Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 40
Hljómsveitin Kronika heldur út
gáfutónleika í kvöld á Húrra í
Reykjavík en fyrsta plata sveit
arinnar, Tinnitus Forte, kom
út fyrir stuttu. Meðlimir Kron
iku koma úr ólíkum áttum sem
setur svo sannarlega svip á lög
sveitarinnar sem er skemmti
legur bræðingur þyngra rokks
og rapps. Söngkona Kroniku er
Tinna Sverrisdóttir, einn með
lima Reykjavíkurdætra, og með
henni eru þrír fullvaxta karl
menn eins og hún orðar það sjálf,
þeir Snæbjörn Ragnarsson,
bassaleikari Skálmaldar, Birgir
Jónsson, trommuleikari Dimmu,
og Guðmundur Stefán Þorvalds
son, gítarleikari Sunnyside Road.
Snæbjörn, eða Bibbi eins og
hann er kallaður, á heiðurinn
af hugmyndinni bak við band
ið að sögn Tinnu og sópaði með
limum saman úr ólíkum áttum.
„Ég var t.d. stödd í Víet
nam þegar ég frétti að ég
væri orðin aðal söngkonan
í nýju íslensku rokkbandi.
Lífið hefur líklega aldrei
verið jafn fyndið og óvænt
eins og á því augnabliki. Ég
hugsaði mig ekki tvisvar
um enda segir maður ekkert
annað en já þegar Snæbjörn
kemur með hugmyndir sem
slíkar, meistarasnillingurinn
sem hann er.“
Hópurinn hittist fyrst á æf
ingu í ágúst með það eina mark
mið að gera það sem þau elska
mest og gera það vel segir Tinna.
„Upp frá því fóru hjólin að snúast
á ógnarhraða og tveimur mánuð
um síðar var fyrsta platan okkar,
Tinnitus Forte, tilbúin.“
GOTT PARTÍ
Flest laganna urðu til á æfingum
að sögn Tinnu, þar sem strák
arnir mættu með riff en hún
bætti ofan á textum og melódí
um. „Flestir textarnir fæddust
í æfingahúsnæðinu okkar þar
sem þeir lágu
yfir lögunum á meðan ég
dritaði orðum og tilfinningum á
blað. Svo var bara talið í og lögin
fengu að finna sína eigin leið þar
til við vorum öll sátt. Ferlið í
heild sinni var allt mjög áreynslu
laust og skemmtilega kærulaust.
Þegar sex lög voru tilbúin kom
upp sú hugmynd að skella í plötu.
Viku síðar vorum við komin með
plötusamning hjá Smekkleysu og
mætt upp í Hljóðverk til Einars
Vilbergs í upptökur á átta laga
plötu.“
Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn
meðlima sveitarinnar gengu
upptökurnar alveg fáránlega
vel að hennar sögn. „Platan var
tekin upp á viku og við vorum
yfirleitt öll saman í stúdíóinu.
Fyrir mér var þetta miklu
meira eins og gott partí með
góðum vinum heldur en nokk
urn tíma vinna.“
SPENNANDI SAMSTARF
Sem fyrr segir koma meðlim
ir úr ólíkum áttum hvað tón
listina varðar, en Tinna segir
það einmitt gera samstarfið svo
skemmtilegt og spennandi. „Aldr
ei í lífinu hefði ég ímyndað mér
að enda í rokkhljómsveit með
tveimur jötnum og einum álfi. Við
sækjum mest af innblæstri okkar
í hvert annað þar sem við komum
úr mjög ólíkum áttum og reynslu
heimi. Ég kem úr rappheiminum,
Biggi og Bibbi úr rokkinu og svo
Gummi úr ögn krúttaðri átt. Auð
vitað sprettur svo innblástur líka
alltaf frá þeim stað sem við erum
á í lífinu hverju sinni. Ég var t.d.
í ástarsorg við gerð plötunnar og
það hefur auðvitað sitt að segja.
Ég er ekki frá því að ástarsorg sé
besta olían á eld skáldskapargyðj
unnar.
