Fréttablaðið - 03.12.2016, Blaðsíða 16
ÍtalÍa Breytingar á stjórnarskrá
Ítalíu verða bornar undir þjóðar
atkvæði á morgun. Breytingarnar
snúast um að einfalda stjórnkerfið
og styrkja völd stjórnarinnar í Róm
á kostnað héraðanna.
Matteo Renzi forsætisráðherra
hefur sagst ætla að segja af sér verði
stjórnarskrárbreytingin felld. Hann
segir stjórnarskrárbreytinguna
nauðsynlega til að ná betri tökum á
efnahagsvanda Ítalíu.
Ýmsir óttast að hafni þjóðin þess
ari breytingu þá verði áhrifin á efna
hagslíf Ítalíu sambærileg við áhrif
þess að Bretar gangi úr Evrópusam
bandinu.
Ítölsk hlutabréf geti hrunið og
ítölsk stórfyrirtæki farið á hausinn.
Þar hefur ekki síst verið talað um
bankann Monte dei Paschi í borg
inni Siena, en sá banki hefur starfað
óslitið síðan 1472 og er sá elsti í
heimi.
Sigur svokallaðra lýðskrumsafla
á Ítalíu væri einnig mikill ósigur
fyrir vestrænt lýðræði. Ekki sé á það
bætandi hér á Vesturlöndum, í beinu
framhaldi af Brexitkosningunni í
Bretlandi og sigri Donalds Trump í
Bandaríkjunum.
Stjórnskipan Ítalíu hefur hins
vegar lengi þótt standa efnahagslífi
landsins fyrir þrifum. Renzi segir
breytingarnar gera allt stjórnkerfið
einfaldara. Auðveldara verði að taka
nauðsynlegar ákvarðanir og bregð
ast við vanda efnahagslífsins.
Renzi segir þessa stjórnkerfis
breytingu skilyrði þess að geta
komið á þeim efnahagsumbótum
sem hann vill gera á Ítalíu. Hann eigi
því ekkert val annað en að segja af
sér, verði tillagan felld.
Óvissa um úrslitin
Mikil óvissa ríkir um úrslit atkvæða
greiðslunnar. Engar skoðana
kannanir hefur mátt birta síðan
18. nóvember, fjórtán dögum fyrir
kosningar, en síðasta daginn birtist
skoðanakönnun sem spáði því að
breytingarnar yrðu felldar með 53,5
prósentum atkvæða gegn 46,5.
Fimmtungur kjósenda sagðist þá
vera óákveðinn, þannig að í raun
geta úrslitin orðið á hvorn veginn
sem er.
Snemma á árinu, um það leyti sem
þingið var að samþykkja frumvarp
Renzis forsætisráðherra, mældist
mikill stuðningur við breytingarnar.
Það tók hins vegar að snúast við um
mitt sumar og smám saman náðu
andstæðingar þeirra yfirhöndinni.
Fremstir í flokki neisinna eru
liðsmenn Fimmstjörnuhreyfingar
innar, stjórnmálaflokks sem Beppe
Grillo stofnaði árið 2009.
Andóf gegn kerfinu
Grillo er landsþekktur grínisti sem
óspart hafði látið stjórnmálamenn
hafa það óþvegið áður en hann
skellti sér út í stjórnmálin sjálfur,
einmitt þegar kreppan mikla reið
yfir og traustið til gömlu stjórnmál
anna fauk út í veður og vind.
Flokkurinn sópaði að sér fylgi
í þingkosningum 2013 og fékk
fjórðung atkvæða út á andstöðu við
gamla stjórnmálakerfið sem sé bara
hinum fáu í hag.
Andstaðan við stjórnarskrár
breytingarnar, sem nú er kosið um,
hefur þó ekki síst snúist um að verja
völdin heima í héraði. Óttinn við
sterka miðstjórn í Róm situr djúpt í
Ítölum, sem sjá fyrir sér að einræðis
herra á borð við Benito Mussolini
geti aftur farið á kreik.
gudsteinn@frettabladid.is
Ítalir kjósa um stjórnarskrárbreytingu
14
daga fyrir kosningar er
bannað að birta skoðana-
kannanir.
Um hvað er kosið?
