Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 32
Þjóðmál haust 2012 31
Íeftirfarandi grein verður fjallað um sam-vinnu Atlantshafsbandalagsins við önnur
þau ríki sem ekki eru aðilar að bandalag inu .
Eftir að „kalda stríðinu“ lauk fyrir rétt rúm-
um tuttugu árum hefur Atlantshafsbanda-
lagið tekið miklum breytingum . Öllum
lýðræðis ríkjum Evrópu stendur til boða að
gerast aðilar að bandalaginu ef þau sækjast
eftir því . Flest hafa gert svo . Aðildarríkin
eru núna 28, en þau voru aðeins 16 í árslok
1989 þegar járntjaldið féll, Berlínarmúrinn
var rifinn, og Austur-Evrópa losnaði úr viðj-
um kommúnismans .
Við lok „kalda stríðsins“ breyttist veröldin
mikið . Sovétríkin höfðu verið helsta ógnin
við Evrópu allt fram til ársins 1990, enda
var það á stefnuskrá þeirra að breiða út
kommúnisma — og það með valdi ef með
þyrfti . Landvarnir Atlantshafsbandalagsins
snerust því nær eingöngu um að verða öflugt
mótvægi við herveldið í austri og vernda þar
með eigin landsvæði og nærliggjandi höf .
Nú eru hins vegar verkefnin fjölbreyttari:
hryðjuverk án landamæra, tölvuárásir, lög-
gæsla vegna sjórána, auk fyrirbyggjandi
verk efna eins og friðargæslu .
Atlantshafsbandalagið er sístækkandi fjöl -
þjóða stofnun og hefur komið sér upp neti
sam starfsaðila utan Evrópu og Norður-
Ameríku — aðila sem ekki eru með limir
í banda laginu heldur eingöngu sam starfs-
aðilar á vissum sviðum .
Núverandi samstarfsaðilar
Atlantshafsbandalagsins
Samstarfsaðilar Atlantshafsbandalagsins urðu til í nokkrum áföngum síðustu tvo
áratugina . Fyrsti hópurinn, Evró-Atlants -
hafs samstarfsráðið (e . Euro-Atlantic Partner-
ship Council), samanstendur af gömlu
komm únistaríkjunum í Evrópu og Norð-
vestur-Asíu, þ .e .a .s . þeim fyrrum komm-
únista ríkjum sem ekki hafa enn gerst full-
gildir aðilar að Atlantshafsbandalag inu,
svo og hlutlausum ríkjum álfunnar, (merkt
með mosagrænu á myndinni á næstu bls .) .
Annar hópur samstarfsríkja, Miðjarðar hafs-
samráðið (e . Mediterranean Dialog), er ríki
sunnan og austan Mið jarðar hafs ins (merkt
með brúnu á myndinni á næstu bls .) . Þriðji
hópurinn er fjögur af sex ríkjum Sam starfs-
Magnús Bjarnason
Hvert stefnir Atlantshafs-
bandalagið í samvinnu við
utangarðsríki?