Þjóðmál - 01.12.2012, Blaðsíða 71
70 Þjóðmál VETUR 2012
Lækningin
Og ef siðmenning er að úrkynjast er aðeins til ein lækning: Að styrkja
dóm greind, heilbrigða skynsemi og
hæfni borgaranna til að hugsa og tjá sig .
Með því að rækta og efla tjáningarfrelsi,
mennt un, upplýsingu og siðmenningu .
Og þar getur allt skipt máli . Meira að
segja athugasemdakerfi Netsins . Og ein-
mitt þess vegna hóf ég að leggja mitt af
mörkum til að veita innblástur á þeim
vett vangi . Til að stinga á illkynja æxlum .
Til að rífa illgresi upp með rótum . Og til
að berjast fyrir hugsjónum lýðræðisins og
réttar ríkisins .
Því mér ofbauð að horfa upp á ástand
þjóð félagsins á árunum þremur eftir hrun-
ið . Ég sá sífellt fleiri illkynja æxli vaxa og
sífellt fleiri illgresi sjúga alla næringu úr
jarðvegi réttarríkisins . Ekki síst núverandi
stjórnvöld . Og ég áttaði mig á því að mér
bar skylda til að leggja mitt af mörkum .
Því að þannig er hin vestræna siðmenning
okkar . Þannig er réttarríkið . Og þannig
er lýðræðið . Allir þurfa að taka þátt . Líka
ég .
Og þess vegna ákvað ég að nenna að taka
þátt . Að nenna að leggja mitt af mörkum til
að snúa við óheillaþróun sem mér sýndist
nálgast sturlunarástand sem bjó til alveg
nýja tegund af lýðskrumurum sem virtust
farnir að vaxa eins og púkar á flestöllum
fjósbitum þjóðfélagsins . Og á sama tíma og
ég skildi að ég þyrfti bæði að beita sömu
aðferðum og hákarlar beita á hákarla og
sömu aðferðum og lömb beita á lömb —
þá vissi ég líka að slíkt var aðeins tæki til að
örva upplýsinguna . Og ég fór að skrifa bæði
athugasemdir og pistla í athugasemdakerfið
eftir áratuga fikt við greinarskrif í dagblöð .
Því ég hugsaði með mér að þannig er frelsið .
Og þannig hefur frelsið alltaf verið . Þ .e . að
skapa og gera eitthvað nýtt .
Og þannig finnur tjáningarfrelsið sér
alltaf leið eins og súrefnið . Og þess vegna
eru tækniframfarir á sviði tjáskipta og
samskipta svo örlagaríkar . Því þær breyta
samfélögum . Þær breyta heiminum . Þær
gefa þeim sem þögðu rödd . Og þær tryggja
þeirri rödd útbreiðslu . Alveg eins og nýja
samskiptabyltingin, sem opnar á tengsl
almennings til að eiga samskipti á nýjan og
áður óþekktan hátt .
Sókrates talaði á torgum . Jesús talaði
krjúpandi við fætur fátæklinga . Og núna
nýtir almenningur í lýðræðisríki nútímans
sér tækifæri samskiptabyltingarinnar til að
tjá sig samstundis í athugasemdakerfum
Netsins . Því skoðun skrifuð á stein er
ekkert merkilegri en skoðun skrifuð á
rafrænt form . Ekki heldur skoðun skrifuð
á skinn, í innbundna bók eða í dagblað .
Því það sem mestu máli skiptir er ekki
hvar skoðunin birtist — heldur hve
skýrt og skorinort hún er skrifuð — og
hve vel rökstudd hún er . Og einmitt þess
vegna getur athuga semdakerfi Netsins
eflt og styrkt siðmenninguna, réttarríkið
og lýðræðið — ef þeir sem berjast fyrir
þessu þrennu aðeins nenna að taka þátt
í að reyta upp illgresið í þessum jarðvegi
frelsisins .
S ókrates talaði á torgum . Jesús talaði krjúpandi
við fætur fátæklinga . Og
núna nýtir almenningur í
lýðræðisríki nútímans sér
tækifæri samskiptabyltingarinnar
til að tjá sig samstundis í
athugasemdakerfum Netsins .