Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 42

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 42
Og þau brunuðu gegnum skært ljósið, með dunum og dynkjum, farþegarýmið fullt af börnum með skollitt hár og ljóst hörund, hún varði þau yngstu með því að halda undir hnakkann á þeim, eins og hún hafði séð konur gera. Stundum var hún svo önnum kafin að hún gleymdi næstum Lum. Hann nam staðar öðru hverju og þá steig hún út úr bílnum til að þvo bleiurnar í volgu vatni, og hengja þær til þerris á trjágrein. „Öll þessi Ijóð og svona," sagði hann, „ég hef aldrei kynnst gáfna- ljósi áður." „En gáfað fólk er ekkert öðruvísi," bað hún, óttaðist að hann sætti sig ekki við skringilegheit hennar og mátt. Hér eftir skyldi hún fara skelfing varlega. Hún skynjaði að hún var eldri en Lum, þótt ekki væri að árum, en það var leyndarmál sem hann mætti aldrei komast að - þrátt fyrir allan þann styrk og alla þá fegurð sem hann bjó yfir, þá var hún og yrði alltaf að vera enn sterkari. „Hvað er þetta?" spurði hann, og kom við. En hann dró höndina að sér í sjálfsvörn. „Ör," sagði hún. „Eg skar mig þegar ég var að opna dós af mjólkur- þykkni." Aldrei slíku vant var hún fegin þessum föla saumi á freknóttu hörundinu, var að vona að hann yrði til þess að gréri yfir. Og hann horfði á hana með sínum hörðu bláu Whalleyaugum. Hann kunni vel við hana. Þó að hún væri ljót, og gáfuð, og stelpa. „Mjólkurþykkni ofan á brauð," sagði hann, „ég get borðað mig pakksaddan af því." „Ó, já!" samsinnti hún. Hún trúði því í raun og veru, þó að hún hefði aldrei hugsað út í það áður. Flugur röðuðu sér í óreglulegt svartgljáandi mynstur aftan á bestu flíkur. Enginn hafði lengur fyrir því að hrista þær af. Meðan Alf Herbert stundi við moksturinn þéttist rykið og fyrirheitin hrönnuðust upp. Þótt þeim hefði verið sagt að þau mættu búast við að Kristur veitti þeim endurlausn hefði það ekki verið síður óviðeigandi ef Hann hefði komið út úr runnanum til að fremja gjörning á ölturum úr 40

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.