Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 112

Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 112
Dean Strang og Jerry Buting voru lögfræð-ingar Bandaríkja-mannsins Stevens Avery árið 2007 þegar hann var ákærður, og loks sakfelldur, fyrir morðið á Teresu Halbach. Feikivinsæl heimildarþáttaröð, Making a Murderer, var gefin út á Netflix fyrr á árinu og velta því margir fyrir sér eftir áhorfið hvort Avery og frændi hans, Brendan Dassey sem einnig var sakfelldur, hafi í raun verið sekir. Í viðtali við Fréttablaðið segjast Strang og Buting vera á því að kerfið hafi brugðist Avery þar sem ekki hafi verið hægt að sanna sekt hans. Þættirnir voru sanngjarnir Saksóknarinn í málinu, Ken Kratz, hefur haldið því fram að þættirnir hafi verið ósanngjarnir og sýnt hlið Averys í mun jákvæðara ljósi. Fannst ykkur þættirnir setja málið fram á nákvæman og sanngjarnan hátt? „Á sanngjarnan hátt, já, og að vissu leyti á nákvæman hátt. Þeir sýndu þó ekki hvert einasta smáatriði. Heim- ildarmyndargerðarmennirnir sýndu öll þau sönnunargögn og allar þær rökfærslur sem báðar hliðar héldu fram að væru mikilvægustu þættir málsins á meðan meðferð þess fór fram. Afraksturinn var rúmlega þrír klukkutímar af myndefni frá réttar- höldunum sjálfum. Auðvitað sýndu þeir ekki öll réttarhöldin en mér fannst afraksturinn vera sanngjörn og nákvæm samantekt,“ segir Strang. Þeir segja einnig að þættirnir og vinsældir þeirra hafi haft umtalsverð áhrif á starf þeirra. „Fjöldi staða sem við höfum ferðast til og talað á hefur auðvitað bitnað á tímanum sem við höfum á skrif- stofunni. Ég myndi segja að ég sé bara að sinna helmingi skrifstofustarfanna sem ég gerði fyrir tíu mánuðum. En við erum ekki að ferðast allan tímann svo við getum enn mætt á skrifstof- una og í dómssal og gert það sem við þurfum að gera,“ segir Buting. Hann segir almenning núna vera að sýna málum sem hann hafi ein- beitt sér að allan sinn feril athygli. Þeir félagar hafi nýtt athyglina til að tala við almenning um það sem mætti betur fara í bandarísku réttarkerfi. Réttarhöldin merki um vankanta kerfisins „Mjög fáir eru á því að kerfið sé í lagi eftir að hafa horft á þættina. Burtséð frá því hvað þeim finnst um sekt eða sakleysi Stevens Avery,“ segir Buting og bætir við: „Ég held að stærsta lexí- an sem megi læra af þáttunum sé sú að maður þurfi að fylgjast með dóm- stólum til að tryggja að ferlið sé rétt- látt. Þrátt fyrir að lögin eigi að tryggja réttlæti dugar það ekki alltaf til.“ Málflutningur ykkar gekk út á að lögregla hefði vísvitandi reynt að koma sök á Avery og Dassey með því að koma fyrir sönnunargögnum. Var það rétt ákvörðun? „Sönnunargögnin leiddu okkur að þeirri taktík en auðvitað var megin- inntak málflutnings okkar það að talsverður vafi lék á um sekt Averys. Vafinn var meðal annars vegna vafa- samrar rannsóknar og aðstæðna þar sem lykilsönnunargögn í málinu fundust. Lögreglan í Manitowoc-sýslu átti ekki að vera viðriðin rannsókn- ina vegna hagsmunaágreinings sem myndaðist vegna lögsóknar Averys gegn henni,“ segir Buting. Sú lögsókn var vegna þess að Avery hafði áður verið ranglega sakfelldur fyrir nauðg- un og sat inni fyrir hana í átján ár. En mynduð þið breyta einhverju ef þið gætuð flutt málið aftur? „Örugglega hundrað hlutum. Við erum níu árum eldri og reyndari. Stærsta spurningin snýst um að á þeim tíma tókum við mjög mikil- vægar ákvarðanir. Í fyrsta lagi hvort við hefðum átt að fara fram á að rétt- arhöldin yrðu haldin í annarri sýslu með kviðdómi þaðan. Í öðru lagi hvort við hefðum átt að fara fram Málið í hnotskurn Steven Avery, sem rak bílakirkju­ garð með fjölskyldu sinni í Manitowoc­sýslu í Wisconsin, var sakfelldur árið 1985 fyrir nauðgun. Avery hlaut 32 ára fangelsis­ dóm. Eftir að hafa setið inni í átján ár komu fram ný DNA­sönn­ unargögn sem sýndu fram á sakleysi hans og var honum sleppt árið 2003. Avery kærði sýsluna vegna rangra sakargifta en áður en málið var tekið fyrir hvarf ljósmyndarinn Teresa Halbach. Það var árið 2005. Stuttu seinna fannst bíll hennar, brenndar líkamsleifar og önnur sönnunargögn á lóð Averys og var hann ákærður fyrir morð. Við yfirheyrslu játaði fimmtán ára þroskaskertur frændi Averys, Brendan Dassey, að hann hefði staðið að morðinu á Halbach sem og nauðgun