Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 90

Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 90
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkæri bróðir minn, mágur, frændi og vinur, Þórir Kristinn Kárason lést 30. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórhallur Kárason Oi Sirijanthrakan Alex Kári Þórhallsson Sigrún Pétursdóttir og frændsystkini. Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, Hilmar R. Ólafsson skipstjóri og stýrimaður, Gullteigi 12, Reykjavík, lést föstudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 9. desember kl. 13.00. Þorsteinn Gísli Hilmarsson Halldóra Hilmarsdóttir Hilmar Örn Hilmarsson Laufey Katrín Hilmarsdóttir systkini, tengdabörn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Valgerður Jakobsdóttir Sundabúð, Vopnafirði, verður jarðsungin frá Vopnafjarðar - kirkju mánudaginn 5. desember kl. 13.30. Jakob Björnsson Linda Barbara Björnsson Björn Björnsson Ragnheiður Guðrún Þórðard. Helgi Jóhann Þórðarson Jónína Björnsdóttir Sardar Ibrahem Davoody barnabörn og barnabarnabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Edda Ingibjörg Eggertsdóttir Barðastöðum 11, áður Stigahlíð 91, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á Landspítalanum þann 27. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 6. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Guðný Edda Gísladóttir Guðjón Kr. Guðjónsson Eggert Árni Gíslason Petra Bragadóttir Halldór Páll Gíslason Anna Helga Höskuldsdóttir Gunnar Þór Gíslason Sólveig Ingólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þetta var planað. Það var fyrir löngu búið að stilla himin-tunglin þannig að 3. desember 2016 dytti á laugardag. Ótrú-lega þægilegt, líka þegar veðr- áttan er eins og hún er, ég gæti verið með garðpartí og grill. Kannski endar það þannig,“ segir Hálfdán Steinþórsson, framkvæmdastjóri í GoMobil, þegar haft er á orði að hann sé heppinn að fertugsaf- mælið hans hitti á helgi. Hann kveðst ætla að vera með þægilegan hitting heima fyrir og bjóða sínu uppáhaldsfólki í mat og drykk, og uppáhaldsfólkið hans Hálf- dáns er um 60 til 70 manns. Hálfdán stofnaði fyrirtækið GoMobile árið 2012, það er rafrænt inneignarkerfi fyrir íslensk greiðslukort og snýst um tryggðarkerfi Símans. „Áður stofnuðum við Hringtorg og Bláa kortið með Arion banka,“ upplýsir hann.  „Erum fimm saman að vinna hér á efstu hæð í Austur- strætinu og horfum niður á Alþingis- húsið.“ Blaðamaður er illa að sér í svona tryggðarlausnum og leiðir talið að upp- runa afmælisbarnsins. „Ég  er fæddur austur í Neskaupstað og átti heima þar fyrstu 18 árin,“ segir Hálfdán  og bætir við stoltur: „Það er eins og að eiga 1.500 manna fjölskyldu að hafa alist upp þar. Ég var með sama hópnum í skóla frá leik- skóla og upp úr og er næstsíðastur til að halda upp á fertugsafmælið. Finnst frá- bært núna að hafa fæðst svona seint á árinu!“   Líkt og margir ungir menn í sjávar- plássum byrjaði Hálfdán á sjó 15 ára. Fór á togara og fannst það merkileg lífsreynsla. „Í öllum skólafríum gat ég farið á sjó og náð mér í pening, jafnvel eftir að ég byrjaði í háskóla,“ segir hann. „Svo var þetta eins og víða á litlum stöðum, hljómsveitarstúss og stuð. Neskaupstaður hafði upp á ótrú- lega gott menningar- og mannlíf að bjóða. Plötubúðin Tónspil var hjartað í bænum, með gríðarlegt úrval af tónlist.“ Hálfdán var sjónvarpsstjarna í nokkur ár eftir að Skjár einn fór í loftið. „Það var ævintýri að fylgjast með því apparati frá fyrstu dögum,“ rifjar hann upp. „Ég var bæði í þáttargerð og auglýsingum, það fengu allir að gera allt. Þetta var stórkost- legt tímabil. Svo tók ég nokkra vetur með Völu Matt í sjónvarpinu. Mér er minnis- stætt þegar ég hafði nýlokið einum slík- um vetri og réð mig á skipið Örfirisey um sumarið. Þegar ég stíg um borð með stíg- vélin og gallann stendur þar fullorðinn maður og segir þessa gullfallegu setningu: „Hver andskotinn, Vala Matt?“ Lífsstíls- þáttur og sjómennska blandaðist ekki sérlega vel saman!“ gun@frettabladid.is Gæti haft garðpartí og grill Hálfdán Steinþórsson, fyrrverandi sjónvarpsstjarna og sjómaður en nú framkvæmda- stjóri GoMobil, er fertugur í dag og ætlar að bjóða sínu uppáhaldsfólki í mat og drykk. „Í öllum skólafríum gat ég farið á sjó og náð mér í pening, jafnvel eftir að ég byrjaði í há- skóla,“ segir Hálfdán sem vinnur á efstu hæð við Austurstræti. FréttAblAðið/GVA Móðir okkar, Halldóra Jóhannsdóttir lést 23. nóvember á hjúkrunarheimilinu Mörk. Úförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gústaf Adolf Andrésson, Jóhann Salómon Andrésson og fjölskyldur. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæru Ásdísar Alexandersdóttur sem lést þann 15. október síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Hauksdóttir Brynjulv Hauksson Þegar ég stíg um borð með stíg- vélin og gallann stendur þar fullorðinn maður og segir þessa gullfallegu setningu: „Hver and- skotinn, Vala Matt?“ Ástkæri eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ómar Ægisson sem lést þann 28. nóvember á Landspítalanum við Hringbraut verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þann 9. desember klukkan 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Vipada Gairach Sólveig Dröfn Ómarsdóttir Jakob Þór Jakobsson Elín Dögg Ómarsdóttir Egill Örn Sverrisson Bragi Þór Ómarsson Arnika Clausen Ómarsdóttir Gunnhildur Guðnadóttir Pétur Hannesson Haukur Gunnar Guðnason Sivat Gairach barnabörn og langafabarn. Ástkær föðurbróðir okkar, Jón Ingimar Guðmundsson Hveragerði, lést á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, þriðjudaginn 15. nóv. sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Áss fyrir góða umönnun. F.h. aðstandenda, Guðfinna Sigmundsdóttir Karlinna Sigmundsdóttir Ingibjörg Sigmundsdóttir 3 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r46 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tíMaMót 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 B -5 F 3 C 1 B 8 B -5 E 0 0 1 B 8 B -5 C C 4 1 B 8 B -5 B 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.