Tillagan gengur út á harla flóknar
og víðtækar breytingar á stjórn-
skipan Ítalíu.
Meginbreytingin er sú að auka
völd fulltrúadeildar þjóðþingsins
á kostnað öldungadeildarinnar.
Löggjöf verður að mestu í höndum
fulltrúadeildarinnar, án aðkomu
öldungadeildar. Hlutverk öld-
ungadeildarinnar verður einkum
bundið við stærri mál á borð
við stjórnarskrárbreytingar og
breytingar á sáttmálum Evrópu-
sambandsins.
Öldungadeildarþingmönnum
verður jafnframt fækkað úr 315 í
100. Þeir verða ekki lengur kosnir
beint af almenningi heldur af
héraðsþingum Ítalíu. Einnig munu
sumir borgarstjórar sitja í öldunga-
deildinni.
Þessi breyting mun styrkja veru-
lega völd stjórnarmeirihlutans
hverju sinni og þar með ríkis-
stjórnarinnar í Róm.
Jafnframt verður staða mið-
stjórnarinnar í Róm styrkt mjög
gagnvart héraðsstjórnum landsins,
sem til þessa hafa haft töluverð
völd til að ráða sjálf málum sínum.
Eftir breytingu hafa héraðs-
stjórnirnar aðeins rétt til að taka
ákvarðanir um þætti á borð við
heilbrigðismál, menntamál og vel-
ferðarþjónustu, en stjórnin í Róm
fær meðal annars aukin völd til
þess að knýja í gegn löggjöf í krafti
efnahagsnauðsynjar og þjóðarhags.
Forsætisráðherrann og
barátta hans
Matteo Renzi var borgarstjóri í
Flórens þegar hann, í febrúar 2014,
tók við af Enrico Letta sem for-
sætisráðherra Ítalíu, en báðir eru
þeir vinstri-miðjumenn í pólitík.
Letta hafði þá verið forsætis-
ráðherra í eitt ár. Hann hafði síðan
tekið við af Mario Monti, hag-
fræðingnum sem stóð utan flokka
en tók við stjórn landsins af Silvio
Berlusconi í kreppunni miðri árið
2011.
Þeir Renzi og Letta eru flokks-
bræður, báðir í Demókrata-
flokknum sem stofnaður var árið
2007 með því að steypa saman
nokkrum smærri flokkum af vinstri
kanti og miðju ítalskra stjórnmála.
Letta sagði af sér 14. febrúar
2014 eftir að Renzi og fleiri flokks-
bræður hans höfðu sakað hann
um aðgerðaleysi gagnvart ískyggi-
legum efnahagsvanda landsins.
Renzi var frá upphafi staðráðinn
í að ráðast í róttækar breytingar
til að styrkja stjórn landsins. Strax
fáeinum vikum eftir að hann tók
við lagði hann fram frumvarp
um stjórnarskrárbreytingar, sem
þingið svo samþykkti tveimur
árum síðar, í apríl á þessu ári. Ekki
þó með nægilega stórum meiri-
hluta á þingi, þannig að ekki varð
undan því vikist að bera breyting-
arnar undir þjóðina.
Renzi hefur lagt pólitískan feril
sinn að veði. Hann telur sér ekki
fært að vera áfram við stjórn-
völinn verði breytingarnar á stjórn-
skipan landsins felldar.
Matteo Renzi forsætisráðherra segir allt í húfi og skorar á þjóðina að samþykkja stjórnarskrárumbætur sínar. FRéttAblAðið/EPA
Víða í héruðum Ítalíu er mikil andstaða við breytingarnar og til átaka hefur komið í Flórens. FRéttAblAðið/EPA
Matteo Renzi forsætis-
ráðherra ætlar að segja
af sér verði tillagan felld.
Hætta sögð á eins konar
Brexit-áhrifum á efna-
hagslíf Ítalíu með verð-
falli hlutabréfa og að stór-
fyrirtæki fari á hausinn.
Mikil óvissa ríkir um
úrslitin þar sem skoðana-
kannanir hafa ekki verið
birtar undanfarið.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
B
-5
0
6
C
1
B
8
B
-4
F
3
0
1
B
8
B
-4
D
F
4
1
B
8
B
-4
C
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K