Félagsbréf - 01.12.1961, Síða 57

Félagsbréf - 01.12.1961, Síða 57
FÉLAGSBRÉF 51 hugmyndum „konstruktivista“ ýtarleg skil. Hann afneitar eftirlíkingum á klassískum, barokskum, býzönskum stíl, svo og allri eftiröpun á bygg- ingarmáta endurreisnartímabilsins, sem Stalín og hans menn höfðu svo miklar mætur á. Meinið var, að menn gerðu sér rangar hugmyndir um, hvernig sósíalistum bæri að teikna hús. Sem betur fer hugsa menn ekki svona lengur. Vlassoff fagnar þeim skilningi, sem stjórnarvöldin sýna þeim arkitektum, sem vilja almennt aukna vélvæðingu í byggingariðnaði. Það sem vakir fyrir þessum mönnum, er að koma byggingarmálum í það horf, að unnt verði að reisa samtímis mörg stór sambýlishús eða jafnvel heil bæjarhverfi. Vlassoff segir meðal annars: „Fegurðarskyn almennings verður að breytast, og það er okkar verk, að benda honum á þá fegurð, sem fólgin er í nytsamlegum hlutum. Hús okkar eiga að vera í senn ný- tízkuleg, þægileg og ódýr.“ Og Vlassoff vottar líka Le Corbusier virðingu sína og minnist um leið á Guinsbourg, Vesnín-bræðurna og Kúznetsoff, hina miklu sovézku arkitekta á árunum 1920—1930, sem gengu á undan með góðu fordæmi. Hann æskir þess líka að tilraunum arkitekta í Vestur- álfunni sé gefinn tilhlýðilegur gaumur.“ Vlassoff segir skýrt og skorinort, að úr því að ný og heilbrigðari stefna hafi verið tekin upp í sovézkri byggingarlist, verði slíkt hið sama að gerast í öðrum listgreinum. „Einn stíll ríkir,“ segir hann. „Sovézkur bygg- ingarstíl á að vera í fullu samræmi við myndlist, skreytingar, tónlist, hús- gagna- og klæðagerð.“ Vlassoff og vinir hans vænta þess, að þeim verði falið að gera uppdrætti •að stórhýsum þeim, sem stjórnarvöldin hafa í hyggju að reisa í stórborg- um leppríkjanna. Sömuleiðis vonast þeir til, að ekki verði fram hjá þeim gengið, þegar hafizt verður handa að hreinsa til í Moskvu, Leningrad og öðrum stórborgum. Hafi sovézkir myndlistarmenn dregizt aftur úr og virðist síður láta ber- ast með þeim fersku straumum, sem nú er veitt inn í andlegt líf þjóðar* innar, þá er það ekki nema stundarfyrirbæri. Og það stafar af engu öðru en því, að stjórnartaumarnir í félagi myndlistarmanna eru í höndum þeirra manna, sem enn aðhyllast akademíska liststefnu. En þeir eru á undanhaldi, og allt er smám saman að leysast úr læðingi. Þannig hefur t.d. Georg Niski, sem er í hópi vinsælustu málara, gengið í lið með nútímamálurum afturhaldsseggjum til stórhneykslunar. — I grein, sem birtist í blaðinu „Moskvu-œska“ og heitir „/ leit aS nýjum formum“ þá fordæmir liann

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.