Þjóðmál - 01.09.2012, Side 64
Þjóðmál haust 2012 63
Svein bjarnar dótt ur umhverfisráðherra um
tvöfalt umhverfis mat sem eyðilagði allar
vonir Hús víkinga um álver á Bakka . Ríkis-
stjórnin hefur eftir fremsta megni reynt að
leggja stein í götu uppbyggingar í Helguvík .
Svona mætti lengi telja .
Ímínum huga er lykillinn að sigri Sjálf-stæðis flokksins í næstu kosningum að
leggja til hliðar pólitísk gæluverkefni upp
á miljarða sem engu skila og hafa engin
áhrif á almenna velferð íbúa landsins . Lofa
skal íbúum þessa lands að vörður verði
staðinn um grunnstoðir samfélagsins, að
ekki verði skorið meira niður í löggæslu
eða heilbrigðisþjónustu . Þess í stað skuli
hagræða í rekstri utanríkisþjónustunnar og
miljarðaaustri í ESB-aðlögunarferlið hætt,
svo að eitthvað sé nefnt .
Sjálfstæðisflokkurinn á að setja á odd-inn að ná sáttum við atvinnulífið í
landinu — að boða það að hann muni
vinna með fyrirtækjum og starfsmönnum
þeirra að því að gera rekstrarumhverfi
þeirra samkeppnishæfara — en ekki vera
í heilögu stríði við hverja atvinnugreinina
á fætur annarri, sbr . sjávarútveginn og
ferðaþjónustuna . Með öflugu atvinnulífi
eykst hagvöxtur, kaup máttur hækkar,
atvinnu leysi minnkar og skattar lækka .
Þannig stuðlar Sjálf stæðis flokkurinn að því
að hagur heimilanna í landinu vænkast,
bjart sýni landsmanna vex og tækifæri
skapast .
Sjálfstæðisflokkurinn á að vera í farar-broddi að boða stefnu sem byggir
á þessum þáttum . Hann á að byggja á
jákvæðri, uppbyggilegri og skynsamlegri
stefnu sem gefur fólki von og þá trú að betra
verði að búa á Íslandi á komandi árum en
í Noregi .
Við sjálfstæðisfólk eigum að ganga í fararbroddi og segja Gróu á Leiti
stríð á hendur — við eigum að stuðla að
því að tiltrú fólks á stjórnmálamönnum
og Alþingi Íslendinga, því elsta í heimi,
aukist . Við gerum það með því að hefja
stjórn málaumræðuna upp úr forarsvaðinu
og sýna þjóðinni að Sjálfstæðisflokkurinn
er það hreyfiafl í íslenskum stjórnmálum
sem eflir lífskjör almennings og nýtir auð-
lind ir landsins á skynsamlegan hátt fyrir
nú ver andi og komandi kynslóðir þessa
lands .
S jálfstæðisflokkurinn á að setja á oddinn að ná sáttum við
atvinnulífið í landinu — að boða
það að hann muni vinna með
fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra
að því að gera rekstrarumhverfi
þeirra samkeppnishæfara — en
ekki vera í heilögu stríði við
hverja atvinnugreinina á fætur
annarri, sbr . sjávarútveginn og
ferðaþjónustuna . Með öflugu
atvinnulífi eykst hagvöxtur,
kaupmáttur hækkar, atvinnuleysi
minnkar og skattar lækka . Þannig
stuðlar Sjálfstæðisflokkurinn að
því að hagur heimilanna í landinu
vænkast, bjartsýni landsmanna vex
og tækifæri skapast .