Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 102
Til þess að líma
þeTTa saman þá
fengum við hingað mikinn
snilling sem heiTir gerry
Diver.
F.C. Barcelona Real Madrid C.F
365.is Sími 1817
TónlisT
HHHHH
Verk eftir Bach, Händel og Mozart.
sinfóníuhljómsveit Íslands lék und-
ir stjórn Eivind Aadland. Einleikari:
Elfa Rún Kristinsdóttir. Fram komu
Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn
Þorgerðar ingólfsdóttur.
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 1. desember
Efnisskrá Sinfóníutónleikanna á
fimmtudagskvöldið var samloka.
Mozart var brauðið, þ.e. fyrstur og
síðastur, en Händel og Bach áleggið.
Samlokan smakkaðist nokkuð mis-
jafnlega.
Forleikurinn að óperunni Brúð-
kaupi Fígarós eftir Mozart var prýði-
legur. Hljómsveitin var samtaka og
hröð nótnahlaup skýr undir stjórn
Eivind Aadland. Túlkunin var lífleg
og snörp, akkúrat eins og hún átti
að vera.
Til allrar óhamingju var fiðlu-
konsert í E-dúr BWV 1042 eftir
Bach mun síðri. Þar var einleikari
Elfa Rún Kristinsdóttur, sem ég hef
hingað til heyrt gott eitt frá. Fiðlan
var fremur hjáróma, tónninn var
mjór og ófullnægjandi. Alltof miklar
áherslur voru á fyrsta slag í hverjum
takti (taktur samanstendur yfirleitt
af þremur eða fjórum slögum) og
þær voru oftast teygðar í þokkabót.
Þetta gerði tónlistina afkáralega,
það var eins og að hlusta á grínút-
gáfu af konsertinum, sem þó var
ekkert fyndin. Eins og áður segir hef
ég áður heyrt Elfu Rún spila ákaflega
vel; ljóst er að hún getur gert betur
en þetta.
Meira var varið í Händel. Þetta
var My Heart is Inditing, krýn-
ingarsöngur HWV 261. Upp á svið
stigu Hamrahlíðarkórarnir, afar
fjölmennur hópur. Unaður var að
hlusta á hann syngja. Það var eitt-
hvað dásamlega blátt áfram og
heiðarlegt við söngstílinn. Ekki
aðeins voru tæknileg atriði á borð
við samsöng og hreina tónmyndun
eins og best verður á kosið; túlkunin
var bara svo falleg. Hún var full af
æskufjöri, sem þó var gríðarlega
agað. Þessar andstæður sköpuðu
mikla spennu, sem hafði það sterk-
an áhrifamátt að maður gleymdi
stund og stað.
Líkt og nafnið ber með sér er tón-
listin samin fyrir krýningu. Georg
2. varð Bretakonungur 1727 en
Händel var þá orðinn breskur ríkis-
borgari. Textinn er úr Biblíunni,
aðallega Davíðssálmunum. Tón-
listin er tignarleg, en líka þrungin
gleði. Kórinn kom gleðinni full-
komlega til skila. Ekki sakaði að
hópurinn var augnayndi; hvítt var
áberandi í klæðaburðinum. Það var
eins og englaher hefði stigið niður
úr himnaríki!
Lokaverkið á efnisskránni var Sin-
fónía nr. 39 eftir Mozart. Venjulega
eru sinfóníurnar hans númeraðar
upp í 41, en þær eru þó fleiri. Sú
39. er margslungin og djúp, skreytt
fögrum laglínum og hugmyndaríkri
úrvinnslu. En túlkun Aadlands var
býsna yfirborðsleg, hún var keyrð
áfram á kraftinum einum. Það var
eins og að vera í lest á ofsahraða
um hrífandi landslag; erfitt var
að njóta fegurðarinnar í öllum
asanum. Hljómsveitin spilaði þó
af fagmennsku og öryggi, en það
dugði ekki til. Útkoman var meðal-
mennskuleg og skildi lítið eftir sig.
Jónas Sen
niðuRsTAðA: Bach var slæmur,
Mozart misjafn og Händel snilld.
Englaher úr himnaríki
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri hefur unnið frábært starf með Hamrahlíðarkórana.
