . En þeir tveir, sem ekki eru nefndir, þegar hlakkað er yfir afrekinu, voru vammlaus- ir heiðursmenn, með meira en 30 ára reynslu hvor í bankanum . Í bankastjórninni gátu þessir tveir, samkvæmt lögum bankans, ráðið öllu sem þeir vildu . Hver bankastjóranna fór aðeins með þriðjungs vald . Og af hverju voru þessir tveir heiðursmenn reknir án nokkurrar rannsóknar? Af því að pólitískt ofstækisfólk hélt að tími þess væri kominn og það gæti í því uppnámi sem orðið var í þjóðfélaginu farið fram með hætti sem enginn hefði getað hugsað sér áður . Það þurfti að grípa tækifærið til að ná persónulega til gamals andstæðings, stjórnmálamanns sem hafði haldið því fólki utan stjórnarráðsins í 16 ár, að mati þess sjálfs! Atlagan að bankanum, skrípaleikurinn við lagasetninguna og falsið og farsinn um ráðningu Más Guðmundssonar er næsta einstætt verk í sögu vestrænna lýðræðisríkja . En dapurlegast er þó að ofstækismenn víluðu ekki fyrir sér að fella „fagmennina“ tvo brott frá lífsstarfi sínu er þeir leituðu persónulegra hefnda fyrir pólitískar ófarir í á annan áratug . Seðlabanki á hausinn Og svo er hin áróðurstuggan, sem óvit-arnir éta hver upp eftir öðrum, að Seðlabanki Íslands hafi farið á „hausinn“ . Það fóru allir viðskiptabankarnir á hausinn, urðu gjaldþrota, og gátu því ekki endur- greitt innlenda fyrirgreiðslu Seðlabankans . Hundruð dæma eru um þetta nær og fjær í Evrópu og Bandaríkjunum . Hvergi er því haldið fram að seðlabanki evrunnar sé að fara á hausinn þótt hann hafi þegar lánað hlutfallslega miklu meira en íslenski Seðlabankinn og tekið margfalt tæpari veð . Af hverju ekki? Og ef seðlabankastjórarnir þrír höfðu virkilega sett bankann sinn á hausinn, af hverju gerði Rannsóknarnefnd Alþingis það mál, væntanlega eitt mesta stórmál og einsdæmi í heimssögunni, ekki að áfellisefni á hendur bankastjórunum, í stað þess, eins og til að geta tínt eitthvað til, að ásaka bankastjórana um að hafa ekki svarað munnlegri fyrirspurn stjórnarformanns Glitnis skriflega daginn áður en Glitnir sagði sig til sveitar!? Þeir hefðu eins getað áfellst þá fyrir að hafa ekki slökkt ljósið á kontórnum þegar þeir fóru heim síðdegis . Rógurinn um Seðlabankann Úr Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.