Þjóðmál - 01.09.2012, Side 42

Þjóðmál - 01.09.2012, Side 42
 Þjóðmál haust 2012 41 útvarpið . Frægasta apríl gabb fréttastofunnar (frá 1957) — frásögn af skipinu Vanadísi sem sigldi upp Ölfusá til Sel foss — var verk hans og Stefáns Jóns sonar (með nokkurri hjálp Jóns Múla Árna sonar) . Og fyrir tíma sjónvarpsins voru út varps mennirnir stjörnur síns tíma; Thorolf var m .a . kynnir og for- maður dómnefndar á fegurðarsamkeppnum Íslands, sem haldn ar voru í nepjunni í gamla Tívolí . Hann keppti líka með blaða- mönn um gegn leik ur um í knattspyrnuleik á Mela vellinum gamla 1950; 13–14 þúsund áhorfendur mættu — eða fjórði hver Reyk- víkingur — til að berja stjörnurnar augum! Dag blöðin birtu útsíðu myndir af Thorolf að taka horn spyrnu með að stoð Bjarna Guð- munds sonar, blaða fulltrúa ríkisstjórnarinnar (með hatt) . — Bjarni „styður við boltann en kippti samt hendinni að sér þegar Thorolf spark aði,“ segir í myndatexta . Thorolf skrifaði margt fleira en ofan- greindar ævisögur . Af stað burt í fjarlægð (1948) eru bráðskemmtilegar ferða minn- ingar; þættir sem flestir höfðu verið fluttir í útvarpið 1939–1944 . Þar segir m .a . af heimsreisu Thorolfs með norska skemmti- ferðaskipinu Stella Polaris, en þar var hann starfsmaður og sigldi umhverfis hnöttinn árið 1937 . Aðrar frásagnir eru m .a . af blaðamannaferðum sem Thorolf tók þátt í, en hann fór fjölmargar slíkar um dagana . Var hann vafalaust einn af víð förl ustu Íslendingum sinna tíma og sannur heims- borgari . Þá skrifaði Thor olf ævisögu Geirs Sigurðssonar skipstjóra, Til fiskiveiða fóru (1955) . Hann íslenskaði líka margar bækur . Thorolf Smith á ritstjórnarskrifstofum dagblaðsins Vísis .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.