Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 39

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Side 39
„Helst vildi ég vera í félagi við Darkie," sagði hann, „þegar ég fæ minn eigin trukk. Darkie er besti vinur minn." Með langdregnum vantrúarskjálfta horfði hún á dökkar hendurn- ar, litlu svörtu hárin ofan á fingrunum. „Hver veit," sagði hún, feimnislega, „kannski kemur að því," sagði hún. Á gröfunum í kring stóðu brún blómin í krukkum með enn brúnna vatni. Plastvendirnir voru með meiri yfirþunga og þeim hafði vestanvindurinn feykt um koll, en þau höfðu ekki orðið verr úti en svo að þau lágu í svolítilli óreiðu á harðbrjósta graníthellunum. Hitinn varð til þess að Last bæjarfulltrúi geispaði. Hann fór að lesa nöfnin á bautasteinunum, þau sem voru í sjónmáli að minnsta kosti, sumum þeirra hafði hann rétt að segja gleymt. Einu sinni var hann næstum farinn að hlæja. Ef hinir dauðu hefðu getað sest upp í kistum sínum hefði eflaust slegið í brýnu. „í hringiðu lífsins verður dauðinn á vegi okkar," sagði presturinn. JACK CUNNINGHAM ÁSTKÆR EIGINMAÐUR FLORENCE MARY las Horrie Last. Hver hefði trúað því að Cunningham, sem var keikur sem eik, mundi detta á leiðinni upp stíginn til Daise Morrow. Horrie var vanur að fylgjast með þeim þar sem þau sátu á veröndinni áður en þau fóru inn að borða. Þau voru ekkert að fara í launkofa með það, enda vissu þetta allir. Hann var vel tenntur hann Cunningham. Alltaf í hvítri stífstraujaðri skyrtu. Hvor kvennanna skyldi hafa þvegið af honum? Florence Mary var sögð vera öryrki. Daise Morrow naut þess að hlæja með karlmönnum, en handa Jack Cunningham átti hún þögn. Sú þögn var fyrirheit um nánd sem Horrie Last gat einungis getið sér til um, en hans einkalíf hafði að mestu farið fram í svartamyrkri. Jesús minn, og svo var það Ossie. Innst inni hlaut konan að hafa verið áður óþekkt tegund af öfugugga. 37

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.