Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 11
(„American Dreams") úr bókinni The Fat Man in History frá 1974. Þar
er fjallað um ástralskt þorp sem verður ferðamannafári að bráð með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Beverley Farmer (1941). Eftir hana er birt sagan „Maðurinn í
þvottahúsinu" („A Man in the Laundrette") úr hinu rómaða smá-
sagnasafni hennar Milk sem kom út árið 1983. Sagan fjallar um
ástralska konu sem lendir í hremmingum í þvottahúsi í Bandaríkjun-
um, en Farmer skrifar gjarnan um samskipti menningarheima.
Helen Garner (1942), virtur höfundur, en jafnframt umdeildur,
ekki síst vegna nýjustu bókar sinnar The First Stone (1995), sem fjallar
um kynferðislega áreitni og kvennabaráttuna. Garner vann til virtra
bókmenntaverðlauna fyrir skáldsöguna Monkey Grip (1977) sem var
jafnframt kvikmynduð. Sagan sem hér er þýdd, „Listamannslíf"
(„The Life of Art"), og er úr bókinni Postcard from Surfers (1985), er
víðræmd og umtöluð, þykir fjalla um kvennabaráttuna frá óvenjulegu
sjónarhorni.
Sumsé sittlítið af hverju, en þó hvorki sneiðmynd né sögulegt yfir-
lit. Sýnishorn öllu heldur, sem slökkva vonandi ekki þorsta fremur en
hið sólríka land í suðri. Þeim sem vilja fræðast frekar um ástralskar
bókmenntir bendi ég á grein mína „Andfætis og umhendis" í Tímariti
Máls og menningar, 3. hefti 1993.
Rúnar Helgi Vignisson
9