Þjóðmál - 01.12.2012, Page 94

Þjóðmál - 01.12.2012, Page 94
 Þjóðmál VETUR 2012 93 verkamannsins . Að þeir hafi hagnýtt sér verkamanninn og eignað sér þann virðisauka, sem verkamaðurinn skap aði .* Ayn Rand spyr: Hvað gerist, ef þessir menn draga sig út úr samfélaginu? Ef þeim ofbýður? Skoðum hver kemur þá hverjum að mestu gagni? Undirstaðan gefur les- anda oft déjà vu-til finn- ingu: Var ég ekki að lesa um þetta sama í blaðinu í gær! Hér eru engir draug- ar, geim verur né upp- vakningar — en fram- vindan er skelfileg, ekki síst vegna þess að við erum að upplifa hana í þessum skrif uðum orðum . Aðalsöguhetjan Dagný Taggart er um þrítugt og verkfræðingur að mennt . Hún er einnig eigandi, framkvæmdastjóri og þriðja kynslóð í Taggart Transcontinental . Dagný er snjall stjórnandi, með yfirsýn og ábyrgðartilfinningu, en höft valdhafa, ónefndur tilgangur og ótilgreint siðgæði gera henni æ erfiðara að finna hæfa menn til vinnu: Hvaða vopn voru tiltæk, hugsaði hún, í heimi þar sem skynsemi var ekki lengur vopn? Þetta var heimur sem hún gat ekki stigið inn í . Hún gat ekki lifað við að þurfa að fylgja reglunni: Þegiðu — haltu þér á mottunni — hægðu á þér — gerðu ekki þitt besta, þess er ekki óskað! (Undirstaðan, s . 301 .) Henry Rearden er frumkvöðull og upp- finn ingamaður . Rearden sér fyrir allri fjöl- * Samkvæmt hagfræðikenningum Karls Marx . skyldu sinni, en er forsmáður og einskis met inn heima fyrir . Philip Rearden bróðir hans og James Taggart bróðir Dagnýjar eru tákn hinna „nýju“ tíma — iðjuleysingjar sem lifa á vinnu annarra, eru afætur . Þeir og fleiri svipaðar sögupersónur eru dæmigerður „veikleiki“ viðkomandi lands, því vitanlega er þessa manngerð hvarvetna að finna . Sumir vilja kenna póst-módernisma um þessa óværu, en hann var ekki kominn til þegar Ayn samdi þessa bók . Þarna er fremur um að ræða vissan veikleika í rótunum, sem erfitt er að festa fingur á hvort er í eðli viðkomandi eða uppeldi . Heimspekilegar spurn- ingar verksins eru meðal annars: Hvert er hlutverk nýsköp unar í samfélaginu? Hver er hvati þeirra sem starfa að nýsköpun og þróun? Hvaða aðstæður og kjör þurfa að vera til staðar til þess að þeir geti stundað vinnu sína? Og hvað verður um heiminn, þegar þeir hverfa? Rökvilla Karls Marx Undirstaðan spyr einnig: Hver er siðferði leg staða iðnjöfursins og kaupsýslumanns ins? Svar Ayn er að maðurinn fæðist inn í veröld þar sem hann þarf sjálfur að hafa fyrir því að skapa þau verðmæti sem eru honum nauðsyn til þess að lifa af . Lífið snúist um að framleiða verðmæti, sem eru ekki bara til staðar af sjálfu sér, heldur þarf að skapa . Og framleiðsla verðmæta er fyrst og fremst vits munalegt ferli, en ekki spurning um vinnu stundir verkamanna, eins og Karl Marx boðaði . Ayn Rand heldur því fram, að stað-

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.