Þjóðmál - 01.12.2012, Page 39
38 Þjóðmál VETUR 2012
Stærsti hluthafi Landsbankans á þessum
tíma, Samson eignarhaldsfélag ehf ., og
tengdir aðilar, voru meðal þeirra sem
voru innifaldir í þeim 10,41%, sem
Landsbankinn kvaðst hafa umboð til að fara
með . Landsbankinn og aðaleigandi hans
voru þannig í sameiginlegu eignarhaldi á
Hf . Eimskipafélagi Íslands .
Í IV . kafla í lögum nr . 161/2002 um
fjár málafyrirtæki er fjallað um starfs heim-
ild ir fjármálafyrirtækja . Í 20 . gr . laganna
er fjallað um starfsheimildirnar í 14 tölu-
liðum og nokkrum stafliðum að auki .
Allir lýsa þeir eðlilegri fjármálastarfsemi .
Alls kemur orðið áhætta 55 sinnum fyrir í
lögunum um fjármálafyrirtæki í einhverju
samhengi, eins og lögin voru eftir margar
breytingar, árið 2008 . Með því er lögð
áhersla á áhættustýringu fjármála fyrir-
tækja og takmörkun á áhættu þeirra . Fjár-
málafyrirtæki reyna að sneiða hjá rekstrar-
áhættu viðskipavina sinna .
Í 22 . gr . laganna er fjallað um fullnustu
vegna vanskila viðskiptaaðila:
Tímabundin starfsemi og yfirtaka eigna .
Við skiptabönkum, sparisjóðum og lána-
fyrir tækjum er því aðeins heimilt að
stunda aðra starfsemi en þá sem um getur
í þessum kafla að það sé tímabundið og í
þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að
endurskipuleggja starfsemi við skiptaaðila .
Sem fyrr segir var Landsbanki Íslands hf .
viðskiptabanki Eimskipafélagsins í sept-
ember 2003 og hafði svo verið allt frá því
Eim skipafélagið var stofnað árið 1914 .
Samband viðskiptabanka og viðskiptavinar
er trúnaðarsamband . Því má líkja við
trúnaðarsamband prests og sóknarbarns, en
það samband er óskráð, eða trúnaðarsam-
band læknis og sjúklings, en það trúnaðar-
samband er skráð í eiði Hippokratesar .
Aðkoma Landsbanka Íslands hf . að kaup-
um á hlutabréfum í Hf . Eimskipafé lagi
Íslands var brot á lögum og reglum:
Á skráðum reglum í lögum um fjár -•
mála fyrirtæki með því að túlka „end-
ur skipulagningu“ í 22 . gr . laga um
fjármála fyrirtæki með þeim hætti að
um væri að ræða almenna endur skipu-
lagningu fyrirtækisins en ekki að for-
sendan fyrir aðkomu bankans væri
fulln usta vegna vanskila .
Á óskráðum reglum um trúnaðar-•
samband banka og viðskiptavina, þar
sem Landsbankinn notfærði sér trún-
aðarupplýsingar viðskiptabankans um
viðskiptavininn .
Að auki er rétt að líta til jafn ræðis-•
reglna hlutafélagalaga við skoð un á sam-
komulaginu frá 28 . september 2003, því
það voru örfáir hlut hafar í félögunum,
sem áttu hlut, sem tóku ákvarðanir um
ráðstöfun eigna félaganna til að tryggja
einkahagsmuni sína .
Þessi sömu sjónarmið má finna í tveim-
ur skýrslum og álitsgerðum Sam keppnis-
eftirlitsins:
Ákvarðanir banka og stjórnvalda um •
framtíð fyrirtækja á sam keppnis mörk-
uðum (Sam keppnis eftirlitið, 2008) .
Álit nr . 3/2008, dags . 12 . nóv emb er
2008 .
Endurreisn íslenskra fyrirtækja . Afla-•
klær eða uppvakningar, skýrsla . Rit
3/2012 (Samkeppniseftirlitið, 2012) .
Höfundur þessarar greinar var hluthafi í
Hf . Eimskipafélagi Íslands þegar umrædd
viðskipti áttu sér stað . Höfundur leitaði til
FME í kjölfar viðskiptanna og setti fram þau
sjónarmið sem koma fram hér að framan .
FME gerði ekkert með þær athugasemdir .
Höfundi er kunnugt um að stjórnar-