Þjóðmál - 01.09.2012, Page 57

Þjóðmál - 01.09.2012, Page 57
56 Þjóðmál haust 2012 ef ekki á verulega illa að fara . Með góðu skipulagi, stíga- og slóðagerð ásamt eftirliti, má lík lega skammlaust taka við einni milljón er lendra ferðamanna á ári, en þegar yfir 900 .000 verður komið ætti að stemma stigu við fjöldanum með aukinni gjaldtöku og meiri áherzlu á ferðamenn, sem fúsir eru til að greiða um 50 .000 kr . á dag á mann í heild . Gætu þá gjaldeyristekjur landsins af ferða þjónustu numið um 300 milljörðum kr . árið 2020 að núvirði . Orkukræfur iðnaður hófst í raun með áburðarverksmiðjunni í Gufunesi um 1950, en þó ekki að ráði fyrr en með lögum frá Alþingi árið 1965 um Landsvirkjun, sem falið var það hlutverk að semja um heildsölu raforku við erlend stórfyrirtæki og afla í kjölfarið umsaminnar orku, í upphafi með vatnsaflsvirkjun við Búrfell . Árið 1966 voru síðan samþykkt lög frá Alþingi um Íslenzka Álfélagið hf . í Straumsvík eftir mikla orrahríð, þar sem sameignarsinnar fóru mikinn, og nefndi forkólfur þeirra, Einar Olgeirsson, Straumsvík m .a . „hausa- skeljastað“! Rússneski kommúnista flokk- urinn mun hafa talið vestrænar fjárfestingar á Íslandi andstæðar hagsmunum komm- únista á Íslandi í kalda stríðinu . Eftir það hafa vinstri öflin í landinu ekki mátt heyra minnzt á erlendar fjárfestingar og í raun lagt stóriðjuna í einelti . Stóriðjan í landinu hefur verið frá upphafi og er enn stjórnmálalegt bitbein milli frelsisunnandi framfaraafla og haftasækinna afturhalds- afla . E .t .v . stafar þetta af því, að eigendur stóriðjufyrirtækjanna eru öflug hlutafélög án ríkisaðildar og flest með bækistöðvar vestan hafs . Afturhaldsöflin hafa löngum haft horn í síðu „auðvaldsins“, þó að þessi félög þess hafi fallið mjög vel að íslenzkum aðstæðum . Á síðustu árum er mengun viðbáran, en sú viðbára hefur algerlega gengið sér til húðar . Í Straumsvík mælist t .d . varla vottur af mengun frá álverinu í gróðri í grennd, og í lífríki sjávar úti fyrir strönd álverslóðar - inn ar vottar vart fyrir mengun . Þetta er stað fest af virtum innlendum vísindamönn- um á þessum sviðum . Í bígerð er að reisa nýjar ker reyks hreinsi stöðvar í Straums vík til að mæta aukinni framleiðslu . Er þar um gríðar lega fjárfestingu að ræða til meng un- ar varna . Koltvíildislosun íslenzkra álvera er ein sú alminnsta, sem þekkist í heiminum, mæld sem kg/t Al, og ISAL (álverið í Straumsvík) er sum árin með minnstu CO2-losun á kg áls allra álvera í heiminum . Þetta sýnir, að starfsmenn íslenzku álveranna hafa náð svo góðum tökum á starfseminni, að árangur þeirra er á heimsmælikvarða . Samkvæmt óbrenglaðri Rammaáætlun er næg hagkvæm orka með lágt verndargildi fyrir hendi í landinu til að auka framleiðslu áls á Íslandi um eina milljón tonna, og yrði þó nóg eftir til annarra nota, svo sem rafgreiningar á vatni til eldsneytisfram- leiðslu og hleðslu rafbíla . Við beizlun jarðvarmans til vinnslu raf- orku hefur undanfarin ár verið farið fram Á síðustu árum er mengun viðbáran, en sú viðbára hefur algerlega gengið sér til húðar . Í Straumsvík mælist t .d . varla vottur af mengun frá álverinu í gróðri í grennd, og í lífríki sjávar úti fyrir strönd álverslóðarinnar vottar vart fyrir mengun . Þetta er staðfest af virtum innlendum vísindamönnum á þessum sviðum .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.