Sveitin kom fyrst fram á tón
leikum um miðjan október, dag
inn eftir útgáfu plötunnar Tinn
itus Forte auk þess sem samnefnt
lag fór í spilun um svipað leyti.
„Við spiluðum á fimm tónleikum
á þremur dögum fyrir u.þ.b. 1.000
manns. Við hituðum upp fyrir
Skálmöld, bæði á Græna hattin
um fyrir norðan og svo á Gaukn
um í Reykjavík. Viðtökurnar hafa
verið vonum framar, bæði mynd
aðist ofboðslega góð stemning á
öllum tónleikunum og svo fengum
við frábæra plötudóma frá Arnari
Eggerti og Andreu Jóns á Rás 2.
Við erum ekkert nema stútfull af
þakklæti fyrir þann meðbyr sem
við höfum fengið hingað til.“
TRYLLT STEMNING
Og hún er svo sannarlega spennt
fyrir útgáfutónleikunum í kvöld.
„Það má búast við trylltri stemn
ingu, töfrum og temmilega
miklu af svita. Ef hægt væri að
virkja svitann sem kemur út úr
kroppnum á Bibba á einu giggi
gætum við borgað rafmagns
reikning Húrra á einu bretti.
Fleiri tónleikar eru fram undan
hjá okkur og svo erum við ótrú
lega spennt að semja meira
efni saman fyrir komandi gigg.
Það er ekkert eðlilega gaman
að standa á sviði með þessum
sjarma tröllum.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl.
21 á Húrra og hljómsveitin Him
brimi hitar upp.
Hlusta má á nýju plötuna,
Tinnitus Forte, á Spotify og fylgj
ast með nýjustu fréttum og tón
leikum á Facebook.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚTGEFANDI: 365 MIÐLAR | ÁBYRGÐARMAÐUR: Svanur Valgeirsson
UMSJÓNARMENN EFNIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
SÖLUMENN: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
„Aldrei í lífinu hefði ég ímyndað mér
að enda í rokkhljómsveit með tveimur
jötnum og einum álfi,“ segir Tinna
Sverrisdóttir, söngkona hljómsveitar-
innar Kroniku. MYND/STEFÁN
Meðlimir Kroniku eru f.v.: Birgir Jónsson, Guðmundur Stefán Þorvaldsson, Tinna Sverrisdóttir og Snæbjörn Ragnarsson.
ÁREYNSLULAUST OG
SKEMMTILEGA KÆRULAUST
Útgáfutónleikar Kroniku verða í kvöld á Húrra. Meðlimir sveitarinnar koma úr ólíkum áttum og er tónlistin skemmtilegur
bræðingur af rappi og þyngra rokki. Tinna Sverrisdóttir, söngkona sveitarinnar, var stödd í Víetnam þegar hún frétti að
hún væri orðin söngkona í nýju íslensku rokkbandi. Hún býst við trylltri stemningu og temmilega miklu af svita í kvöld.
Þessa köku gerðu húsmæður
gjarnan í gamla daga og hefur hún
alltaf verið vinsæl þegar boðið er
upp á hana. Hún er einföld og hægt
að skreyta hana með súkkulaði
eða karamellusósu.
½ bolli hvítur sykur
½ bolli smjör
1 egg
1 bolli Golden-síróp
2 ½ bolli hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
1 tsk. engifer
½ tsk. negull
½ tsk. salt
1 bolli heitt vatn
Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið ferkant-
að form, líkt og fyrir skúffuköku.
Hrærið saman sykur og smjör þar
til blandan verður létt og ljós. Bætið
egginu við ásamt sírópi.
Í annarri skál er öllum þurrefnum
blandað vel saman. Síðan er henni
bætt við smjörblönduna og heitt vatn
að auki.
Setjið blönduna í vel smurt mót og
bakið í eina klukkustund. Kælið kök-
una og setjið á hana krem eftir smekk.
Það þarf ekki að vera krem en kakan
er góð með ís. Einnig má benda á að
piparkökur eru mjög góðar með ís.
GAMALDAGS
KRYDDKAKA
3 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R2 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
B
-D
F
9
C
1
B
8
B
-D
E
6
0
1
B
8
B
-D
D
2
4
1
B
8
B
-D
B
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K