Þjóðmál - 01.09.2012, Side 54
Þjóðmál haust 2012 53
Hvernig er skynsamlegast fyrir lands-
menn að nýta og tryggja sitt frelsi? Þessi
grein er tilraun til að svara þeirri spurningu .
Sett er fram nokkurs konar draumsýn .
Draumsýnir eru þó hættulegar, ef þær hafa
ekki jarðsamband, eins og t .d . draumsýn
Karls Marx um alræði öreiganna á sinni tíð,
en draumsýnir skálda hafa iðulega rætzt, t .d .
Einars Benediktssonar, sýslumanns, sem orti
ódauðlega um draumsýnir sínar um framtíð
Íslands með beizlun fallvatnanna .
Atvinnuvegirnir
Það er viðurkennd staðreynd, að athafna-líf þrífst bezt, þar sem einstaklings frelsi
er í hávegum haft og markaðshagkerfið fær
að starfa í friði fyrir inngripum ríkisvalds ins
að mestu . Undirstaða lífskjaranna og vel-
ferðarkerfisins er samkeppnishæfir atvinnu-
vegir, sem hvíla á fleiri en einni stoð . Þeir
verða að vera samkeppnishæfir við útlönd,
svo að a .m .k . 5% greiðslujöfnuður við útlönd
náist, en slíkt er forsenda fyrir stöðugleika og
styrkum gjaldmiðli hérlendis . Önnur for-
senda varanlegrar vel megunar almennings
er, að fjárfestingar nemi að jafnaði a .m .k .
20% af VLF (verg landsframleiðsla er um
þessar mundir tæplega 1700 milljarðar
kr) . Þess vegna ríður á að skapa aðlaðandi
um hverfi fyrir fjárfesta í landinu . Til að
fullnægja þessu verður stjórnarfarið að vera
stöðugt og fyrirsjáanlegt og virðing borin
fyrir eignum einstaklinga og félaga . Uppá-
koma, sumir mundu segja slys, eins og
ríkis stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, má þess
vegna ekki endurtaka sig, enda varð sú til
við einstakar aðstæður í hagkerfi landsins,
sem girða verður fyrir með öllu móti .
Viðmót stjórnvalda í garð fjárfesta
verður að vera traustvekjandi, og ekki má
ganga á hótunum um skattahækkanir og
sérskattlagningu, sem jafngildir eignarnámi,
eins og eru ær og kýr vinstri stjórna .
Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnu-vegur landsmanna, og hann verður allt-
af ein af grunnstoðum tekjuöflunar sam-
félagsins . Vinstri stjórnin og þingmenn
hennar hafa sáð fræjum illvígrar öfundar
í garð eigenda útgerðanna og alvarlegum
ranghugmyndum um réttindi þeirra til
nýtingar á fiskimiðunum . Ekki er heil brú í
þessum málflutningi, þegar betur er að gáð,
heldur er um að ræða hræsni og loddara-
hátt, sem kveða verður niður til að atvinnu-
greinin fái þrifizt og dafnað, eins og vert er .
Það voru stjórnvöld á Íslandi, sem sáu sig
tilneydd að innleiða miklar takmarkanir á
veiðum á Íslandsmiðum og völdu þá leið
að úthluta aflahlutdeild á hvert veiðiskip á
grundvelli veiðireynslu næstu þriggja ára á
undan . Síðan voru innleiddir ýmsir hvatar
til að fækka veiðiskipum, því að þau voru
svo mörg, að takmarkaðir veiðistofnar gátu
ekki skilað hagnaði á þau öll . Það á með
engu móti að láta sjávarútveginn líða fyrir
þetta með orðagjálfri um meinta sérstöðu,
sem leiði til sjálfstæðs gjaldstofns, sem
V instri stjórnin og þingmenn hennar hafa sáð fræjum
illvígrar öfundar í garð eigenda
útgerðanna og alvarlegum rang-
hugmyndum um réttindi þeirra
til nýtingar á fiskimiðunum . Ekki
er heil brú í þessum málflutningi,
þegar betur er að gáð, heldur er
um að ræða hræsni og loddara-
hátt, sem kveða verður niður til að
atvinnu greinin fái þrifizt og dafnað,
eins og vert er .