Þjóðmál - 01.09.2012, Side 55

Þjóðmál - 01.09.2012, Side 55
54 Þjóðmál haust 2012 hvorki fyrirfinnst í öðrum löndum né í annarri starfsemi á Íslandi . Sérskattlagning á borð við veiðileyfagjald er óréttlátt og jafngildir skýlausri skerðingu á atvinnufrelsi í þessari grein . Það á enginn fiskistofnana, enda synda þeir óáreittir inn og út úr landhelginni . Ákvæðið um þjóðareign á fiskistofnum í lögum um stjórnun fiskveiða hefur enga eignarréttarlega merkingu, sem þó allmargir þingmanna vinstri stjórnarinnar virðast halda . Ákvæðið var sett til að tryggja rétt íslenzka ríkisins gagnvart útlendingum og til að stjórna sókninni í stofnana . Veiðiheimildir útgerðarmanna jafngilda ekki eign heldur nýtingarrétti og hafa hjálp- að þeim til að fjárfesta í atvinnutækjum fyrir þessa nýtingu, enda er auðlindin einskis virði fyrr en hún hefur verið nýtt og til þess þarf fjármagn . Í núverandi fisk veiði- stjórnunarkerfi felst árangursrík blanda sam félagslegrar stjórnunar á auð linda nýt- ingu og athafnafrelsis . Kjörfyrirkomulag fiskveiðistjórnunar er það, sem eykur þjóðarhag mest, þ .e . gefur af sér mestan arð á hvert kg aflans til sam- félagsins . Það er næsta víst, að kerfi, sem gefur af sér mest til þeirra, sem sækja sjóinn og eiga atvinnutækin, gefur af sér hæstu skatttekjurnar í sjóði sveitarfélaganna og ríkisins, þegar allt er upp talið, með venju- legri skattheimtu og án sérsköttunar á formi hins ósanngjarna veiðigjalds . Ef unnt verður með óyggjandi hætti að sýna fram á, að eitthvert annað fyrirkomulag en frjálst markaðskerfi með opinberri ákvörðun veiðihlutdeildar á skip á grundvelli vísindalegrar fiskveiðistjórnunar, skili meiri auði til almennings, þá er auðvitað einboðið að taka upp slíkt kerfi . Valkosturinn við þetta stýrða markaðs- kerfi er tilviljanakennd inngrip stjórnmála- manna með pottum, byggðakvótum, strand veiði og annarri skerðingu aflahlut- deildar á mark aði . Það er nú þegar komin næg reynsla af þessum inngripum og ætti að fela Hagfræði stofnun Háskóla Íslands að gera saman burð á þjóðhagslegri hagkvæmni frelsis og téðra afskipta . Að mati höfundar er þó engum blöðum um það að fletta, að af nota réttar fyrir komulag veiðihlutdeildar inn an marka vísindalegrar ákvörðunar veiði heim ilda er þjóðhagslega hagkvæmasta fram tíðarfyrir komu lag á nýtingu hinna lif- andi sjávar auðlinda í lögsögu Íslands . Með auknum veiðiheimildum með upp- bygg ingu stofnanna í íslenzku lögsög unni, enn auknum gæðum og verðhækk un um vegna minnkandi heimsafla af völdum of- nýt ingar og mengunar, má með bjartsýni búast við útflutningstekjum sjávarútvegs árið 2020 allt að 60% hærri en árið 2011 eða 400 milljarðar kr . að núvirði . Í slenzki landbúnaðurinn býr við einka-eignarrétt á landi og frjálst framsal fram leiðslukvóta . Framleiðslutakmarkanir hafa knúið fram gæðaaukningu og fram- leiðniaukningu, svo að segja má, að bú- skapar hættir hafi tekið stakkaskiptum . Fram leiðni landbúnaðarins á öllum sviðum V eiðiheimildir útgerðarmanna jafngilda ekki eign heldur nýtingarrétti og hafa hjálpað þeim til að fjárfesta í atvinnutækjum fyrir þessa nýtingu, enda er auðlindin einskis virði fyrr en hún hefur verið nýtt og til þess þarf fjármagn . Í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi felst árangursrík blanda samfélagslegrar stjórnunar á auðlindanýtingu og athafnafrelsis .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.