Þjóðmál - 01.09.2012, Page 41
40 Þjóðmál haust 2012
inga á fjöl mennu norrænu stúdentamóti í
Osló 1939 . Þekktastur var hann fyrir störf sín
á fréttastofu Ríkisútvarpsins, þar sem hann
vann með mörgum öðrum snillingum á borð
við Margréti Indriðadóttur, Jón Magnússon,
Stefán Jónsson, Hendrik Ottósson og Emil
Björnsson . Thorolf var ekki bara frábær
fréttamaður — hann hafði líka mikinn
húmor og samdi margvíslegt gamanefni fyrir
Árið 1959 hóf Setberg, bókaforlag Arnbjörns Kristins sonar, út gáfu á bókaflokki sem fjallaði um merka
stjórn mála menn . Fyrsta bókin var ævi-
saga Abrahams Lincoln eftir Thorolf
Smith . Næstu 12 árin komu fimm bækur
til viðbótar: Thorolf skrifaði um John F .
Kennedy og Winston S . Churchill, Gylfi
Gröndal skrifaði um Franklin D . Roosevelt
og Robert Kennedy og Þorsteinn Thoraren-
sen um Charles de Gaulle . Bækurnar urðu
afar vinsælar — ekki síst meðal fróðleiks-
fúsra unglinga á borð við þann sem þetta
skrifar . Nýlega hef ég lesið þær allar aftur;
þær bera auðvitað merki síns tíma, en
hafa elst furðu vel og eru bæði lifandi og
fróðlegar — og skemmtilega skrifaðar . Það
er mikill fengur að endurútgáfu Lincolns-
sögu Thorolfs Smith .
Thorolf Smith (1917–1969) var þjóð-
kunnur á sinni tíð . Hann vakti verulega
athygli þegar hann talaði fyrir hönd Íslend-
Ólafur Þ . Harðarson
Thorolf Smith og ævisaga
Abrahams Lincoln
Í tilefni af nýrri
útgáfu bókarinnar