Þjóðmál - 01.09.2012, Page 67
66 Þjóðmál haust 2012
áhættu fíkn ykist þegar það kostaði lítið að
taka áhættu .
Eilífðarvélin: uppgjör við nýfrjálshyggj
una er nafn á bók vinstrimanna um frjáls -
hyggju og kapítalisma, en Hannes stakk
upp á fyrirlestraröð sem bæri nafnið „Frelsi
til að vaxa og þroskast: uppgjör við sósíal-
ism ann“ . Hann sagði sósíalismann halda
aftur af fólki og koma í veg fyrir að það geti
dafnað eftir eigin lögmálum .
Fjórða málefnið, sem Hannes vill setja á
dagskrá, er afleiðingar alræðisstefna nasisma
og kommúnisma, en á 20 . öld féllu á annað
hundrað milljón manna af völdum þeirra .
Hann telur mikilvægara að halda á lofti
glæpum kommúnismans, því að hann
hafi ekki lagst á minni mannkynsins sem
helstefna með sama hætti og nasisminn hafi
gert . Hannes hyggst halda ráðstefnu um
glæpi kommúnismans og nýjasta bók hans
er einmitt Íslenskir kommúnistar 1918–
1998, sem hefur almennt fengið góðar
viðtökur, enda fróðleg og lipur aflestrar .
Hannes sagði að fólk mætti ekki gleyma
að hálfgerð gullöld hafi ríkt á Vesturlöndum
frá falli Ráðstjórnarríkjanna, þegar ótti við
kjarnaodda og ógnarstjórn vofði ekki lengur
yfir, og til ársins 2008 . Segja má að leiðarstef
í ræðu hans hafi einmitt verið sjónarhorn
sagnfræðingsins, sem vill líta vítt yfir sviðið
og missa ekki sjónar á því sem mestu máli
skiptir . Og það var einmitt af slíkri víðsýni
sem Hannes mælti í lok ræðu sinnar, að hver
og einn hægrimaður ætti að sinna sínum
hugðarefnum eftir sínu höfði, gera það sem
hann teldi skynsamlegast og að þegar skeiðið
væri fullnað gæti hann eins og í hinni helgu
bók sagt við sjálfan sig, óháð því hvort að
árangur hefði nást eða ekki, að hann hefði
barist hinni góðu baráttu (vísunin er í síðara
bréf Páls til Tímóteusar 4:7) .
Gunnlaugur Jónsson tók næstur til máls . Hann er höfundur Ábyrgðar
kvers, rits um bankahrunið og lærdóminn
um ábyrgð, sem kom út fyrr á þessu ári .
Gunn laugur hefur lengi verið mikilvirkur
í grasrótar starfi frjálshyggjumanna og situr
meðal annars í fræðaráði Ludwig von Mises-
stofnunar innar á Íslandi .
Ræða Gunnlaugs var afhjúpandi og tæpi-
tungulaus . Hann hóf mál sitt með því að
benda á tækifærið sem fólgið er í ólgusjó
bankahrunsins og fjármálakreppunnar:
Kastljósið beinist að meintum sökudólg,
frjálshyggjunni, og því fá frjálshyggjumenn
tækifæri til að útskýra sjónarmið sín .
Gunnlaugur sýndi fundargestum málverk
eftir listamanninn Þránd Þórarinsson, sem
er á bókarkápu Ábyrgðarkversins . Málverkið
er af eldfjallinu Heklu, sem er nýbúið
að gjósa og dreifa ösku yfir nærliggjandi
landsvæði . En upp úr öskunni brýst lítið
blóm, sem táknar nýja von eftir hamfarirnar,
að lærdómur sé dreginn af því sem fór
úrskeiðis og að neikvæðir hlutir geti þannig
af sér jákvæða hluti .
Lærdómurinn af hruninu, að mati Gunn-
laugs, er ekki sá sem hefur verið áberandi
í umræðunni og heyrðist strax nóttina sem
Glitnir féll, það er að segja að frjálsræði
sé slæmt og að frjálshyggjan sé jafnvel
Hannes fullyrti að heims-kreppan væri ekki kapítal-
ismanum að kenna, heldur
miklu frekar ríkisafskiptum og
fjármálatækni, sem menn réðu
ekki við . „Þegar ríkið tekur ábyrgð
á einhverju þá er afleiðingin
ábyrgðarleysi,“ sagði hann og bætti
við að áhættufíkn ykist þegar það
kostaði lítið að taka áhættu .