Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 96
Bragi Halldórsson
228
„Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur svo mikið á en þurfum að
komast í gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við
vonsvikinn, „við verðum of sein.“ „Eins og ævinlega,“ sagði Kata.
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?
Í hvaða skóla ertu, Ari Ævar, og
hver er uppáhaldsnámsgreinin
þín?
Ég er í Árbæjarskóla. Mér finnst
skemmtilegast í stærðfræði.
Hvað gerir þú helst í frístundum?
Ég leik mér með dótið mitt, æfi
frjálsar íþróttir, læri á píanó og er í
skátunum.
Hvenær vígðist þú skáti og
hvernig var það?
Ég vígðist fyrir nokkrum vikum,
það var skemmtilegt og ég var
mjög stoltur.
Í hvaða skátafélagi ertu?
Í Árbúum.
Hvað varð til þess að þú fórst í
skátana?
Ég hélt að skátarnir væru skemmti-
legir og þeir voru það.
Hvað er skemmtilegast við að
vera í skátunum?
Við grillum oft og alltaf þegar við
komum á fundi gerum við eitthvað
skemmtilegt, spilum, leikum okkur
og lærum margt eins og til dæmis
að hnýta hnúta.
Hefur þú einhvern tíma farið í
útilegu?
Ekki með skátunum enn þá en
með mömmu og pabba.
Hvað er það skrítnasta sem þú
hefur gert eða lent í um ævina?
Að vera í þessu viðtali og svara
spurningunum!
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór?
Mig langar til að verða bekkjar-
trúður og svo langar mig líka að
verða ljósmyndari. Og að verða
píanósnillingur.
Langar að verða
bekkjartrúður
Ari Ævar Eyþórsson, átta ára, kveðst hafa verið mjög stoltur
þegar hann vígðist sem skáti nýlega. Hann gerir alltaf eitthvað
skemmtilegt á skátafundum og lærir líka margt.
Ari Ævar, í gráu peysunni með munsturbekknum, hátíðlegur í skátavígslunni. FréttAblAðið/Eyþór
Dómarinn: Hvað ert þú ákærður
fyrir?
Sakborningurinn: Fyrir að gera
jólainnkaupin snemma.
Dómarinn: Það er nú ekki refsivert.
Hversu snemma gerðir þú þau?
Sakborningurinn: Áður en
búðirnar opnuðu.
Kennarinn: Af hvaða þjóðerni er
jólasveinninn?
Dóra: Norð-pólskur!!
baldur: Mamma má ég fá hund á
jólunum!!
Mamma: Nei, elskan mín, við
ætlum að hafa hamborgarhrygg
eins og allir aðrir.
Alexandra: Veistu það læknir að ég
held alltaf að ég sé jólabjalla!
læknirinn: Jæja, taktu þessar pillur
og ef þær virka ekki, skaltu bara
hringja.
Siggi: Við getum náð okkur í jóla-
kúlur úti í garði í ár.
Mamma: Af hverju segir þú það?
Siggi: Af því að í fyrra gróðursetti ég
fullt af þeim.
Jólabrandarar
Jólakötturinn
Listamaðurinn
er Hekla Guð-
rún M. Páls-
dóttir, sjö ára.
Jólamyndin
3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r52 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
B
-9
A
7
C
1
B
8
B
-9
9
4
0
1
B
8
B
-9
8
0
4
1
B
8
B
-9
6
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K