Félagsbréf - 01.12.1961, Blaðsíða 15
FÉLAGSBRÉF
13
fagnað af andstœðingunum. En menningarforusta kommúnista-
flokksins þarf einnig sinna muna með. Þar hefur Kristinn Andrés-
son borið frá upphafi hita og þu?iga dagsins, og með persónulegri
lagni, góðri greind og staðgóðri þekkingu á ýmsum mannlegum
hvötum, hefur honum oft orðið vel ágengt, einkum með því að
ánetja sér unga menntamenn og rithöfunda, enda var sú tiðin,
þó að nú sé hún liðin, að dálítið nudd utan i kommúnistaflokkinn
gat sem prýðilegast komið þeim i stað gáfna og hœfileika. Haft er
fyrir satt, að Sigfús Daðason skáld eigi senn að taka við þessari
menningarforustu eftir Kristin, og sýnir það enn betur, hve litlu
mannvali flokkurinn hefur á að skipa.
Það er oft liaft á orði, að islenzka rikið hafi gœtt sin miður en
skyldi fyrir landráðastarfi kommúnista á undanförnum árum og
jafnvel eflt þá til áhrifa þar sem verst gegndi, svo sem i skólum,
rikisútvarpi og margs konar öðrum opinberum stofnunum. Það
er vitanlega sjálfgert mál eins og ástatt er í heiminum, að kommún-
istar verði eftirleiðis sneyddir slikum trúnaði, enda væri það hálf-
andkanalegt að leita fulltingis annarra rikja gegn þeirri hœttu,
sem vér ýmist létum afskiptalausa heima fyrir eða œlum beinlinis
á að nauðalausu. Þar með er samt ekki allur vandinn leystur. Þjóð-
félagið þarf allra sinna starfskrafta með, og nú, þegar hvað úr
hverju sér fyrir algera upplausn i málaliði kommúnista, verður það
eitt af úrlausnarefnum þjóðfélagsins, hvernig takast megi að hasla
þessum vandrœðamönnum völl, þar sem þeir geti unnið þjóð sinni
gagn i stað þess að bregða fæti fyrir hana eins og þeir hafa áður
reynt að gera.
Seinkun þcssa Iicfáis Félagrwbréfa
Þetta hefti Félagsbréfa er á ferðinni um það bil tveimur mánuð-
um siðar en ætlað hafði verið. Gætir þessa að ýmsu leyti i efni
heftisins. Eru félagsmenn vinsamlegast beðnir afsökunar á seink-
uninni, sem stafar eingöngu af hinu mikla jólaannriki i prent-
smiðjunni.