Skólavarðan - 01.12.2015, Blaðsíða 22
22 DESEMBER 2015
KRAKKAR BESTIR Í AÐ TOGA
AÐRA KRAKKA AÐ LESTRI
Hvetja þarf krakka til að lesa bækur og kveikja þarf áhugann snemma á lífsleiðinni. Þetta er meðal
markmiða Barnabókaseturs Íslands þar sem Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur stendur við stýrið.
Barnabókasetur efnir til Siljunnar, myndbandakeppni um bækur, í öllum grunnskólum landsins í vetur.
„Við getum fengið börn til að lesa og það er
hægt að vekja lestraráhugann en það kostar
tíma, fé og fyrirhöfn,“ segir Brynhildur
Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent við
Háskólann á Akureyri. Brynhildur er líka
ein þeirra sem leiða starf Barnabókaseturs
Íslands sem er staðsett á Akureyri.
„Barnabókasetrið var stofnað árið 2012
í kjölfar mikillar umræðu um minnkandi
lestur barna og unglinga. Þá tóku Háskólinn
á Akureyri, Amtsbókasafnið og Minjasafnið
á Akureyri sig saman ásamt Rithöfunda-
sambandinu, Síung, Ibby og Félagi fagfólks
á skólabókasöfnum og bjuggu til batterí sem
ætlað er að vinna að rannsóknum á barna-
bókum og lestri barna, en fyrst og fremst að
hvatningu til lestrar,“ segir Brynhildur.
Forvígismenn Barnabókasetursins
hafa að sögn Brynhildar ekki setið auðum
höndum; efnt hefur verið til málþinga,
haldnar ráðstefnur og upplestrarstundir
fyrir fjölskyldur. „Við höfum líka unnið að
varanlegum verkefnum og má þar t.d. nefna
„járnbækurnar“ sem er að finna hér í miðbæ
Akureyrar. Hátt í þrjátíu barnabækur prýða
ljósastaura þannig að hægt er að lesa eina
opnu úr hverri bók. Bækurnar eru frá ýms-
um tímabilum, eftir konur og karla, sumar
þekktar og aðrar ekki. Með þessu viljum við
hvetja fjölskyldur til að sameina útivist og
lestur með nýstárlegum hætti. Þetta hefur
virkað alveg þrælvel,“ segir Brynhildur.
Barnabókasetur hefur líka staðið fyrir
farandsýningu sem ætlað er að kveikja
áhuga foreldra á að lesa barnabækur, rifja
upp sínar uppáhaldsbækur úr æsku og búa
til notalega lestrarstemningu heima fyrir.
„Lestraráhuginn byrjar heima og sýningunni
er ætlað að styðja við það. Það er gaman að
segja frá því að þegar sýningin var fyrst sett
upp í Amtsbókasafninu þá fann starfs-
fólkið þar áþreifanlega fyrir meiri aðsókn
í barnadeildina. Fólk var að koma með
barnabörnin og við náðum að brúa kyn-
slóðabilið svolítið. Ég held að þetta sé leiðin
að börnunum; jákvæð nálgun í gegnum
foreldra og vini í stað þess að hvatning til
lestrar komi alltaf ofan frá. Lesturinn á ekki
að vera „bara“ verkefni skólanna heldur er
ákjósanlegt að við vekjum upp lestrargleði
með samverustundum fjölskyldunnar. Það
má segja að við séum að rífa lesturinn út
úr því sem þú gerir einn úti í horni, lestur
er ekki endilega einkamál. Við getum setið
saman og lesið með börnunum, farið út að
lesa eða talað saman um bækur.“
Krakkar vilja umræður um bækur
Brynhildur segir þá sem hafa stundað
rannsóknir á barnabókum og lestrarvenjum
barna hafa komist að því að íslenskir
krakkar séu ekki mjög góðir þegar kemur að
því að tala um það sem þeir lesa.
Brynhildur Þórarinsdóttir leiðir starf Barnabókasetursins
á Akureyri auk þess að kenna í kennaradeild Háskólans á
Akureyri. Hún hefur getið sér gott orð sem barnabókahöf-
undur og hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin árið 2007
fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu. Þá fékk hún Íslensku
barnabókaverðlaunin árið 2004 fyrir Leyndardóm ljónsins.