Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 84
A rnmundur Ernst Backman og Aldís Amah Hamilton fara með hlutverk Kassíós og Desdemónu í uppfærslu Vestur
ports á Óþelló.
Arnmundur útskrifaðist frá leik
listardeild Listaháskóla Íslands
árið 2013 og Aldís vorið 2016. Þau
eru á meðal þeirra ungu og upp
rennandi leikara sem taka þátt í
uppfærslu Vesturports á Óþelló,
jólasýningu Þjóðleikhússins í ár.
Hlutverk Aldísar er hennar fyrsta
í Þjóðleikhúsinu.
Aldís: „Við erum núna að æfa í
leikmynd og fara í búninga, svo
þetta er spennandi vika fram
undan. Börkur Jónsson sér um leik
mynd og hún er mögnuð.“
Arnmundur: „Börkur kemur ein
hvern veginn alltaf á óvart. Það er
Arnmundur Ernst Backman og Aldís Amah Hamilton æfa hlutverk sín í Óþelló og spegla sig í þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Harmleikurinn um
Óþelló er jólasýning
Þjóðleikhússins í
ár. Þau Arnmundur
Backman og Aldís
Hamilton fara með
hlutverk í sýning-
unni og ræða um
leikverkið, íslenskt
samfélag og arfleifð
foreldra sinna.
svo skemmtilegt þegar verkið er
komið á þennan stað í ferlinu.“
Kynhlutverk eru ekki eftir hefð
bundinni forskrift í uppfærslunni.
Jagó er til að mynda kona leikin af
Nínu Dögg Filippusdóttur.
Arnmundur: Þetta er sterkt í leik
hússenunni í dag, að snúa kynja
hlutverkum við. Hvað varðar Jagó,
þá er það í fyrsta skipti í leikhús
sögunni sem það er gert sem kemur
á óvart.“
Aldís: „Mér finnst þetta spenn
andi. Að máta konu í þetta hlutverk
illmennis. Vesturport er þekkt fyrir
að reyna á mörkin. Fjölbreytnin er
mikilvæg, fyrir utan það að þessar
dökku hliðar mannlegs eðlis, þær
eru ekki bara karla. Heldur kvenna
líka.“
Arnmundur: „Kassíó er að
nokkru leyti fórnarlamb aðstæðna.
En samt ekki. Hann er framapotari,
kann að leika leikinn. Í upphafi er
hann tekinn fram yfir Jagó og það
hrindir atburðarásinni af stað.
Pabbi lék þetta hlutverk fyrir 27
árum.“
Aldís: „Hefur þú horft á það?“
Arnmundur: „Nei, er það til á
myndbandi? Úff. Nei, ég er ekki
viss um að ég vilji gera það. Maður
fer í ákveðið ferðalag gagnvart for
eldrum sínum. Fólki sem vinnur
með mér finnst alltaf vera að
bregða fyrir skuggum í leikhúsinu.
Annað hvort eru þeir frá mömmu
eða pabba. Ég get ákveðið að fjar
lægjast skuggana eða bara grípa þá.
Ég held ég sé búinn að ákveða að
grípa þá. Nota það besta.“
Faðir Arnmundar er Björn Ingi
Hilmarsson leikari og móðir hans
Edda Heiðrún Backman heitin.
Móðir Aldísar er Alda Sigmunds
dóttir rithöfundur og faðir hennar
er Ricky Hamilton, búsettur í
Bandaríkjunum. Leiðir foreldra
Aldísar skildu þegar hún var um
ársgömul. Hún hefur ekki séð hann
síðan.
„Það er alltaf gaman að upp
götva að maður býr yfir góðum
eiginleikum foreldra sinna því á
uppvaxtarárum ætlar maður sér
ekki að líkjast foreldrum sínum.
Svo lærir maður að meta þau á full
orðinsaldri og það sem þau hafa
gefið manni.
Ég finn að ég hef þörf fyrir að
tengjast föður mínum og föðurfjöl
skyldunni betur. Ég sendi honum
stundum tölvupóst og af og til
hringjumst við á. Ég sker mig úr hér
á landi. Ég er stolt af því og langar
að tengjast uppruna mínum enn
betur. Foreldrar okkar fylgja okkur.
Stundum segir mamma þegar ég
hlæ: Þú hlærð alveg eins og pabbi
þinn. Þannig er þetta, foreldrum
okkar bregður fyrir, þó að það séu
bara gen, vöðvar, eitthvað líkam
legt.“
Harmleikur Williams Shake
speare um Óþelló er reglulegt við
fangsefni íslenskra leikhúsa. Hvern
ig hafa þau nálgast sín hlutverk?
Aldís: „Ég hef pælt heilmikið í
verkinu og speglað í eigin reynslu.
