Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 71

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.07.1997, Page 71
„Þetta eru bara ský," segir hún. „Klukkan er bara rétt orðin þrjú." „Samt. Af hverju í dag? Laugardag." „Af hverju ekki? Þetta er síðasta skyrtan þín." „Þetta eru aðallega föt af mér, býst ég við." Þannig er það alltaf. Hún þvær sín föt í baðherbergisvaskinum og hengir þau á rörin. Hann hefur aldrei fett fingur út í það; en hún hefur heldur aldrei spurt. Hann ypptir öxlum. „Þú ratar ekkert allt of vel. Það er allt og sumt." „Víst! Nógu vel til að fara út í þvottahús." „Jæja. Allt í lagi þá. Ertu með númerið hjá Fred?" Hún kinkar kolli. Fred, sem býr á hæðinni fyrir ofan, er eini maðurinn í húsinu með síma og hann er orðinn hundleiður á að kalla nágranna sína í símann. Hún hefur einu sinni hringt í númerið hjá Fred. Hún stendur upp án þess að klára úr bollanum. „Jæja þá. En farðu varlega." Hann sest við borðið og snýr baki í hana og dyrnar og rúmið sitt, en þar sefur hún núna á nóttunni, ligg- ur með handlegginn yfir augunum, kaldan og stífan, sleginn fölva Ijóssins, á meðan hann vinnur fram eftir. Nú andvarpar hann og kveikir á lampanum, heldur kaffinu upp að honum með báðum höndum og horfir á gufuna tæjast. Hún lokar dyrunum hljóðlega. Það er þegar búið að kveikja ljós undir grænum dyraskyggnum fjölbýlishúsanna. Þetta eru gömul þriggja hæða hús, þakin rauðum bergfléttum. Gömul álmtré sem standa við götuna hans skarta gyllt- um laufum og iða af kvikum íkornum - loftið er tært í lauffallinu. Það litla sem eftir var af fyrsta snjó vetrarins er nú bráðnað. Þegar hún kemur niður tröppurnar feykir kaldur vindgustur laufum yfir hana og ískaldir regndropar stinga hana í kinnar. Vindurinn feykir henni og þessum afkáralega poka hennar fyrir hornið, undir brúna, yfir hver ókræsileg gatnamótin af öðrum niður eftir strípuðu strætinu. Leiðin í þvottahúsið virðist óeðlilega löng. Er hún að villast? Nei, þarna sér hún það loks á næsta horni: Bar og þvottahús. Það fer skjálfti um hana þar sem hún skellir á eftir sér glerhurðinni og hreiðrar um sig í hlýrri gufunni og dyninum og lítur í kringum sig. Hér er venju fremur margt um manninn. Laugardagur er anna- dagur, hún hefði átt að geta sagt sér það. Alvöruþrungin svertingja- 69

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.