Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 20

Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 20
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is En staðan er ruglingsleg. Það eru svo mörg mál sem komið hafa í veg fyrir myndun ríkisstjórnar á síðustu vikum. Jörðin. Smápeningur í geimnum, okkar að eyða.Það var föstudagur. Ég var eirðarlaus. Fannst eins og ég ætti að vera að gera eitthvað. Mér var sagt að það væri svartur föstudagur. Það var sannarlega svartur föstudagur. Jörðin. Smápeningur í geimnum, okkar að eyða. Eilíf löngun, óslökkvandi eldur. Einmitt. Það var það sem ég átti að vera að gera. Slökkva eldinn, fylla tómið innra með mér. Hrærivél, blandari, sófasett. Sous Vide lofttæmingarvél. Vantar þig eitthvað? Nei, nei, það er bara afsláttur. Andlegt lofttæmi. Smáralind – listagallerí. Auglýsendur eru listamenn samtímans. Sértu að selja snyrtivörur, láttu kaupandanum líða sem ljótustum; sértu að selja trygg- ingar, fylltu hann af óöryggi; sértu að selja draum sann- færðu hann um að hann sé fastur í martröð. Hárþurrka, vöfflujárn, hrukkukrem. Því það er föstudagurinn svarti. Jörðin. Smápeningur í geimnum, okkar að eyða. Hver var þessi Galileo? Það skiptir ekki máli því við snúumst ekki kringum sólina heldur rassinn á Kim Kardashian. Hvar var hann? Hvað var hann að gera? Á hverju sat hann, í hverju var hann og hvar get ég fengið svoleiðis? Er silíkon í honum? Ég veit það ekki. En þeir sem búa á Suðurnesjum geta fengið sér United Silicon í öndunarveginn. Snjallsími, tölva, iPad, efnabruni í slímhúð. Hvað á ég að kaupa? Mig vantar ekki sokka. Þrennar buxur á verði einna; hví ekki? Börn í Bangladess, blóðugir fingur. Ég get ekki að því gert. „Tíska er tegund svo óbæri- legs ljótleika að henni verður að breyta á sex mánaða fresti.“ Oscar Wilde sagði það. Ég las það á Twitter. Má bjóða þér eggjasuðutæki? Þú meinar pott? Nei, eggjasuðutæki. Brúneggja-hænurnar voru ekki kvaldar til þess að eggin úr þeim væru elduð án þess að Elkó seldi til þess raftæki. Neyta og anda Það var föstudagurinn svarti og mig vantaði ekki neitt. En samt fannst mér ég verða að kaupa eitthvað. Að öðrum kosti væri ég að missa af einhverju. Tilboði. Tækifæri. Lífsfyllingu. Rannsóknir í Bretlandi sýna að einn af hverjum tíu hlutum sem keyptir eru á svarta föstudeginum er aldrei notaður. Losun á rusli stóreykst í kjölfar föstudagsins svarta. Algengast er að um sé að ræða rafmagnsblandara og matvinnsluvélar. Fæstir eru hlutirnir endurunnir. Flestir eru þeir urðaðir. Svo virðist sem hver einasti dagur sé orðinn svartur föstudagur. Því við erum fangar hugmyndafræði: Okkur hefur verið talin trú um að meiri og meiri neysla sé grundvöllur blómlegs efnahagslífs, hamingju okkar og velfarnaðar. Ef við hættum að neyta er okkur öllum lokið; svona eins og ef við hættum að anda deyjum við. Sannleikurinn er auglýsandans – hænan er ham- ingjusöm ef það stendur á pakkanum. Réttur pen- inganna til að verða til er æðri rétti fólks til að anda – getur það ekki bara keypt sér Sous Vide vél og pakkað sér inn í lofttæmi? Sársauki barnsins í Bangladess er hagnaðaraukning í Excel-skjali. Lýðræði til sölu, kostar eina tölu og leikreglur eru á bak og burt – banki fylgir í kaupbæti. Við erum þrælar ósannaðrar hagfræðikenningar, jafnfrjáls og hamstur á hlaupahjóli, jafnhamingjusöm og hamingjusama hænan í búrinu hjá Brúneggjum. „Feed me, feed me,“ hrópar hagkerfið á okkur eins og blóðþyrsta blómið í Litlu hryllingsbúðinni sem endar með að gleypa eiganda sinn. