Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Síða 15

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Síða 15
láta af hendi það sem eftir var af hjörðinni og gerast rekstrarmaður á ný. Hann hyggst flytja fjölskylduna í næsta bæ þegar hann snýr aftur, en á meðan færir bróðir hans, sem á kofa við þjóðveginn, henni vistir einu sinni í mánuði. Konan heldur enn tvær kýr, einn hest og nokkrar kindur. Mágur hennar slátrar einni kind annað slagið, fær henni það sem hún þarf af henni, en heldur hinu upp í aðrar vistir. Hún er vön að vera ein. Einu sinni var hún ein í átján mánuði. Sem krakki reisti hún sams konar skýjaborgir og aðrir; en allar hinar ungæðislegu vonir hennar og væntingar eru fyrir löngu gufaðar upp. Þá örvun og afþreyingu sem hún þarfnast fær hún úr Kvennablaðinu og Guð sé henni næstur, hún hefur gaman af tískumyndunum. Maðurinn hennar er Astrali og það er hún líka. Hann er maður sem lætur skeika að sköpuðu, en er samt sæmilegasti eiginmaður. Ef hann hefði ráð á mundi hann fara með hana til borgarinnar og halda henni þar hús eins og prinsessu. Þau eru vön því að vera hvort í sínu lagi, hún að minnsta kosti. „Þýðir ekkert að kvarta," segir hún. Hann kann að gleyma því stöku sinnum að hann er kvæntur; en ef hann kemur til baka með álitlega ávísun er næsta víst að hann fær henni obbann af fjárhæðinni. Þegar hann átti peninga bauð hann henni nokkrum sinnum til borgarinnar - leigði svefnklefa í lestinni, og hýsti hana á bestu hótelunum. Hann keypti líka handa henni hestakerru, en hana urðu þau að láta af hendi ásamt öðru. Yngstu börnin tvö fæddust í óbyggðunum - annað meðan eigin- maður hennar var að reyna að drösla til hennar drukknum lækni. Hún var ein í það skipti, og afar máttfarin. Hún hafði verið með hita- vellu. Hún bað Guð að senda sér aðstoð. Guð sendi Svörtu Maríu - „hvítasta" ginið í landinu. Eða öllu heldur, Guð sendi „Jimmy kóng" fyrst og síðan Svörtu Maríu. Hann stakk svörtu höfðinu í gættina, sá strax hvers kyns var, og sagði glaðlega: „Allt í lagi, frú - ég sæki hana gömlu mína, hún er niðri við lækinn." Hún var ein þegar eitt barnanna dó. Hún reið nítján mílur eftir aðstoð, með dána barnið í fanginu. Klukkan hlýtur að vera langt gengin í tvö. Eldurinn er nánast kulnaður. Krókódíll liggur með höfuðið fram á loppurnar, og horfir til veggjar. Hann er ekkert augnayndi, og í Ijósinu blasir við margt 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.