Félagsbréf - 01.06.1961, Síða 26
24
FÉLAGSBRÉF
Melville sjálfur var að fást við í hinu mikla verki sínu. Komið hefur
fram sú skýring á sögu Nathaniels Hawthornes Greftrun Roger Malvins,
að Reuben Bourne sé þar að „ganga af táknrænni sjálfsmynd sinni dauðriN
og virðist þetta einnig geta fengið staðizt sem skýring með nútíðar orð'i-
lagi á sögu, sem er sálfræðileg í eðli sínu, enda liggur það í augum uppi,
að höfundurinn hefur verið sér þess fyllilega meðvitandi. Sú gagnrýni,
sem byggir á kenningum Freuds, hefur verið mikils verð í sambandi
við að beina athygli manna að og útðkýra fyrir þeim þau frumtákn, sem
fyrir koma í bókmenntum okkar, og enda þótt sjálf skáldin og rithöf-
undarnir virðist stundum nota þessi frumtákn óafvitandi og þau séu kannski
ekki fyllilega skilin af lesandanum, þá mynda þau eigi að síður mikilvægan
hluta þeirrar menningar, sem við höfum fengið að erfðum, og leggja
þannig sinn skerf til gildis sumra merkilegra bókmenntaverka. Að þessu
leyti hefur gagnrýni byggð á sálfræðilegum kenningum Freuds reynzt
gagnleg.
En ekki má missa sjónar af þeirri staðreynd, að slíkar athuganir og bolla-
leggingar eru aðeins hliðstæður eða jafnvel viðbótaratriði, sem ekki skipta
höfuðmáli. Manni verður á að spyrja, hvers vegna lesandinn þurfi að vita
um sálarkvalir höfundarins til jtess að geta notið og jafnvel til J)ess að
geta „skilið“ verk hans. Slíkar upplýsingar eru oft á tíðum hrein auka-
atriði og kjarna málsins óviðkomandi ■— jafn óviðkomandi og viðleitni
eldri gagnrýnenda (sem nýgagnrýnendurnir fyrirlíta) lil þess að „útskýra“
listaverk á grundvelli samanburðar við frumheimildir, ef þær ])á eru fyrir
hendi, eða með því að bera verkið saman við þann efnivið, sem höfund-
urinn hefur leitað til og stuðzt við. Hver veit, hvort móðir Hómers hefur
afneitað honum? Og hver hefur áhyggjur af því, hvort Shakespeare hafi
leitazt eftir félagsskaj) ungra pilla? Getur það verið, að þær upplýsingar,
sem nýlega hafa verið birtar um kynvillu skáldsins, sem orti ljóðið A Shrop-
shire Lad, breyti nokkru um listrænt gildi þeirra ljóða, sem við höfum
notið í sakleysi okkar undanfarin sextíu ár? Er væntanlegur kaupandi
að perlu nauðbeygður til þess að huga að uppruna hennar í patólógisku
ástandi ostrunnar? Það er að sjálfsögðu mjög fróðlegt — jafnvel hríf-
andi — að þekkja sögu snilldarverksins niður í kjölinn, en það er ekki
nauðsynlegt, fremur en vel nærðum manni er nauðsynlegt að vera ser-
fræðingur í efnagreiningu meltingarfæranna.
Hvers konar sálfræðilegar skýringar á listaverkum, hverju nafni sem