Myrkir eiginleikar mannsins eru
undir smásjá, stórýktir. Hlutverkið
býður í ferðalag. Desdemóna er í
huga sumra hið hefðbundna kven
fórnarlamb. En í mínum huga er
hún líka töffari því hún talar gegn
föður sínum og hefðbundnum
venjum um hjónaband. Velur sinn
eigin veg sem endar með látum
auðvitað. Stolt og barnsleg ein
lægni eru ef til vill hennar lestir því
frekar en að gefast upp þá trúir hún
á lausn. Hún sér ekki að hún er með
veikum manni. Heilbrigð mann
eskja myndi láta staðar numið.“
Arnaldur: „Kassío er auðvitað
algjör hálfviti. Hann er dónalegur,
ruddi. En ég er að skoða mýkri hlið
ar hans. Hann er alltaf í einhverri
rullu. Ef hann væri í Reykjavík á
okkar tímum, þá væri hann mögu
lega hipster. Rekstrarstjóri á Gló
Street Food, samt í viðskiptafræði
líka í HR og svo er hann kannski
tímabundið fasteignasali. Allt til
skemmri tíma, því hann á von á því
að verða hampað, því hann er svo
stórkostlegur!“
Aldís: „Hann ráðskast líka með
fólk.“
Arnmundur: „En mér þykir samt
vænt um hann. Okkur verður að
þykja vænt um karakterinn, þrátt
fyrir að hann sé gallaður.“
Aldís: „Við verðum líka að hafa
húmor, fyrir aðstæðum og fyrir
okkur. Þótt undiraldan sé þung í
harmleik eins og Óþelló þá er samt
rými fyrir húmor og ást. Við nýtum
það rými í þessari uppfærslu.“
Arnmundur: „En svo er líka stór
kostlegt ferðalag að fylgjast með
þessum reynsluboltum vinna og
læra af þeim. Þetta er stórskota
lið. Gói, Ingvar Sigurðsson, Björn
Hlynur, Ólafur Egill og Nína.“
Arnmundur er svo til alinn upp í
leikhúsi. Aldís þekkir líka Þjóðleik
húsið og fékk stundum að heim
sækja afa sinn þangað í vinnuna.
Aldís: „Afi minn var verkefnastjóri
í leikhúsinu, Sigmundur Örn Arn
grímsson. Hér fékk ég stundum að
hanga. Hann var vel liðinn og það
fattar það enginn af sjálfsdáðum
að ég er barnabarn hans. Ég horfði
á sumar sýningarnar aftur og aftur,
eins og til dæmis Kardi mommu
bæinn sem var í uppáhaldi.“
Arnmundur: „Þetta er nú munur
inn á okkur. Á meðan þú varst að
horfa á Kardimommubæinn, þá
var ég að horfa endurtekið á fars
ann Sex í sveit og var kominn með
mikið óþol fyrir því verki.“
En hafa þau bæði verið ákveðin í
að verða leikarar?
Aldís: „Já og nei. Ég gekk í Versl
unarskólann og komst ekki inn í
Nemó. Ég hafði kannski ekki sama
kjark og þor og aðrir sem fengu þar
inni. Ég var meira leitandi og var
búin að skrá mig í kínverska við
skiptafræði í HÍ en endaði í Lista
háskólanum. Ég hefði kannski ekki
komist þangað ef mér hefði ekki
verið hafnað, ég held það sé hollt.
Þá horfist maður í augu við það sem
maður vill og annaðhvort heldur
áfram eða ekki.“
Arnmundur: „Það er alveg rétt.
Baráttan er mikilvæg. En það þarf
ekki síður sterkan skráp í það þegar
vel gengur. Maður er hættulegastur
sjálfum sér þegar það gengur vel.
Þá fer hégóminn af stað. Ég var svo
mikill unglingur. Í leiklistinni gekk
mér vel, þegar boltinn fór að rúlla
leið námsáhuginn fyrir það. Þannig
að hér er ég nú. Kannski vil ég nú
samt einhvern tíma læra frönsku?
Eða bara eitthvað annað.“
Aldís: „Hafðu nú ekki áhyggjur af
þessu. Ég lærði á Excel, ég hef ekkert
að gera við það í dag. Þú getur lært
frönsku seinna, Arnmundur.
Það er nefnilega málið, leiklistin
er ein af þeim starfsgreinum þar
sem þú verður að hamra járnið
meðan heitt er, á meðan þú ert
ungur. Hlutverkin eru mörg skrifuð
fyrir ungt fólk, sérstaklega konur.
Það er, held ég, ekki tekið inn í
skólann eftir að þú verður 28 ára.
Þetta eru hlutir sem maður þarf að
uppgötva snemma og vita að þetta
er það sem þú ætlar að gera. Þetta
er fórn.“
Grípa í
skugga
á sviðinu
MAÐUR ER HÆTTULEG-
ASTUR SJÁLFUM SÉR
ÞEGAR ÞAÐ GENGUR VEL.
ÞÁ FER HÉGÓMINN
AF STAÐ.
3 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:0
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
8
B
-C
6
E
C
1
B
8
B
-C
5
B
0
1
B
8
B
-C
4
7
4
1
B
8
B
-C
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K