og afskræmingu líkamsleifa með Avery. Dassey var einnig ákærður. Meðferð mála frændanna hefur verið umdeild og sérstaklega eftir sýningu heimildar­ þáttaraðarinnar Making a Murderer sem fjallar um þá frændur. Eru þar færð rök fyrir því að játning Dasseys hafi verið þvinguð og að sönnunar­ gögnum í málinu hafi verið komið fyrir af lögreglu til þess að koma Avery aftur á bak við lás og slá og fá með því uppreist æru fyrir að hafa staðið að fyrri sakfellingu hans. Nú hefur játning Dasseys verið dæmt ómerk og til stendur að rannsaka á ný hvort lögregla hafi komið téðum sönnunargögnum fyrir. Jerry Buting og Dean Strang voru lögfræðingar Stevens Avery. NoRDicphotoS/Getty Myndu breyta hundrað atriðum Fyrrverandi lögfræðingar Stevens Avery munu spjalla við Íslendinga í mars. Í viðtali við Fréttablaðið segjast þeir hlakka mikið til komunnar. Ef réttarhöldin færu fram í dag myndu þeir breyta hundrað ákvörðunum. Frægðin hafi breytt lífi þeirra og starfi. staklega þegar hún kemur úr munni lögreglu og saksóknara. Í þessu til- felli var blaðamannafundurinn óvenjulegur, fæstir saksóknarar halda slíkan blaðamannafund og hvað þá með málflutningi sem hægt var að sýna fram á að væri ósannur,“ segir Buting. Fylgjast enn með Þrátt fyrir að vera ekki lengur viðriðn- ir mál Averys og Dasseys fylgjast þeir vel með fréttum. Nýlega hafa fréttir birst af því að mögulega standi til að sleppa Dassey. Buting segir að alríkisdómari hafi úrskurðað játningu Dasseys þvingaða og fyrirskipað í kjölfarið að honum yrði sleppt eftir að lögfræðingar Dass eys fóru fram á slíkt. „Þá áfrýjaði ríkissaksóknari þeim úrskurði og fór fram á að Dassey yrði ekki sleppt fyrr en dómari hefði heyrt áfrýjunina. Við því var orðið.“ Einnig stendur til að gera nýjar prufur á DNA-sönnunargögnum í máli Averys. Þær prufur gætu skorið úr um aldur blóðs Averys sem fannst á vettvangi. Strang segir að annaðhvort séu sýnin frá árinu 2005 og sýni þar með að Avery hafi líklega verið í bíl Halbach kvöldið sem hún var myrt, eða frá 1996 og því augljóst að lögregla hafi komið blóðinu fyrir á vettvangi. En eruð þið enn í sambandi við Avery? „Ekki beint. Hann er með annan lögfræðing sem kemur í veg fyrir að við höfum beint samband við hann. Við erum hins vegar í sambandi við fjölskylduna og lögfræðing hans. Fjölskyldan heldur enn í vonina,“ segir Strang. hlakka til komunnar Strang og Buting munu spjalla um Making a Murderer, mál Averys og réttarkerfið, við Íslendinga í Hörpu þann 26. mars næstkomandi. Hvern- ig kom það til? „Við fengum boð frá Íslandi í gegnum umboðsmann okkar í Minnesota. Okkur þótti það mjög heillandi,“ segir Strang. Þeir hafi viljað ræða réttarkerfið við Banda- ríkjamenn sem og íbúa annarra landa. Þetta hafi verið frábært tæki- færi til þess. „Sérstaklega þar sem tugir Íslend- inga sendu okkur tölvupósta með ábendingum og spurningum eftir að hafa horft á Making a Murderer. Ísland er eitt þeirra landa sem sýndu einna sterkust viðbrögð við þáttun- um. Þess vegna, og vegna þess hversu yndisleg borg Reykjavík er og hversu frábært land Ísland er, var rökrétt að þiggja boðið,“ segir Strang. Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is á ógildingu réttarhaldanna eftir að einn kviðdómenda þurfti að víkja frá eftir fyrsta daginn. Þar með hefðu réttarhöldin byrjað upp á nýtt. Þetta voru tvær mikilvægustu og umdeild- ustu ákvarðanirnar sem við þurftum að taka. Fyrir mitt leyti myndi ég taka sömu ákvarðanir eftir níu ára umhugsunarfrest,“ segir Strang. Þeir segja einnig að grafískar lýs- ingar saksóknarans Kratz af meintu athæfi Averys og Dasseys, sem þeir byggðu á játningu þess síðarnefnda, hafi fest í hugum kviðdómenda. „Ég held að okkur finnist það báðum hafa verið stærsta hindrun okkar. Fólk grípur oft fyrstu frásögn sem það heyrir og trúir henni. Sér- Mjög fáir eru á því að kerfið sé í lagi eftir að hafa horft á þættina. Burtséð frá því hvað þeiM finnst uM sekt eða sakleysi stevens avery. Jerry Buting, fyrrvernadi lögfræðingur Stevens Averys Ken Kratz, saksóknari. MyND/SKJáSKot 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r68 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 B -9 0 9 C 1 B 8 B -8 F 6 0 1 B 8 B -8 E 2 4 1 B 8 B -8 C E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.