Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 15

Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 15
14 Þjóðmál VETUR 2012 ingu og metnaði“, þvert á móti sætir með- ferð málsins mikilli gagnrýni utan þings sem innan . Lærðir menn á sviði lögfræði og stjórn- málafræði keppast við að flytja varnaðarorð vegna málsmeðferðarinnar sem þeir telja forkastanlega og stangast á við allt sem kenna megi við „virðingu og metnað“ . Eftir að skýrsla rannsóknarnefndar alþingis um hrun fjármálakerfisins birtist setti þingið á fót nefnd þingmanna til að skoða skýrsluna og leggja mat á hana með hag alþingis í fyrirrúmi . Í áliti nefndarinnar sagði meðal annars: Alþingi á að vera vettvangur umræðu sem tekur mið af almannahagsmunum . Góð stjórnmálaumræða næst fram með því að láta andstæð sjónarmið mætast þar sem byggt er á staðreyndum og málin eru krufin til mergjar . Íslensk stjórnmál hafa ekki náð að þroskast nægilega í samræmi við það . Stjórnmálaumræður á Alþingi hafa einkennst um of af kappræðum og átökum og því þarf að efla góða rökræðusiði á Alþingi . Mikilvægt er að Al þingi ræki umræðuhlutverk sitt og sé vett vangur lýðræðislegra og málefnalegra skoðana skipta . Þegar stjórnarskráin sjálf er til meðferðar er þessi ábending þingmanna sjálfra að engu höfð . Öllum frestum og skilyrðum er hagað á þann veg að ætlunin er aug- ljóslega að hefta umræður og setja mál- efnalegum skoðanaskiptum skorður . Hug- ur stjórnarþingmanna til umræðna í þing- salnum birtist best á spjöldunum, MÁL- ÞÓF, sem Björn Valur Gíslason (VG) og Lúðvík Geirsson (SF) báru fram fyrir sjón- varps áhorfendur þegar Illugi Gunn arsson (S) talaði um fjárlagafrumvarpið að kvöldi 30 . nóvember 2012 . IV . Ekkert bólar á tillögum stjórnarflokk-anna um afnám gjaldeyrishaftanna . Þeir munu ekki flytja neinar tillögur í þá veru . Samfylkingarfólk vill að höftin gildi svo að það geti notað þau sem rök fyrir aðild að ESB . Eina leiðin til að losna við höftin sé að ganga í ESB . Vinstri-grænir vilja halda í höftin af því að þau eru angi á ofríkisstefnu VG í efnahagsmálum . Þau gefa stjórnmálamönnum færi á að hlutast til um málefni fyrirtækja og setja þeim stólinn fyrir dyrnar sem eru stjórnvöldum ekki að skapi . Steingrímur J . Sigfússon telur sig ekki aðeins hafa hag af að halda í gjaldeyrishöftin heldur vill hann viðhalda sem mestri leynd yfir eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum . Hann lætur eins og frumvarp um að aflétta þessari leynd sé í smíðum en augljóst er þar er enn einu sinni eitthvað á ferðinni til að blekkja kjósendur í aðdraganda kosninga . Ekkert er gefið upp um hvert skuli stefnt með nýjum lagaákvæðum . Jóhanna Sigurðardóttir svarar gagnrýni á hvernig staðið er að uppgjöri og nauða- samningum við kröfuhafa Glitnis og Kaup- þings á þann veg að Már Guðmundsson seðlabankastjóri hafi málið í hendi sér . Seðlabankinn fari með reglugerðarvald varðandi útstreymi gjaldeyris . Bankinn bíði eftir að nauðasamningar klárist, þá muni hann grípa til sinna ráðstafana . „Ég held því að seðlabankinn hafi fullt vald á stöðunni og muni gæta þess að útstreymið hafi ekki neikvæð áhrif á stöðugleika og gæta þjóðhagsvarúðar,“ sagði Jóhanna á alþingi 15 . nóvember 2012 . Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, taldi hins vegar varasamt að treysta jafnmikið á seðla bankann og forsætisráðherra vildi gera . Bankinn hefði misreiknað sig um 800 milljarða króna við mat á erlendri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.