Þjóðmál - 01.09.2012, Qupperneq 85
84 Þjóðmál haust 2012
til stjórnmála . Hann studdi Hannes
Hafstein og Heimastjórnarflokk hans
fram til 1918 . Hann segist ekki hafa treyst
Framsóknarflokknum eða stjórn hans „er
byrjaði með stjettarhatri, hóflausri fjár-
eyðslu úr ríkissjóði og mörgum öðrum
ófagnaði, sem enn þá viðhelst og oflangt
yrði hjer upp að telja,“ segir Kolbeinn 1935 .
Þá segir hann:
1924 sá alt Alþingi að fjárstjórn ríkis-
sjóðs ins var komin í óskaplega óreyðu .
Og Jón Þorláksson hafði sýnt og sannað
þinginu, að skuldir ríkissjóðsins væru
orðnar um 18 milljónir króna . Myndaðist
þá flokkur, er nefndi sig Íhaldsflokkur og
hafði þá stefnu: að minnka skuldirnar og
helst stefna að því takmarki að ríkissjóður
gæti orðið skuldlaus, svo að hann gæti
notað mikinn meiri hluta af tekjum
sínum til aðkallandi nauðsynlegra og
arðberandi fyrirtækja og framfara bæði á
sjó og landi .
Kolbeinn segist hafa aðhyllst stjórn þessa
flokks en hún hafi aðeins lifað í fjögur ár,
1924 til 1927, þegar hún með Jón Þorláks-
son, „hinn glöggasta og virkasta fjármála-
mann í broddi fylkingar“ hafi orðið að segja af
sér völdum . Jónas frá Hriflu og Tryggvi Þór-
halls son hafi ráðist á stjórnina með al röngum
sakar giftum og einnig á nafn Íhalds flokksins .
„Til þess að ske mætti að kjósendum líkaði
betur, breytti Íhaldsflokkurinn nafni sínu í
nafnið Sjálfstæðisflokkur,“ segir Kol beinn,
birtir stefnuskrá Sjálfstæðisflokks ins frá 1929
og segir:
Þessum flokki hef jeg fylgt með atkvæði
mínu á kjörfundum og fylgi meðan lifi og
hann brýtur ekki þessa stefnuskrá . — Alla
aðra stjórnmálaflokka, sem nú eru hjer á
landi — og sem allir eru stjettarflokkar og
um leið niðurrifsflokkar — fyrirlít ég .
Hann segir að flokkarnir sem hafi verið
við völd frá 1927 (til 1935) hafi unnið og
séu enn að vinna ósleitilega að ósjálfstæði
Íslands:
. . . með gegndarlausri fjársóun úr ríkis-
sjóðnum óstjórnlegum skuldafjötrum
lántökum [ . . .] auk annars ófagnaðar
sem núverandi stjórn og stjórnarflokkar
(Fram sókn og sósíalistar) hafa í frammi
til kúgunar og niðurdreps í þessu litla
þjóð félagi, svo sem: Stór-aukna skatta,
stór-aukna tolla, einokun og ríkisrekstur
atvinnu veganna o .s .frv ., jafnvel hótanir
(commun ista og sósíalista) um ofbeldi, ef
ekki fer allt að vilja þessara niðurrifsflokka
Kolbeinn Jakobsson í Dal .