Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 67
fóru um allt með myndavélar og blokkir. Þeir tóku ljósmyndir af
okkur og af líkaninu uppi á Nöktuhæð. Og daginn eftir vorum við í
öllum blöðum. Ljósmyndirnar af styttunum við hliðina á myndum af
fyrirmyndunum. Og nöfnin okkar og aldur og hvað við gerðum, allt
stóð það þarna svart á hvítu.
Þeir tóku viðtal við frú Gleason en hún sagði ekkert markvert. Hún
sagði að maðurinn sinn hefði smíðað bæjarlíkanið í tómstundum
sínum.
Nú leið okkur vel. Það var mjög ánægjulegt að fá mynd af sér í
blöðunum. Og einu sinni enn skiptum við um skoðun á Gleason.
Bæjarstjórnin hélt annan fund og nefndi nialarveginn upp á Nöktu-
hæð „Gleasontröð". Síðan fórum við öll heim og biðum eftir Kön-
unum sem okkur hafði verið lofað.
Það leið ekki á löngu þangað til þeir birtust, þó að meðan við
biðum virtist það heil eilífð, og í sex langa mánuði gerðum við ekkert
annað en að bíða eftir Ameríkönunum.
Ja, þeir komu. Og ég skal segja ykkur hvernig þessu er öllu háttað
hjá okkur.
Kanarnir koma á hverjum degi í rútum og fólksbílum og stundum
koma þeir yngri með lestinni. Það er kominn lítill flugvöllur úti við
Parwankirkjugarðinn og þeir koma einnig fljúgandi, á litlum
flugvélum. Phonsey Joy ekur þeim í kirkjugarðinn þar sem þeir líta á
gröf Gleasons og síðan fer hann með þá upp á Nöktuhæð og því næst
niður í bæ. Hann hefur hagnast vel á þessu öllu. Það er gott að sjá
einhvern hagnast á þessu. Phonsey er að verða mikils metinn borgari
og er kominn í bæjarstjórn.
Á Nöktuhæð eru einir sex sjónaukar sem Kanarnir geta horft í og
njósnað um bæinn og fengið staðfestingu á því að þetta sé sami
bærinn og uppi á Nöktuhæð. Herb Gravney selur þeim rjómaís og
gosdrykki og fleiri filmur í myndavélarnar. Hann hefur líka gert það
gott. Hann keypti líkanið af frú Gleason og tekur fimm bandaríkjadali
í aðgangseyri. Herb er líka kominn í bæjarstjórn. Hann hefur það
mjög gott. Hann selur þeim filmurnar svo þeir geti tekið ljósmyndir af
húsunum og styttunum og farið síðan niður í bæ með sérútbúin kort
til að leita að fyrirmyndunum.
Satt að segja eru flest okkar orðin frekar leið á þessum leik. Þeir
65