Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 4
Hér yrkir Sigurður um grundvallaratriði
lífsins: jörð, eld, loft og vatn, en líka raddir
og skugga, ljós og myrkur, hvítar nætur
og heilaga gleði. Ljóð muna rödd er ein
persónulegasta og áhrifamesta ljóðabók
sem Sigurður Pálsson hefur sent frá sér.
ÍSLENSKU
BÓKMENNTAVERÐLAUNIN
T I L N E F N I N G A R 2 0 1 6
Steinþór Pálsson
bankastjóri Lands-
bankans
og bankaráð
bankans náðu
samkomulagi
um að hann hætti
störfum hjá bank
anum.
Ríkisendurskoðun sendi nýlega
frá sér skýrslu þar sem kom fram
hörð gagnrýni á eignasölu Lands
bankans á árunum 2010 til 2016.
Bankinn hefur mikið verið gagn
rýndur vegna sölu eignarhlutar í
Borgun. Steinþór fær greidd eins
árs laun samkvæmt starfsloka
samningi.
Kristinn Gylfi
Jónsson
einn eigenda
Brúneggja
sagði að á einum
degi hefðu allir við
skiptavinir fyrirtækisins sagt sig
frá viðskiptum við það. Það var í
kjölfar umfjöllunar Kastljóss um
slæman aðbúnað varphænanna.
Merkingar á vöruninni voru þess
efnis að dýrunum liði vel. Eggin
voru á grundvelli þess á hærra
verði.
Kristinn sagði bréf einnig
hafa borist frá almenningi sem
kvaðst hafa verið blekktur og á
honum brotið.
Hrönn Björg-
vinsdóttir
sjálfboðaliði
Rauða krossins
er meðal þeirra
sem kennt hafa sýr
lenskum flóttamönnum á Akureyri
íslensku í frítíma sínum.
Hrönn hefur í rúman mánuð hitt
sýrlenska konu á kvöldin og segir
þær hittast til skiptis heima hjá
hvor annarri. Hrönn segir þær hafa
tengst vel og vera orðnar ágætis
vinkonur.
Þrjú í fréttum
Bankastjóri,
Brúnegg og
vinátta
Tölur vikunnar 27.11.2016 - 03.12.2016
2.400
skákstig hefur Vignir
Vatnar Stefánsson
tryggt sér – yngstur
íslenskra skákmanna.
3
milljarðar að
minnsta kosti
hafa runnið til
rannsókna á
Drekasvæðinu.
3.800
tonn af eggjum voru
framleidd af íslenskum
fyrirtækjum í fyrra.
800
íbúðir munu rísa
á Kársnesi í Kópa-
vogi í framtíðinni.
35
alvarleg atvik
hafa verið til-
kynnt af heil-
brigðisstofn-
unum í ár – þar
af 28 dauðsföll.
60%
hækkun verður á stöðumælasektum hjá
borginni eftir áramót – fer í 4.000 krónur.
nýir þingmenn fengu
greidd tvöföld laun um
þessi mánaðamót.32
240%
aukning
var á sölu
raftækja
á svörtum
fössara.
nÁTTÚra Haustið er það langhlýj
asta frá upphafi samfelldra mælinga
sé tekið mið af landinu öllu. Á Akur
eyri og víðar er haustið það hlýjasta
en það næsthlýjasta sem vitað er um
í Reykjavík.
Það er tvennt sem skýrir þessi
hlýindi, að því er Trausti Jónsson,
sérfræðingur í veðurfarsrannsókn
um, greinir frá.
„Það hefur verið geysilega mikil
sunnanátt sem er hluti af einhverju
tilviljanakenndu. Svo hjálpar það
líka til að þegar norðanáttir hafa
komið hafa þær verið óvenjuhlýjar.
Frostið hefur ekki verið jafnmikið
og tíðkast í norðanáttum og það
tengist óvenjulitlum hafís á norður
slóðum.“
Sérlega hlýtt var á Austfjörðum
á dögunum og komst hitinn í rúm
20 stig.
„Hlýja loftið er komið langt
sunnan úr höfum og leggst dálítið
yfir kalda loftið þegar það kemur
norður fyrir vegna þess að það er
léttara. Þar sem er hvasst nær hlýja
loftið til jarðar. Þá getur hitinn
orðið óskaplega hár eins og var fyrir
austan á dögunum.“
Sé vindur hægur þar sem kalt og
bjart hefur verið í nokkra daga þá
hreyfist kalda loftið ekki þótt mjög
hlýtt sé kannski á fjöllum fyrir ofan,
að því er Trausti bendir á.
Trausti segir það enga nýlundu
að sjá blóm blómgast á þessum árs
tíma. „Ef eldri frásögnum er flett og
jafnvel annálum þá sjást dæmi um
að blóm blómgist í desember.“
Meðalhitinn í Reykjavík í nóv
ember mældist 3,5 stig sem er 0,9
stigum ofan meðallags síðustu 10
ára. Á Akureyri var meðalhitinn 3
stig sem er 2,3 stigum ofan meðal
lags síðustu 10 ára.
Hlýindin hafa dregið úr heita
vatnsnotkun. Á höfuðborgar
svæðinu var notkunin 300 þúsund
tonnum minni í nóvember nú en í
fyrra, að sögn Eiríks Hjálmarssonar,
upplýsingafulltrúa OR. Samkvæmt
Hlýjasta haust sem mælst hefur
Sunnanátt hefur verið geysilega mikil. Frostið minna en tíðkast í norðanáttum. Tengist óvenju litlum hafís.
Heitavatnsnotkunin á höfuðborgarsvæðinu var 300 þúsundum tonna minni í nóvember nú en í fyrra.
Glaðir byggingarverkamenn við steypuvinnu við Hafnarstræti eins og um sumar væri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Grasflatirnar á Klambratúni eru enn iðjagrænar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
útreikningum Veitna var notkunin
í nóvember nú rúmar 7,7 milljón
ir tonna en í nóvember í fyrra rétt
undir átta milljónum tonna.
„Notkunin í ár hefur verið minni
frá metárinu í fyrra, alveg frá miðju
ári. Notkunin ræðst nefnilega líka
af sól og vindi. Það er ekki bara loft
hitinn sem ræður.“ ibs@frettabladid.is
Ef eldri frásögnum
er flett og jafnvel
annálum þá sjást dæmi um
að blóm blómgist í desember.
Trausti Jónsson,
veðurfræðingur
3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
B
-6
9
1
C
1
B
8
B
-6
7
E
0
1
B
8
B
-6
6
A
4
1
B
8
B
-6
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K