Þjóðmál - 01.09.2012, Page 55
54 Þjóðmál haust 2012
hvorki fyrirfinnst í öðrum löndum né í
annarri starfsemi á Íslandi . Sérskattlagning
á borð við veiðileyfagjald er óréttlátt og
jafngildir skýlausri skerðingu á atvinnufrelsi
í þessari grein .
Það á enginn fiskistofnana, enda synda
þeir óáreittir inn og út úr landhelginni .
Ákvæðið um þjóðareign á fiskistofnum í
lögum um stjórnun fiskveiða hefur enga
eignarréttarlega merkingu, sem þó allmargir
þingmanna vinstri stjórnarinnar virðast
halda . Ákvæðið var sett til að tryggja rétt
íslenzka ríkisins gagnvart útlendingum og
til að stjórna sókninni í stofnana .
Veiðiheimildir útgerðarmanna jafngilda
ekki eign heldur nýtingarrétti og hafa hjálp-
að þeim til að fjárfesta í atvinnutækjum
fyrir þessa nýtingu, enda er auðlindin
einskis virði fyrr en hún hefur verið nýtt og
til þess þarf fjármagn . Í núverandi fisk veiði-
stjórnunarkerfi felst árangursrík blanda
sam félagslegrar stjórnunar á auð linda nýt-
ingu og athafnafrelsis .
Kjörfyrirkomulag fiskveiðistjórnunar er
það, sem eykur þjóðarhag mest, þ .e . gefur
af sér mestan arð á hvert kg aflans til sam-
félagsins . Það er næsta víst, að kerfi, sem
gefur af sér mest til þeirra, sem sækja sjóinn
og eiga atvinnutækin, gefur af sér hæstu
skatttekjurnar í sjóði sveitarfélaganna og
ríkisins, þegar allt er upp talið, með venju-
legri skattheimtu og án sérsköttunar á formi
hins ósanngjarna veiðigjalds .
Ef unnt verður með óyggjandi hætti að
sýna fram á, að eitthvert annað fyrirkomulag
en frjálst markaðskerfi með opinberri
ákvörðun veiðihlutdeildar á skip á grundvelli
vísindalegrar fiskveiðistjórnunar, skili meiri
auði til almennings, þá er auðvitað einboðið
að taka upp slíkt kerfi .
Valkosturinn við þetta stýrða markaðs-
kerfi er tilviljanakennd inngrip stjórnmála-
manna með pottum, byggðakvótum,
strand veiði og annarri skerðingu aflahlut-
deildar á mark aði . Það er nú þegar komin
næg reynsla af þessum inngripum og ætti
að fela Hagfræði stofnun Háskóla Íslands að
gera saman burð á þjóðhagslegri hagkvæmni
frelsis og téðra afskipta . Að mati höfundar
er þó engum blöðum um það að fletta, að
af nota réttar fyrir komulag veiðihlutdeildar
inn an marka vísindalegrar ákvörðunar
veiði heim ilda er þjóðhagslega hagkvæmasta
fram tíðarfyrir komu lag á nýtingu hinna lif-
andi sjávar auðlinda í lögsögu Íslands .
Með auknum veiðiheimildum með upp-
bygg ingu stofnanna í íslenzku lögsög unni,
enn auknum gæðum og verðhækk un um
vegna minnkandi heimsafla af völdum of-
nýt ingar og mengunar, má með bjartsýni
búast við útflutningstekjum sjávarútvegs
árið 2020 allt að 60% hærri en árið 2011
eða 400 milljarðar kr . að núvirði .
Í slenzki landbúnaðurinn býr við einka-eignarrétt á landi og frjálst framsal
fram leiðslukvóta . Framleiðslutakmarkanir
hafa knúið fram gæðaaukningu og fram-
leiðniaukningu, svo að segja má, að bú-
skapar hættir hafi tekið stakkaskiptum .
Fram leiðni landbúnaðarins á öllum sviðum
V eiðiheimildir útgerðarmanna jafngilda ekki eign heldur
nýtingarrétti og hafa hjálpað þeim
til að fjárfesta í atvinnutækjum fyrir
þessa nýtingu, enda er auðlindin
einskis virði fyrr en hún hefur verið
nýtt og til þess þarf fjármagn . Í
núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi
felst árangursrík blanda
samfélagslegrar stjórnunar á
auðlindanýtingu og athafnafrelsis .