Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 11
10 Þjóðmál VETUR 2012
aði málþóf . Hann gerði þó ekki annað en
fara að þingskapalögum . Allar umræður eru
eitur í beinum stjórnarþingmanna .
Í stefnuræðu sinni 12 . september 2012
sagði Jóhanna Sigurðardóttir:
Það er mat mitt að verði ekki breyting
á vinnubrögðum hér á Alþingi þá stefni
í óefni . Um þetta hljótum við að vera
sammála hér í þessum sal, óháð því
hvaða stjórnmálaflokki við tilheyrum .
Við eigum því að sameinast um að bæta
vinnu brögðin .
Ég hef átt samtöl við forystumenn þeirra
flokka sem sitja á Alþingi um þessi mál og
verður þeim haldið áfram . Vonandi getur
það leitt til þess að þinghaldið í vetur verði
með öðrum brag en á liðnum þingum .
Ekki er meira að marka þessi orð for-
sætisráðherra en önnur . Hvorki heyrist
hósti né stuna frá Jóhönnu þegar stjórnar-
þingmenn ganga gegn virðingu alþingis á
þann hátt sem hér er lýst eða á enn verri
hátt þegar litið er til vinnubragða við
endurskoðun stjórnarskrárinnar .
Í stefnuræðu sinni lagði Jóhanna Sig-
urð ardóttir áherslu á að gjaldmiðlamálin
og gjaldeyrishöftin yrðu meðal mikil-
væg ustu viðfangsefna næstu mánaða og
missera . Auðlindamálin yrðu „einnig í
brenni depli á komandi þingvetri“ með
róttækum breytingum á fiskveiðikerfinu .
Rammaáætlun um vernd og nýtingu
náttúrusvæða yrði einnig að afgreiða og
víkja „stóriðjueinstefnu“ til hliðar fyrir
atvinnustefnu „sjálfbærs græns hagkerfis“ .
Þá boðaði forsætisráðherra nauðsyn þess að
setja þjóðinni nýja stjórnarskrá og baki öllu
býr síðan ESB-aðildarumsóknin, höfuðmál
Samfylkingarinnar .
Þegar hvert þessara mála er skoðað
kemur í ljós að engar líkur eru á að nokkru
þeirra verði lokið á alþingi fyrir kosningar
í apríl 2013 . Öllum er í raun fyrir bestu
að meðferð þessara mála undir forystu
Jóhönnu Sigurðardóttur ljúki strax með
þingrofi og nýjum kosningum .
II .
Fyrir kosningar 2009 voru forystu-menn SF og VG líklega í góðri trú um
að yrði sótt um aðild að ESB sumarið 2009
mundi aðildarferlinu ljúka á kjörtíma bil-
inu . Greitt yrði þjóðaratkvæði um niður-
stöðu viðræðnanna í síðasta lagi fyrir áramót
2012 og málið yrði að baki sem flokkspóli-
tískt ágreiningsefni í kosningum í apríllok
eða byrjun maí 2013 .
Sérfræðingar SF töluðu á þann veg fyrir
kosningar í apríl 2009 og Olli Rehn, þá-
ver andi stækkunarstjóri ESB, auk Carls
Bildts, utanríkisráðherra Svía, ýttu undir þá
skoðun að Íslendingar ættu hraðferð fyrir
höndum inn í ESB . Þetta hefur allt reynst
rangt . Í byrjun desember 2012 hefur 21
viðræðukafli af 33 verið opnaður, allt eru
það kaflar sem voru í raun opin bók vegna
EES-aðildarinnar í upphafi aðildarviðræðn-
anna . Ekkert hefur þar komið á óvart .
Hins vegar sýnist koma íslenskum ráð-
herr um og fylgismönnum þeirra á alþingi
á óvart að ekki skuli hafnar viðræður við þá
um „erfiðu kaflana“, landbúnaðarmál og
sjávarútvegsmál . Steingrímur J . Sigfússon
varð ekki fyrr orðinn sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra en hann fór (25 . janúar
2012) til Brussel til að hnykkja á nauðsyn
þess að hefja sem fyrst hinar „eiginlegu
viðræður“, það er um fisk og landbúnað .
Vandi Steingríms J . er hins vegar sá á
heimavelli að hann ræður ekki við að móta
afstöðu Íslands í viðræðunum við ESB
þegar kemur að landbúnaðarmálum . Í um
hálft ár hefur verið tekist á um orðalag í
afstöðu Íslands þegar rætt er um viðskipti
„Töfrandi“
– New York Times
Einstaklega læsileg og stórfróðleg bók um mesta skáksnilling sögunnar
sem tengdist Íslandi óvenjulegum böndum.
„Skemmtileg og spennandi ... Mozart taflborðsins er óaðgreinanlegur frá skrímsli
ofsóknarkenndrar sjálfselsku í þessari hrífandi ævisögu ...“
– Publishers WeeklyUgla