Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 37
36 Þjóðmál VETUR 2012
sölum . Í ljósi greiningarinnar að
framan telur rannsóknarnefndin ljóst
að það sé verulega óheppilegt að banki
eða fjármálastofnun sé viðskiptavaki
með eigin hlutabréf og þá ekki síst
þegar þeir eru einnig lánveitendur í
tengdum viðskiptum .“ (Páll Hreinsson
o .fl ., 2010c, bls . 65 .) Rannsóknarnefnd
Alþingis segir annars staðar í skýrslu
sinni um lán til eignarhaldsfélaga: „Hin
mikla hlutdeild eignarhaldsfélaga er
athyglisverð . Lán til eignar haldsfélaga
eru ekki tryggð með traustum rekstri
heldur eru verðbréf uppistaðan í
eignum þeirra, oft hlutabréf . Líta má
svo á að lán til eignarhaldsfélags, sem
á hlutabréf í tilteknu hlutafélagi, sé
svipað víkjandi láni til hlutafélagsins .
Þetta er vegna þess að ef umrætt
hlutafélag lendir í erfið leikum eru
það lánardrottnar félags sem fá fyrst
greitt en síðan hluthafar og þar með
lánardrottnar eignarhaldsfélagsins .
Mark aðs áhætta vegna undirliggjandi
eigna eignarhaldsfélags sem lánað er
til er því mikil nema eignasafn eignar-
haldsfélagsins sé mjög vel dreift eða að
félagið sé mjög sterkt með hátt eigin-
fjárhlutfall . Lágt eiginfjárhlutfall og
hærra hlutfall óáþreifanlegra eigna
fyrir tækja eru meðal þeirra þátta sem
spá með tölfræðilega marktækum
hætti fyrir um lágt innheimtuhlutfall
lána .“(Páll Hreinsson o .fl ., 2010a, bls .
95 .) Það kom einnig fram í yfirheyrslum
fyrir dómi í máli nr . E-4033/2008 í
Héraðs dómi Reykjavíkur, Vilhjálmur
Bjarna son gegn stjórnarmönnum
Glitnis banka hf ., að tilgangurinn með
kaupum á hlutabréfum af fráfarandi
bankastjóra hafi verið að koma í veg
fyrir að hluta bréfin færu á almennan
markað, sem myndi valda verðlækkun .
Fjármálaeftirlit og Seðlabanki•
Þessar stofnanir treystu endurskoð un-o
ar skýrslum, sem voru áritaðar af al -
þjóð legum endurskoð unar fyrir tækj um,
en Fjármálaeftirlitið virðist ekki hafa
stundað vettvangseftirlit með full nægj-
andi hætti . Eftirfarandi tilvitnun er þó
að finna í skýrslu rannsóknar nefnd-
ar Alþingis: „Glitni hélst mjög illa á
reglu vörðum sínum og mannaskipti
voru tíð . „Það var svona djókað með
þetta að sá sem væri síðastur í vinnuna
fengi regluvörslutitilinn,“ segir Kristinn
Arnar Stefánsson, regluvörður Glitnis,
en hann hóf störf þar 2007 eftir að hafa
starfað hjá Fjármálaeftirlitinu og síðan
við regluvörslu í Landsbankanum . Þegar
hann kom til starfa hjá Glitni hafði
Fjármálaeftirlitið tekið út regluvörsluna
í Glitni og gefið henni falleinkunn en
þar segir meðal annars: „Hvað snertir
regluvörslu eru gerðar athugasemdir
við nær alla þætti er voru teknir til
skoðunar í úttekt Fjármálaeftirlitsins .
Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins er sú
að framkvæmd regluvörslu sé verulega
ábótavant .“ Þá eru gerðar margvíslegar
athugasemdir við einkabankaþjónustu
bankans, eignastýringu, utanumhald
kvartana, að starfsmenn noti farsíma
til að tala við viðskiptamenn, svo dæmi
séu nefnd . Þegar skýrslan er lesin er í
raun með ólíkindum að verið sé að lýsa
alþjóðlegum banka með starfsleyfi .“(Páll
Hreins son, o .fl ., 2010c, bls . 52 .) Sam-
kvæmt skýrslu RNA verður ekki séð að
þessari athugasemd hafi verið fylgt eftir .
Hvenær varð
siðrof fullkomnað?
Eins og rakið hefur verið hér að fram an urðu umskipti á íslenskum fjár mála-
markaði með hlutafélagavæðingu ríkis-