FréttablaðIð/VallI
Að v e n t u t ó n l e i k a r Söngfjelagsins hafa notið mikilla vin-sælda á síðustu árum enda einstaklega létt og skemmtileg
jólastemning á tónleikunum. Það
er kannski ekki að undra að það sé
gaman hjá tónleikagestum enda er
eflaust ákaflega gaman að syngja
undir stjórn kórstjórans Hilmars
Arnar Agnarssonar sem virðist strax
við fyrstu kynni vera ákaflega léttur
og skemmtilegur maður.
Hilmar Örn segir að Söngfjelagið
sé merkilegur hópur sem var stofn-
aður fyrir fimm árum. „Uppistaðan í
Söngfjelaginu er úr gamla Dómkórn-
um, fólk sem var svona aðeins í lausu
lofti og á milli kóra á sínum tíma, og
í framhaldinu varð þessi kór til. Við
köllum hann Söngfjelagið með joði
til þess að höfða til gamla tímans
því við viljum vera bæði módern og
gamaldags í senn. Og við viljum líka
vera frjáls og óháð. Það fannst okkur
ægilega flott, að vera ekki kirkjukór,“
segir Hilmar Örn og hlær glaðlega.
„En við erum frjáls í verkefnavali
og getum tekist á við áskoranir sem
við sækjumst eftir hverju sinni. Við
höfum til að mynda verið að syngja
klezmer-tónlist og þá hef ég getað
nýtt mín sambönd, ég þekki ansi
marga erlendis og gott listamanna-
teymi sem hefur verið tilbúið til þess
að koma til Íslands og vinna með
okkur. Vinna með kórnum og kenna
honum.“
Það er engin undantekning á
þessu í ár en hingað til lands eru
komnir ákaflega flottir listamenn
á vegum kórsins sem Hilmar Örn
segist vera alveg sérstaklega kátur
með. „Við erum með alveg rosalega
flott lið í ár. Fyrst skal telja sönghóp
frá Írlandi sem heitir Anúna sem er
alveg æðislegur acapella hópur og ég
kynntist stjórnenda þeirra og hann
sendi okkur hingað norður sína flott-
ustu sópran-skvísu sem heitir Bláth
Conroy Murphy. Og við ætlum að
vera soldið í þeirra anda með henni.
En svo göngum við enn lengra því
það er önnur vinkona okkar frá Glas-
tonbury, Heloise Pilkington, en hún
er með þessa dásamlegu gömlu kelt-
nesku tónlist.
Til þess að líma þetta saman þá
fengum við hingað mikinn snilling
sem heitir Gerry Diver. Hann er sér-
fræðingur í írskri og keltneskri tón-
list og getur hreinlega spilað á hvaða
hljóðfæri sem er.“
Keltneska þemað leynir sér ekki
og Hilmar Örn segir að það sé alltaf
ákaflega skemmtilegt en svo séu nú
líka fleiri hefðir hjá Söngfjelaginu.
„Við höfum nefnilega alltaf látið
semja fyrir okkur. Á síðasta ári var
það hann Hjörleifur Hjartarson úr
tvíeykinu Hundur í óskilum sem átti
jólalagið. Í ár er það Olga Guðrún
Árnadóttir sem á lagið og hún semur
það í ákaflega fallegum ballöðustíl.“
Þess má einnig geta að lag Olgu Guð-
rúnar er tileinkað minningu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur, ljóðskálds og
þýðanda, sem lést fyrir skömmu, en
Hilmar Örn segir líka að kórinn hiki
ekki við að lofa fallegri stemningu í
kirkjunni. Tónleikarnir verða í Lang-
holtskirkju á sunnudag kl. 16 og svo
aftur kl. 20.
Keltneskt þema og sérsamið jólalag
söngfjelagið heldur tvenna aðventutónleika sína í langholtskirkju á sunnudaginn ásamt listamönnum
sem eru komnir víða að. hilmar Örn agnarsson stjórnandi lofar hátíðlegri stemningu.
Hilmar Örn agnarsson, kórstjóri Söngfjelagsins, ásamt erlendu listamönnunum sem taka þátt í aðventutónleikunum á sunnu-
daginn. FréttablaðIð/anton brInk
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
3 . d E s E M B E R 2 0 1 6 l A u G A R d A G u R58 M E n n i n G ∙ F R É T T A B l A ð i ð
menning
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
B
-6
E
0
C
1
B
8
B
-6
C
D
0
1
B
8
B
-6
B
9
4
1
B
8
B
-6
A
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K