Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 18
Mun refsa þeim sem
yfirgefa Bandaríkin
Donald Trump veitti á dögunum fyrirtæki í Indiana skattaafslátt gegn því að
halda 1.100 störfum innan Bandaríkjanna. Hann hyggst leggja háan skatt á
fyrirtæki sem yfirgefa landið. Hann vill lækka fyrirtækjaskatt verulega.
Smásöluverslanir hafa sögulega reitt
sig á sölu á dýrum úlpum og öðrum
vetrarflíkum til þess að auka hagnað
sinn. Vetrarflíkur eru oft með allt að
40 prósenta álagi. Hækkandi hita-
stig sem dregur úr þörf á hlýjum
dúnúlpum eða kuldastígvélum
hefur hins vegar haft neikvæð áhrif
á fatasölu í Bandaríkjunum.
Reuters greinir frá því að fjár-
festingarsjóðir séu að færa sig frá
fjárfestingum í stórverslunum og
fataverslunum þar sem þeir standi í
þeirri trú að iðnaðurinn sé að verða
fórnarlamb loftslagsbreytinga.
Veturinn 2015 til 2016 var sá
hlýjasti síðan mælingar hófust. Í
dag eiga 48 prósent hlutabréfa-
sjóða í virkri eignastýringu í Banda-
ríkjunum ekkert í fatafyrirtækjum,
en hlutfallið var 38 prósent á sama
tíma í fyrra.
Merki eru um að hlýnunin muni
halda áfram og að neytendur haldi
áfram að fresta kaupum á hlýjum
vetrarfatnaði. Larry Haverty, sjóðs-
stjóri hjá Gabelli, segir í samtali við
Reuters að fataframleiðendur þurfi
að viðurkenna að loftslagsbreyt-
ingar séu að eiga sér stað og breyta
því hvernig þeir stundi viðskipti. – sg
Hlýrri vetur slæmur fyrir
hagnað fatafyrirtækja
Árið 2016 hefur verið metár hjá
kvikmyndaframleiðandanum Dis-
ney en fjöldi stórmynda úr smiðju
fyrirtækisins kom út á árinu. Mar-
ketWatch greinir frá því að tekjur
af myndum Disney nemi yfir sex
milljörðum dollara, jafnvirði 670
milljarða íslenskra króna, það sem
af er ári.
Kvikmyndir á borð við Finding
Dory, Doctor Strange og Moana
hafa notið mikilla vinsælda. Þrjár
af fimm vinsælustu kvikmyndum
ársins í Norður-Ameríku eru úr
smiðju Disney og fimm af þeim tíu
vinsælustu. Tekjur af fjórum kvik-
myndum nema yfir 300 milljónum
dollara.
Tekjur Disney hafa aukist veru-
lega vegna kaupa á Pixar-teikni-
myndaframleiðandanum og Marvel
sem framleiðir ofurhetjumyndir, og
nú nýverið vegna kaupa á Lucasfilm,
framleiðanda Star Wars-myndanna,
árið 2012. Árið 2016 er fyrsta árið
sem kvikmyndir frá öllum fimm
framleiðslufyrirtækjum Disney
koma út og það skýrir að vissu leyti
tekjuaukninguna.
Tekjur Disney í Norður-Ameríku
eru nú þegar orðnar hærri en á öllu
síðasta ári. Búast má við enn meiri
innspýtingu hjá fyrirtækinu þann
16. desember þegar Rogue One: A
Star Wars Story kemur í kvikmynda-
hús, en áætlað er að tekjur af mynd-
inni gætu numið 130 milljónum
dollara fyrstu sýningarhelgina. – sg
Disney hefur halað
inn yfir 600 milljarða
Við gerum meira fyrir þig – Nóatún Austurveri – www.noatun.is
NAUTALUND WELLINGTON Á VEISLUBORÐIÐ
Erum byrjuð að taka við pöntunum fyrir hátíðarnar, pantið á www.noatun.is
1699 kr./kg
Ungnautahakk,
verð áður 2079 kr./kg
18%
afsláttur
Matarsendingar
til útlanda með DHL
Viltu senda vinum og ættingjum hangikjöt,
Nóatúns hamborgarhrygg, laufabrauð,
sælgæti eða malt og appelsín um jólin?
Sendu okkur þá línu á noatun@noatun.is
eða hringdu í 585-7110
Vetrarflíkur eru oft með allt að fjörutíu
prósenta álag á verðmiðanum í Banda-
ríkjunum. FréttaBlaðið/Getty
trump talaði um samninga sína við Carrier Crop í indiana. FréttaBlaðið/Getty
Finding Dory var ein vinsælasta mynd Disney í ár. MynD/Pixar Donald Trump, verðandi forseti
Bandaríkjanna, hefur sagt að yfirgefi
fyrirtæki Bandaríkin muni það hafa
afleiðingar í för með sér. Hann virð-
ist því ætla að standa við stóru orðin
um að reyna að halda störfum innan
Bandaríkjanna.
BBC greinir frá því að Trump hafi
sagt þetta í Indiana þar sem hann
sagðist hafa komið í veg fyrir að loft-
kælingarfyrirtækið Carrier Corp flytti
þúsund störf til Mexíkó.
Trump sagði samningaviðræður
sínar við Carrier Corp vera fyrirmynd
að því hvernig hann myndi semja við
önnur fyrirtæki sem hyggjast flytja
störf yfir landamærin. „Ástandið
verður þannig að fyrirtæki munu
vita í fyrsta lagi að við munum gera
vel við þau og í öðru lagi að það verði
afleiðingar,“ sagði hann. „Það verður
lagður hár skattur á fyrirtækin við
landamærin ef þau vilja yfirgefa
Bandaríkin.“
Í ræðu sinni ítrekaði hann einn-
ig loforð sitt um að lækka skatta og
fækka reglugerðum í Bandaríkjunum.
BBC greinir frá því að Carrier Corp
muni fá skattaafslátt að andvirði sjö
milljóna dollara, jafnvirði 780 millj-
óna íslenskra króna, á næstu tíu árum
í skiptum fyrir að halda 1.100 störfum
í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það
munu 1.300 störf flytjast suður yfir
landamærin. Carrier og móðurfélag
þess United Technologies hafa þó
samþykkt að fjárfesta fyrir 16 millj-
ónir dollara til að viðhalda rekstri
fyrirtækisins.
Ákvörðun Trumps um að veita
fyrirtækjum skattaafslátt til að halda
störfum innan Bandaríkjanna hefur
sætt nokkurri gagnrýni. Bernie Sand-
ers, sem sóttist eftir forsetatilnefningu
Demókrataflokksins, skrifaði grein í
Washington Post í gær þar sem hann
benti á að nú gætu öll fyrirtæki í land-
inu hótað því að flytja störf úr landi til
þess að fá að greiða lægri skatta.
Trump hefur sagt að hann vilji
lækka fyrirtækjaskatta í Bandaríkj-
unum úr 35 prósentum í fimmtán
prósent. Hann sagði einnig að væru
stjórnvöld vinsamlegri í garð fyrir-
tækja myndi það auka líkurnar á því
að þau héldu sig innan landstein-
anna.
saeunn@frettabladid.is
15%
fyrirtækjaskatt vill Trump í
Bandaríkjunum.
Trump hefur boðið
fyrirtækinu Carrier Corp
skattaafslátt geng því að
halda 1.100 störfum í
Bandaríkjunum í stað þess
að flytja þau suður yfir
landamærin.
markaðurinn
3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
B
-5
F
3
C
1
B
8
B
-5
E
0
0
1
B
8
B
-5
C
C
4
1
B
8
B
-5
B
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K