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Ef við erum gestir og hótel okkar er jörðin erum við eins og rokk- hljómsveitin sem tæmir míní-barinn, ælir í teppið, kastar sjónvarpinu út um gluggann og skítur í heita- pottinn. Er líf á öðrum hnöttum? Jörðin. Smápeningur í geimnum, okkar að eyða. Stjörnur. Skínandi klink á himnum. Er líf á öðrum hnöttum? Ef svo er ætti það að óska sér þess að við finnum það aldrei. Kúkurinn í heita pottinum Fimm vikur eru frá alþingiskosningum og enn er engin ríkisstjórn í sjónmáli. Bjarni Benediktsson hefur fengið stjórnarmyndunar-umboð frá forsetanum tvisvar og Katrín Jakobsdóttir einu sinni. Formlegar viðræður hafa strandað. Sama á við um þreifingar allra flokka, sem fram hafa farið leynt og ljóst, þær hafa engu skilað. Nú, þegar forsetinn hefur fært Birgittu umboðið, er staðan einhvern veginn svona: Sjálfstæðismenn gera engar málamiðlanir í Evrópu- og sjávarútvegsmálum. Vinstri græn halda fast í kreddur um skattahækkanir, skattahækkana vegna. Samfylkingin, eða það sem eftir er af henni, er í sárum, tvístígandi og efast um umboð sitt. Engu er líkara en Framsókn sé haldin alvarlegum sjúkdómi – hún fær hvergi að vera með. Mála- miðlanir virðast eitur í beinum Viðreisnar. Björt framtíð hefur límt sig fasta við Viðreisn, er orðin einhvers konar fylgihnöttur – hefur meira að segja gert formann Við- reisnar að talsmanni sínum. Sú afstaða hefur þann kost að draga úr flækjustiginu. Flokkarnir verða sex í stað sjö. Útspil Katrínar Jakobsdóttur um þjóðstjórn leysir engan vanda. Hvernig ætti að takast að mynda stjórn allra flokka þegar flokkarnir hver um sig finna ekki flöt á sam- starfi við þá sem næst þeim standa í litrófinu? Veganesti Birgittu er, að sumir neita að taka Pírata alvarlega. Engu er líkara en að í gamla flokkakerfinu sé það viðurkennd skoðun að atkvæði þeim greidd hafi minna vægi en atkvæði annarra. Sjálf hafa þau útilokað að vinna með núverandi stjórnarflokkum. En nú gæti komið í þeirra hlut að brjóta odd af oflæti sínu. Getur verið að Birgittu og félögum auðnist að finna samstarfs- flötinn, sem allir leita að? En með hverri vikunni aukast líkurnar á því að fljótlega verði kosið aftur til Alþingis. Slíkt gerist þó varla fyrr en með vorinu. Á meðan gæti þingið þurft að sætta sig við minnihlutastjórn, sem ekki er hefð fyrir á Íslandi, eða að forseti taki af skarið og myndi utanþingsstjórn. Það yrði sitjandi þingmönnum til vansa því þrátt fyrir allt er bjartara framundan í þjóðarbúskapnum en oft áður og spennandi tækifæri fyrir ríkisstjórn sem vill láta að sér kveða. En staðan er ruglingsleg. Það eru svo mörg mál sem komið hafa í veg fyrir myndun ríkisstjórnar á síðustu vikum. Ættu kosningar að snúast um Evrópumál, sjávar- útvegsmál, skattamál eða eitthvað allt annað? Er hægt að benda á eitt mál umfram annað sem valdið hefur því að ekki er hægt að mynda ríkisstjórn? Síðustu vikur eru ekki stjórnmálastéttinni til frægðar- auka. Henni hefur ekki bara mistekist við myndun ríkisstjórnar heldur hafa yfirlýsingar að óreyndu lokað leiðum, sem verður að halda opnum ef ríkisstjórn á að verða til. Nú ætti tími stórkarlalegra yfirlýsinga þvers og kruss að vera liðinn. Kjósendur eiga betra skilið en þennan hringlanda. Vitleysa við Austurvöll AFMÆLISTÓNLE IKAR Viðkomum með jólin til þín! ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ STÓRU STUNDINNI! www.jolagestir.is Jolagestir Á LAUGARDAG í höllinni 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 8 B -7 2 F C 1 B 8 B -7 1 C 0 1 B 8 B -7 0 8 4 1 B 8 B -6 F 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.