Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 61
60 Þjóðmál haust 2012
varð til ólögleg starfsemi kuklara, skottu-
lækna og einnig alvörulækna, sem tóku að
sér fóstureyðingar á laun fyrir ærið fé . Þessi
starfsemi var eðli sínu samkvæmt eftirlits-
laus og ábyrgðarlaus og afleiðingarnar lentu
á konunum af fullum þunga . Sótt hreins-
un og hreinlæti var ófullkomið . Sýking og
dauði gat fylgt í kjölfarið .
Þegar fóstureyðingar voru leyfðar með
lögum nr . 25 árið 1975 gjörbreyttist þetta .
Í lögunum var tekið fram:
14 . gr .: „Sjálfri aðgerðinni skal hagað
eftir fyllstu viðurkenndum kröfum læknis-
fræðinnar til tryggingar því að konum verði
sem minnst um aðgerðina . Sama gildir og
um allan búnað er aðgerðin fer fram .“
15 . gr .: „Einungis læknar mega fram-
kvæma fóstureyðingu . Fóstureyðingu má
aðeins framkvæma í sjúkrahúsum . . .“
29 . gr .: „Sjúkratryggingar almannatrygg-
inga greiða sjúkrakostnað vegna fóst ur eyð-
inga . . .“
Með þessum lögum var fúskurum og lög-
brjótum rutt út af sviðinu og konum tryggð
besta læknisþjónusta sem völ var á, öryggi,
hreinlæti og ábyrgur aðili .
Vegna þess að aðgerðin er konum að
kostnaðarlausu eiga engir aðrir en ríkið
möguleika á að koma nálægt þessum málum .
Ríkisvaldið náði fullkomnu taumhaldi á
þeim .
Skiptar skoðanir eru um fóstureyð ingar
en að áliti þeirra sem þeim eru fylgj andi
hefur þessi framgangsmáti tekist vel .
Markaðslegar lausnir
R íkið þarf að ná algjörum yfirráðum yfir verslun með fíkniefni . Við það
geta markaðslegar lausnir hjálpað .
Hin viðurkennda aðferð til þess er sam-
keppni þar sem þú selur ódýrar en keppi-
nauturinn og ýtir honum út af mark-
aðinum .
Ríkið verður sjálft að selja þessi efni
ódýrt, jafnvel afhenda neytandanum þau að
kostnaðarlausu svo að engir aðrir geti keppt
við það eða haft hag eða áhuga á því .
Með því hefur ríkið náð valdi á þessum
málum, sem er mikil framför mið að við það
ófremdarástand sem nú ríkir .
Þegar ríkið er komið með fíkniefnin í
sínar hendur getur það sjálft sett reglurnar
og skilyrðin til að koma þessum málum í
betri farveg .
Neytandinn, sem fær efni ókeypis í stað
þess að láta glæpamenn kúga út úr sér fé ,
hlýtur að vera tilbúinn að lúta ýmsum skil-
yrðum, t .d . að leita sér lækninga og neyta
efnis ins á staðnum . Fjárhagur neytandans
myndi lagast og hann gæti fremur beitt
kröftum sínum til að koma lagi á eigið
líf . Hægt verður að skrá setja neytendur og
fylgjast betur með þeim .
R íkið þarf að ná algjörum yfirráðum yfir verslun með
fíkni efni . Við það geta markaðs legar
lausnir hjálpað . Hin viður kennda
aðferð til þess er samkeppni þar sem
þú selur ódýrar en keppi nautur inn
og ýtir honum út af mark að inum .
Ríkið verður sjálft að selja þessi efni
ódýrt, jafnvel afhenda neytand anum
þau að kostnaðarlausu, svo að engir
aðrir geti keppt við það eða haft hag
eða áhuga á því . Á þennan hátt er
ríkið komið með þessi mál í sínar
hendur, sem er mikil framför miðað
við það ófremdarástand sem nú
ríkir .