Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 30
Þjóðmál VETUR 2012 29
bæði þeirra sem láta þeim fjármuni í té
og þeirra sem fá þá að láni . Að því er
þá fyrrnefndu varðar hafa þeir sjaldnast
mikla möguleika á að fylgjast með því
eða afla upplýsinga um hvernig banki eða
fjármálafyrirtæki ráðstafa fjármun um, sem
þau hafa tekið við sem innláni eða feng-
ið að láni . Sparifjáreigandi, sem leggur fé
inn í banka, er að veita honum lán . Það
lán er án trygginga, en sparifjáreigandinn
verður að mega treysta því að bankinn
taki fullgildar tryggingar fyrir ráðstöfun
fjár hans í útlánastarfsemi sinni .
Fjármálafyrirtæki í víðasta skilningi,
þ .e . bankar, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki,
tryggingafélög og lífeyrissjóðir, eru einingar,
sem tengjast almannahagsmunum . Í lög um
um endurskoðendur, nr . 79/2008, eru gerð-
ar sérstakar kröfur um óhæði endur skoð -
enda slíkra eininga . Að auki lúta þessar ein -
ingar sérstöku eftirliti Fjármálaeftirlitsins .
Hér á landi er enn í gildi að lögum til-
skipun frá 9 . febrúar 1798, þ .e . „Tilskipun
um áritun afborgana á skuldabréf“ til að
bæta réttaröryggi í lánaviðskiptum . Þetta
er hluti af aldagamalli hefð og fellur vel
að hugmyndum Durkheim, að áliti félags-
fræðinga . Einnig er vert að nefna að meðal
elstu gildandi laga, sem hafa verulega þýð-
ingu í einkaréttarlegum samningum, eru
lög um víxla og lög um tékka, nr . 93 og nr .
94/1934, hvor tveggja byggð á sambærilegri
lög gjöf á Norðurlöndum á sínum tíma . Bæði
þessi form fjármálagerninga lúta ströngum
form skilyrðum samkvæmt þessum lögum
og öll dóma framkvæmd, þar sem byggt er
á þess um lögum, tekur mið af hinu stranga
formi .
Á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins eru tald-
ir upp þrjátíu lagabálkar, sem gilda um
fjár málamarkaðinn, sá elsti frá 1991 . Flest
þessara laga eru innleiðingar á tilskipunum
Evrópu sambandsins samkvæmt EES-samn-
ingi, þ .e . lög nr . 2/1993 . Inn í upp taln-
ingu FME vantar þó hlutafélagalögin, nr .
2/1995, það að fjármálafyrirtæki skuli rekin
sem hlutafélög og réttarreglur hlutafélaga
skuli gilda um sparisjóði, sem ekki eru
reknir sem hlutafélög . Það vekur athygli
að hæstiréttur hefur aðeins níu sinnum á
1. mynd. Innlán í innlánsstofnunum (Seðlabanki Íslands, 2008a) .