Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 29

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 29
við þennan aflóga hrúðurkarl, hann Ossie, neðan af sýningasvæðinu. En hverjum stóð svo sem ekki á sama? Ollum, nema ættingjum hennar. Frú Hogben óaði við því að Ossie, sem var rómversk-kaþólskur í þokkabót, tæki sér stöðu við gröf Daise, jafnvel þótt enginn, jafnvel þótti enginn sæi til annar en herra Brickle. I hvert sinn sem Hogben bæjarfulltrúa varð hugsað til Ossie Coogans sneri hann hnífnum í sári mágkonu sinnar. Hver veit, ef til vill var hann því fegnastur núna að hún skyldi deyja. Daise Morrow var smágerð kona, smágerðari en konan hans, en stór í eðli sínu. Þegar hún leit inn var hún óðar komin út um allt hús. Talaði sér til óbóta ef maður gaf henni lausan tauminn. Þegar fram liðu stundir þoldi Les Hogben ekki að heyra hana hlæja. Þrýstist einu sinni upp að henni á ganginum. Hann var búinn að gleyma því, eða næstum því. Hvernig Daise hló þá. Ég er ekki svo karlmannsþurfi að ég taki mág minn á löpp. Þrýsti hann sér upp að henni? Ekki að marki, ekki að yfirlögðu ráði, að minnsta kosti. Þetta atvik hafði því fengið að fölna í minningu Hogbens bæjarfulltrúa, eins og brúni gólfdúkurinn á ganginum. „Síminn er að hringja, Leslie." Þetta var konan hans. „Ég get ekki svarað," sagði hún, „ég er í svo miklu uppnámi." Og fór að gráta. Hogben bæjarfulltrúi losaði um klofið á sér og fór fram á gang. Þetta var gamli góði Horrie Last. „Jaá...jaá..." sagði herra Hogben í símtólið sem konan hans fægði reglulega með viðarolíu. „Jaá...Ellefu, Horrie...frá Barranugli...frá Útfararþjónustu Jacksons... Jaá, það er almennilegt af þér, Horrie." „Horrie Last," tilkynnti Hogben bæjarfulltrúi konu sinni, „ætlar að láta sjá sig." Myrtle Hogben lét huggast við tilhugsunina um að annar bæjar- fulltrúi mætti til heiðurs Daise. Jafnvel þótt engir aðrir létu sjá sig. Hvað var til ráða? Horrie Last lagði frá sér símtólið. Þeir Les höfðu staðið saman. Sameinað krafta sína til að ná í framsæknustu kjósend- 27

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.