Þjóðmál - 01.09.2012, Side 76

Þjóðmál - 01.09.2012, Side 76
 Þjóðmál haust 2012 75 legum fróðleik um 19 . öldina, lífið í Reykjavík og Kaupmannahöfn . Og hér koma fram alveg nýjar upplýsingar um eitt við kvæmasta málið tengt minningu Jóns Sig urðs sonar sjálfs . Margrét gerir semsagt að umtalsefni fræg veikindi Jóns forseta árið 1840 sem slúðursögurnar — og einnig fræðimenn á síðustu árum — kenndu við sárasótt eða sýfilis . Hún sýnir fram á það að einu heimildirnar um málið, lýsingar Jóns sjálfs á einkennum sjúkdómsins, passi ekki við að um sárasótt hafi verið að ræða . Vitnar hún í Elías Ólafsson lækni og prófessor sem staðfestir þetta og telur að um hafi verið að ræða kvilla sem enn í dag er algengur meðal ungra karla . Ingibjörg er að mínu mati í heild sinni stórmerkileg og stórskemmtileg bók . Eftir lesturinn fáum við aðra mynd af „forseta- frúnni“ en ríkjandi hefur verið fram að þessu, og sumu leyti einnig af Jóni forseta . Hér stígur Ingibjörg fram sem sjálfstæður ein staklingur; áhugaverð kona, mæt, vel- vilj uð og virðuleg . Margrét Gunnarsdóttir segir frá Ingibjörgu á göngu á vegum Árbæjar- safns, 17 . júní 2011, um slóðir Ingibjargar í Reykjavík .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.